Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 288/2018"
7 dómar fundust
Fallist á kröfu tryggingarfélags um að ökumanni bifreiðar beri að endurgreiða skaðabætur, sem honum voru greiddar vegna umferðarslyss, þar sem hann hafi ekki átt rétt til þeirra sökum þess að hann hafi verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna við akstur bifreiðarinnar í greint sinn og með því valdið því að vátryggingaratburður varð, sem og þar sem hann hafi gefið rangar eða ófullnægjandi upplýsingar í kjölfar slyssins, varðandi ástand sitt á þeim tíma er slysið varð. Í málinu var einnig staðfest kyrrsetningargerð sem gerð var af þessu tilefni.
...Sam- kvæmt viðauka I við reglugerð nr. 288/2018 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, sem í gildi var er slysið varð...
I var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með brotinu gerðist I í þriðja sinn sekur um akstur undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna. Í dómi Landsréttar kom fram að dómur um sekt og sviptingu ökuréttar fyrir ölvunarakstur sem kveðinn hefði verið upp 20. janúar 2017 hefði ítrekunaráhrif við ákvörðun refsingar fyrir það brot sem hann væri nú sakfelldur fyrir. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur og I gert að sæta 30 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.
...1240/2019 var felld úr gildi samnefnd reglugerð nr. 288/2018, sem sótti stoð í 4. mgr. 100. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987. Er áralöng dómvenja fyrir því að...
Ákæruvaldið (
Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari)
gegn
Ásgeiri Gunnarssyni (
Jóhann Pétursson lögmaður)
Á var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og fyrir akstur samtímis undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna. Með dómi héraðsdóms var Á gert að sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið til tveggja ára, og greiða jafnframt 300.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæta ella fangelsi í 20 daga. Loks var Á sviptur ökurétti í 15 mánuði, fyrst í 12 mánuði frá 15. september 2019 til 15. september 2020 en að auki í þrjá mánuði frá birtingu dómsins að telja. Þá voru haldlögð fíkniefni gerð upptæk. Fyrir Landsrétti undi Á niðurstöðu héraðsdóms um fangelsisrefsingu og greiðslu sektar en krafðist styttingar á sviptingu ökuréttar vegna ölvunar- og fíkniefnaaksturs. Í dómi Landsréttar kom fram að af dómum Hæstaréttar Íslands í málum nr. 335/2008 og 222/2015 þætti mega draga þá ályktun að þegar svo háttaði til eins og í tilviki Á sem ökumanns sem væri samtímis undir áhrifum áfengis og fíkniefna bæri að dæma honum sekt fyrir hvort tveggja þessara brota en ákvarða ökuréttarsviptingu eftir því hvort ölvunar- eða fíkniefnaakstur ætti að leiða til lengri sviptingar en ekki að samanlögðum tíma fyrir bæði brotin. Með vísan til þessa þótti rétt að Á sætti sviptingu ökuréttar í 12 mánuði. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur að öðru leyti, það er um ákvörðun refsingar ákærða, upptöku fíkniefna og sakarkostnað.
...Samkvæmt viðauka I við reglugerð nr. 288/2018, sbr. 4. mgr. 100. gr. þágildandi umferðarlaga varðaði brot ákærða gegn 45. gr. laganna sekt að fjárhæð 120.000 krónur og sex...
Ákæruvaldið (
Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ólafi Inga Kristjánssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Sakfellt fyrir þjófnað, nytjastuld, umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot.
...Um fyrr- greinda sektarfjárhæð fer eftir viðauka I með reglugerð nr. 288/2018 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, sbr. 2. gr...
Ákæruvaldið (
Sonja H. Berndsen aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóni Lárusi Helgasyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Sakfellt fyrir umferðarlaga-, fíkniefna- og þjófnaðarbrot.
...þágildandi reglugerð nr. 288/2018 og 2. gr. a. í almennum hegningarlögum. Með vísan til 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr...
A var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn umferðarlögum, þar á meðal að aka bifreiðum í sjö skipti sviptur ökurétti, í fjórum þeirra tilvika einnig undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í þremur þeirra jafnframt undir áhrifum slævandi lyfja. Auk þess var hann sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna. Að sakaferli A virtum var refsing hans ákveðin fangelsi í 15 mánuði og hann sviptur ökurétti ævilangt, auk þess sem hann var dæmdur til að sæta upptöku fíkniefna.
...Í reglugerð nr. 288/2018, sbr. áður reglugerð nr. 930/2006 með síðari breytingum, um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, segir í...
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Arnari Freyr Karlssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 14 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar hans ítrekuð vegna umferðarlagabrota og brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
...Í reglugerð nr. 288/2018, sbr. áður reglugerð nr. 930/2006 með síðari breytingum, um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, segir í...