Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 515/1996"

5 dómar fundust

Hæstiréttur birt 20. desember 2024

22/2024

Íslenska ríkið (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður) gegn XTX Markets Limited (Jón Elvar Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Með úrskurði yfirskattanefndar í júní 2021 var staðfestur úrskurður ríkisskattstjóra frá júní 2020 um að fella útibú X af virðisaukaskattsskrá frá og með 31. desember 2019. Þá felldi yfirskattanefnd úr gildi ákvarðanir ríkisskattstjóra um uppgjörstímabil ársins 2019 og lagði fyrir embættið að ákvarða virðisaukaskatt að nýju. X höfðaði mál gegn Í og krafðist þess að fyrrgreindir úrskurðir yrðu felldir úr gildi. Fyrir lá að í aðdraganda þess að samþykkt var að skrá útibú X á virðisaukaskattsskrá hafði félagið verið í samskiptum við embætti ríkisskattstjóra og veitt upplýsingar um fyrirhugaða starfsemi. Hæstiréttur taldi útibúið aldrei hafa uppfyllt skilyrði skráningar á grunnskrá virðisaukaskatts samkvæmt lögum nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Hæstiréttur leit til þess að einungis þeir skyldu vera á skrá sem uppfylltu efnisleg skilyrði þess svo hún þjónaði þeim lögmælta tilgangi sínum að taka einungis til starfsemi þeirra aðila sem lytu virðisaukaskattsskyldu samkvæmt 1. gr. laganna, sbr. 3, gr. þeirra. Ákvæði 8. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1988 yrði ekki skýrt svo að aðili sem aldrei hefði uppfyllt skilyrði þess að vera á skránni nyti með einhverjum hætti betri stöðu í þessu tilliti en sá sem ekki gerði það lengur. Slík skýring væri ótæk að virtum meginreglum skattaréttar og lögskýringarsjónarmiðum um jafnræði skattaðila. Enn fremur taldi rétturinn að 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hefði ekki þýðingu við úrlausn málsins. Að framangreindu virtu var Í sýknað af kröfum X.

...Almenn heimild til afskráningar byggist á reglugerð nr. 515/1996, um skráningu virðisaukaskattsskyldra aðila. Til að skjóta styrkari stoðum undir þessa framkvæmd verður að telja eðlilegt að slíkt ákvæði sé...

Landsréttur birt 1. mars 2024

801/2022

XTX Markets Limited (Bjarnfreður Ólafsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

XTX höfðaði mál gegn Í og krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður ríkisskattstjóra um að fella niður skráningu útibús félagsins á Íslandi á virðisaukaskattsskrá og hafna færslu innskatts og undanþeginnar veltu samkvæmt nánar tilgreindum virðisaukaskattsskýrslum. Þá krafðist félagið jafnframt að felldur yrði úr gildi úrskurður yfirskattanefndar um sama efni. Fyrir lá að í aðdraganda þess að samþykkt var að skrá útibú XTX á virðisaukaskattsskrá hafði félagið verið í samskiptum við embætti ríkisskattstjóra og veitt upplýsingar um fyrirhugaða starfsemi útibúsins. Í dómi Landsréttar kom fram að ákvörðun ríkisskattstjóra um að skrá útibú XTX á virðisaukaskattsskrá væri stjórnvaldsákvörðun og um hana giltu ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og óskráðar reglur stjórnsýsluréttar. Var talið að ákvörðun ríkisskattsstjóra hefði falið í sér afturköllun fyrri stjórnvaldsákvörðunar en eins og atvikum máls væri háttað hefði skort lagaheimild til slíkrar ákvörðunar. Var því fallist á kröfur XTX um að fella úr gildi úrskurði ríkisskattstjóra og yfirskattanefndar.

...50/1988 og reglugerð nr. 515/1996 er ekki að finna heimild til afskráningar á þeim grundvelli. Þótt fallast verði á það með stefnda að ákvæðið hafi ekki að geyma...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. nóvember 2022

E-73/2022

XTX Markets Limited (Bjarnfreður Ólafsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Ágreiningur málsins varðaði það álitaefni hvort heimilt hafi verið að fella útibú stefnanda, XTX Markets Limited, útibú á Íslandi, af grunnskrá virðisaukaskatts. Var það niðurstaða dómsins samkvæmt skýru orðalagi ákvæðis 7. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1988 að ríkisskattstjóra hafi verið heimilt að úrskurða útibú stefnanda af virðisaukaskattsskrá um leið og ljóst var að skilyrði sem lögin mæla fyrir um voru ekki uppfyllt.

...Í reglugerð nr. 515/1996, um skráningu virðisaukaskattsskyldra aðila með síðari breytingum sem vísað er til í fyrrgreindum athugasemdum, kemur fram í 1. mgr. 8. gr. að hætti aðili skráningarskyldri...

Hæstiréttur birt 22. mars 2016

506/2015

Vörðuholt ehf (Einar Hugi Bjarnason hrl) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Með úrskurðum ríkisskattstjóra og yfirskattanefndar var V ehf. endurákvarðaður áður álagður virðisaukaskattur og höfðaði félagið mál þetta meðal annars í því skyni að fá úrskurðina ógilta. Í málinu deildu V ehf. og Í um það hvernig túlka bæri það orðalag 2. málsliðar 1. mgr. 16. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt að skilyrði innskattsfrádráttar væri að seljandi væri „skráður á virðisaukaskattsskrá“ á því tímamarki þegar viðskipti áttu sér stað. Óumdeilt var í málinu að viðsemjandi V ehf. hefði ekki verið með opið virðisaukaskattsnúmer þegar innsköttun átti sér stað, en deilt var um hvort hann hefði verið skráður á virðisaukaskattsskrá. Fallist var á það með V ehf. að framsetning ákvæðisins væri ekki að öllu leyti eins skýr og æskilegt væri, einkum með hliðsjón af því að lokun virðisaukaskattnúmers og afskráning af virðisaukaskattskrá þyrfti ekki að fara saman í öllum tilvikum. Á hinn bóginn var í dómi Hæstaréttar rakið að lögskýringargögn bæru með sér að tilætlan löggjafans með umræddu ákvæði hafi verið að bregðast við þeim tilvikum þegar skattaðili hefði talið virðisaukaskatt til innskatts án þess að viðsemjandi hans hefði verið með opið virðisaukaskattsnúmer eða jafnvel aldrei skráður á virðisaukaskattsskrá. Þá könnun sem tilvitnuð lagaregla ráðgerði að skattaðili framkvæmdi væri hægt að uppfylla með einfaldri skoðun á upplýsingavef ríkisskattstjóra. Með hliðsjón af þessu hefði fyrirsvarsmönnum V ehf. ekki getað dulist, að undangenginni slíkri könnun, að viðsemjandi þeirra væri ekki með opið virðisaukaskattsnúmer á þeim tíma þegar umrædd viðskipti áttu sér stað. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu Í.

...Á þessum grundvelli hafi verið sett reglugerð nr. 515/1996, um skráningu virðisaukaskattsskyldra aðila, þar sem nánar sé kveðið á um skráningu og skilyrði hennar, sem og ákvæði um afskráningu...