Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 545/2019"

2 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. mars 2026

E-4891/2025

A (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn Landsbankanum hf (Hrannar Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Einstaklingur átti í viðskiptum við banka. Eftir að einstaklingurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rökstudds gruns um margvísleg brot, þar á meðal peningaþvætti, sagði bankinn upp viðskiptasambandinu í mars 2024. Árið 2025 fór einstaklingurinn fram á að opnað yrði aftur fyrir bankaviðskipti, en hann þyrfti á bankareikningi að halda til að geta fengið greidd laun. Bankinn hafnaði þeirri beiðni, meðal annars með vísan til óbreytts áhættumats á grundvelli laga og reglna um peningaþvætti. Höfðaði einstaklingurinn þá mál þetta gegn bankanum og krafðist þess að honum yrði gert skylt að opna aftur fyrir bankaviðskiptin. Í ljósi umfangs og alvarleika þeirra brota sem einstaklingurinn lá undir rökstuddum grun um að hafa framið taldi dómurinn að fallast mætti á þann málatilbúnað bankans að synjun hans á beiðni einstaklingsins um stofnun nýs bankareiknings teldist eiga sér næga stoð í lögum nr. 140/2018, sbr. einnig ákvæði 3. mgr. 14. gr. laga nr. 5/2023.

...Í reglugerð nr. 545/2019 um áhættumat vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka er að finna nánari reglur um framkvæmd áhættumats. Lög nr. 140/2018 áskilja ekki að einstaklingur hafi verið...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júlí 2025

E-1768/2023

A (Guðmundur Óli Björgvinsson lögmaður) gegn ríkisskattstjóra og íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)

Stefnandi, fasteignasala, krafðist þess aðallega að felld yrðu úr gildi ákvörðun ríkisskattstjóra þess efnis að sekta stefnanda fyrir brot gegn lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Ríkisskattstjóri var sýkn af aðalkröfu en fallist var á varakröfu stefnanda og sektin lækkuð verulega.

...1420/2020 um einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla með tilliti til aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sem og reglugerð nr. 545/2019 um áhættumat vegna peningaþvættis og fjármögnunar...