Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 883/2005"

7 dómar fundust

Landsréttur birt 29. september 2023

308/2022

ST ehf (Birgir Már Björnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

S, sem annaðist innflutning á vindlum í þeim tilgangi að selja beint í smásölu í eigin netverslun, krafðist endurgreiðslu frá Í á gjaldi sem S innti af hendi til ÁTVR í formi heildsöluálagningar á tóbak, sbr. ákvæði laga nr. 86/2011 um verslun með áfengi og tóbak. Taldi S að ÁTVR væri óheimilt að skylda S til að greiða heildsöluálagningu sem skilyrði fyrir því að fá tóbak sitt afhent, þar sem félagið stundaði ekki heildsölu. Ekki var um það deilt að heildsöluálagning á tóbak væri skattur, en S taldi á hinn bóginn að ekki væri fyrir hendi skýr lagastoð fyrir álagningunni, en hvergi í lögum nr. 86/2011 var skilgreint hvað fælist í „heildsölu“ eða „heildsöluálagningu“. Í niðurstöðu Landsréttar var bent á að samkvæmt 1. málslið 2. mgr. 7. gr. laga nr. 86/2011 hefði ÁTVR einkaleyfi til að selja tóbak innanlands í heildsölu. Í því einkaleyfi fælist að allt tóbak sem flutt væri til landsins og selt á Íslandi þyrfti fyrst að afhenda ÁTVR og kaupa síðan af stofnuninni í heildsölu. Þá væri í 3. mgr. 9. gr. laganna mælt fyrir um að heildsöluálagning á tóbak skyldi vera 18%. Samkvæmt því væri í lögum nr. 86/2011 mælt fyrir um meginatriði þeirrar skattlagningar sem um ræddi og álagningin sem deilt var um byggð á beinum fyrirmælum löggjafans í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar og markmið þeirra. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms því staðfest og Í sýknað af kröfum S.

...Var þá lögfest ný grein er sagði: „Álagning Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á tóbak skal vera 18%.“ Tildrög lagabreytinganna voru þau að áður hafði verið ákvæði í reglugerð nr. 883...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. mars 2022

E-1989/2021

ST ehf (Birgir Már Björnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Rakel Jensdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefndi var sýknaður af endurgreiðslukröfu stefnanda vegna heildsöluálagningar ÁTVR á tóbak en ekki var fallist á það með stefnanda að sýnt þætti fram á að umrædd gjaldtaka hvað hann varðaði skorti lagastoð.

...Var þá lögfest ný grein er sagði: „Álagning Áfengis- og tóbaksverslunar 2 ríkisins á tóbak skal vera 18%.“ Tildrög lagabreytinganna voru þau að áður hafði verið ákvæði í reglugerð nr...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. febrúar 2014

E-2381/2011

HOB-vín ehf (Stefán Geir Þórisson hrl) gegn Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (Skúli Bjarnason hrl)

Ógildingarkröfum stefnanda var vísað frá dómi en hluti af skaðabótakröfu hans tekin til greina.

...Þegar atvik málsins urðu var stefndi fyrirtæki í eigu ríkisins sem heyrði undir fjármálaráðherra, eins og sagði í reglugerð nr. 883/2005 um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Reglugerð þessi hafði...

Hæstiréttur birt 24. janúar 2012

37/2012

Áfengis- tóbaksverslun ríkisins (Skúli Bjarnason hrl) gegn HOB -vínum ehf (Stefán Geir Þórisson hrl)

Á kærði úrskurð héraðsdóms þar sem ákveðið var að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um nánar tilgreind atriði í tengslum við mál H ehf. á hendur Á. Hæstiréttur féllst á að nægilega væri fram komið í málinu að 11. og 13. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið gætu haft þýðingu þegar leyst yrði úr kröfum H ehf. á hendur V. Voru því fimm nánar tilgreindar spurningar lagðar fyrir EFTA-dómstólinn.

...með heimild í lögum nr. 63/1969 um verslun með áfengi og tóbak. Reglugerð nr. 883/2005 hefur verið leyst af hólmi með reglugerð nr. 756/2011 um sama efni...

Hæstiréttur birt 11. apríl 2011

187/2011

HOB-vín ehf (Stefán Geir Þórisson hrl) gegn Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (Skúli Bjarnason hrl)

H kærði úrskurð héraðsdóms þar sem máli þess á hendur Á var vísað frá dómi. H rak innflutnings- og heildverslun sem flutti inn nokkrar áfengistegundir. Í héraði hafði H uppi þrjár viðurkenningarkröfur á hendur Á. Krafðist hann þess í fyrsta lagi að viðurkennt yrði að Á hefði verið óheimilt að synja honum um reynslusölu á tilteknum áfengistegundum. Í öðru lagi að viðurkennd yrði skaðabótaskylda Á vegna fjártjóns af synjuninni og í þriðja lagi að viðurkennt yrði að Á væri óheimilt að gera kröfu til H um tilteknar merkingar á fjórum tilteknum áfengistegundum. Í dómi Hæstaréttar sagði m.a. að samkvæmt 60. gr. stjórnarskrárinnar skæru dómstólar úr öllum ágreiningi um embættistakmörk yfirvalda og gætu þannig ógilt ákvarðanir framkvæmdarvaldshafa ef þeim væri áfátt að formi eða efni. Af 2. gr. stjórnarskrárinnar leiddi að almennt væri ekki á færi dómstóla að taka nýjar ákvarðanir um málefni sem stjórnvöldum væru falin með lögum og ógildanlegar kynnu að vera að eða gefa stjórnvöldum fyrirmæli um efnislegt innihald slíkra ákvarðana. Var niðurstaða héraðsdóms um frávísun fyrsta og þriðja kröfuliðar H því staðfest. Hvað varðar annan lið kröfugerðar H taldi Hæstiréttur að H hefði ekki stutt sjónarmið sín um fjártjón við gögn sem þó ættu að vera honum tiltæk né gert viðhlítandi grein fyrir þeim sjónarmiðum og viðmiðunum sem leggja ætti til grundvallar við ákvörðun um tjón hans vegna missis hagnaðar. Var þessi kröfuliður því talinn vanreifaður og niðurstaða héraðsdóms um frávísun hans einnig staðfest.

...samþykktar af ráðherra verði að standast reglur um innkaup og sölu áfengis, sbr. reglugerð nr. 883/2005 sem og ákvæði EES samningsins og önnur íslensk lög og stjórnsýslufyrirmæli. Vöruvalsreglur stefnda...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. mars 2011

E-5466/2010

HOB-vín ehf (Stefán Geir Þórisson hrl) gegn Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (Skúli Bjarnason hrl)

Máli vísað frá dómi á þeim grundvelli að kröfugerð væri ekki í samræmi við málsástæður í málinu.

...samþykktar af ráðherra verði að standast reglur um innkaup og sölu áfengis, sbr. reglugerð nr. 883/2005 sem og ákvæði EES samningsins og önnur íslensk lög og stjórnsýslufyrirmæli. Vöruvalsreglur stefnda...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. febrúar 2011

E-823/2011

Vín Tríó ehf (Birgir Tjörvi Pétursson hdl) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl)

Komist var að þeirri niðurstöðu að ákvarðanir ÁTVR, þar sem hafnað var að kaupa af stefnanda tvær áfengistegundir sem innihéldu koffín, hafi ekki haft viðhlítandi lagastoð. Staðfesting fjármálaráðuneytisins á þessum ákvörðunum var því felld úr gildi auk þess sem stefnanda voru dæmdar skaðabætur úr hendi íslenska ríkisins.

...Er atvik málsins áttu sér stað var í gildi reglugerð nr. 883/2005 um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR), en hún var sett af ráðherra með stoð í fyrrgreindri 14...