Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 283/2009"

8 dómar fundust

Landsréttur birt 7. nóvember 2024

487/2023

Íslenska ríkið (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) gegn Vinnslustöðinni hf (Ragnar Halldór Hall lögmaður)

Með dómi Hæstaréttar 6. desember 2018 í málum nr. 508/2017 og 509/2017 var viðurkenndur réttur tveggja aðila til skaðabóta úr hendi Í vegna þess tjóns sem þeir kynnu að hafa beðið vegna þess að fiskiskipum félaganna var á árunum 2011 til 2014 með ákvörðunum Fiskistofu, sem teknar voru á grundvelli reglugerða, úthlutað minni aflaheimildum en skylt var samkvæmt lögum nr. 151/1996 um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. V hf. hafði einnig rekið dómsmál á sama grundvelli gegn Í. Í kjölfarið á þessum dómum var dómsátt gerð milli aðila þar sem Í viðurkenndi bótaskyldu gagnvart V hf. V hf. höfðaði síðan mál á ný gegn Í til heimtu skaðabóta vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir á árabilinu2011 til 2018. Undir rekstri málsins var aflað matsgerðar dómkvaddra matsmanna. Í framhaldi af því færði H ehf. kröfur sínar í endanlegan búning í samræmi við niðurstöðu matsgerðar, þó þannig að fjárhæðir fyrir árin 2012, 2013 og 2015 voru miðaðar við upphaflega kröfugerð þar sem þær voru lægri en í matsgerðinni. Í dómi héraðsdóms var niðurstaða matsgerðar lögð til grundvallar, miðað við 30% lækkun matsfjárhæðar vegna óvissuþátta, og Í gert að greiða V hf. skaðabætur í samræmi við varakröfu hans. Í dómi Landsréttar var niðurstaða matsgerðarinnar einnig lögð til grundvallar en þó þannig að miðað var við 30% lækkun matsfjárhæðar vegna óvissuþátta og meðalhagnað eingöngu. Kröfur V hf. vegna áranna 2011 og 2012 voru taldar fyrndar er hann höfðaði fyrra mál sitt gegn Í. Var Í dæmt til að greiða V hf. tilgreindar fjárhæðir vegna áranna 2013 til og með 2018.

...mars 2009, út reglugerð nr. 283/2009 um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2009. Í 1. gr. hennar sagði að öllum fiskiskipum sem hefðu leyfi til veiða í atvinnuskyni í...

Landsréttur birt 7. nóvember 2024

486/2023

Íslenska ríkið (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) gegn Hugin ehf (Stefán A. Svensson lögmaður, Bjarni Aðalgeirsson lögmaður)

Með dómi Hæstaréttar 6. desember 2018 í máli nr. 508/2017 var viðurkenndur réttur H ehf. til skaðabóta úr hendi Í vegna þess tjóns sem H ehf. kynni að hafa beðið vegna þess að fiskiskipi félagsins, Hugin VE 55, var á árabilinu 2011 til 2014 með ákvörðunum Fiskistofu, sem teknar voru á grundvelli reglugerða, úthlutað minni aflaheimildum en skylt var samkvæmt lögum nr. 151/1996 um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. H ehf. höfðaði síðan mál á ný gegn Í til heimtu skaðabóta vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir á árabilinu 2011 til 2018. Undir rekstri málsins var aflað matsgerðar dómkvaddra matsmanna. Í framhaldi af því færði H ehf. kröfur sínar í endanlegan búning í samræmi við niðurstöðu matsgerðar, þó þannig að fjárhæðir fyrir árin 2012 og 2013 voru miðaðar við upphaflega kröfugerð þar sem þær voru lægri en í matsgerðinni. Í dómi héraðsdóms var byggt á minnsta missi hagnaðar samkvæmt matsgerð, þar sem miðað hefði verið við meðalkostnað við veiðarnar eingöngu og við 10% frádrátt vegna óvissuþátta, auk lækkunar vegna ársins 2012. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að matsgerðinni hefði ekki verið hnekkt með yfirmati. Var málatilbúnaði Í um að tjón H ehf. væri ósannað hafnað, sem og að kröfur hans væru fyrndar. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.

...mars 2009 út reglugerð nr. 283/2009 um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2009. Í 1. gr. hennar sagði að öllum fiskiskipum sem hefðu leyfi til veiða í atvinnuskyni í...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júní 2023

E-7169/2019

Vinnslustöðin hf (Ragnar Halldór Hall lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)

Fallist var á þrautavarakröfu stefnanda varðandi mat á almennu fjártjóni hans vegna ólögmætrar skerðingar á úthlutun á makrílkvóta árin 2011-2018 en ágreiningur í málinu stóð um sönnun á slíku tjóni og þá umfangi þess.

...mars 2009, út reglugerð nr. 283/2009 um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2009. Í 1. gr. hennar sagði að öllum fiskiskipum sem hefðu leyfi til veiða í atvinnuskyni í...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júní 2023

E-3225/2019

Huginn ehf (Stefán A. Svensson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)

Fallist var á þrautavarakröfu stefnanda varðandi mat á almennu fjártjóni hans vegna ólögmætrar skerðingar á úthlutun á makrílkvóta árin 2011-2018 en ágreiningur í málinu stóð um sönnun á slíku tjóni og þá umfangi þess.

...mars 2009 út reglugerð nr. 283/2009 um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2009. Í 1. gr. hennar sagði að öllum fiskiskipum sem hefðu leyfi til veiða í atvinnuskyni í...

Landsréttur birt 16. júní 2022

114/2021

Félag makrílveiðimanna (Jóhannes Bjarni Björnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Með lögum nr. 46/2019 voru gerðar breytingar á lögum nr. 151/1996 um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 116/2006 um stjórn fisveiða með nánar tilgreindum hætti. Í kjölfarið höfðaði FM mál á hendur Í og krafðist þess aðallega að viðurkennt yrði með dómi að óheimilt hefði verið að takmarka heimildir félagsmanna til veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakrílstofninum en til vara að viðurkennt yrði að óheimilt hefði verið að takmarka heimildir félagsmanna til ráðstöfunar á aflaheimildum í B- flokki Norðaustur-Atlantshafsmakrílstofnsins. Byggði FM á því að með því að miða við lengra viðmiðunartímabil en almennar reglur á sviði fiskveiðistjórnunar gerðu ráð fyrir væri brotið gegn jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar, auk 75. gr. stjórnarskrár um atvinnufrelsi og 72. gr. stjórnarskrár um friðhelgi eignarréttar. Takmarkanir á heimildum til ráðstöfunar á aflaheimildum hefðu brotið gegn sömu ákvæðum stjórnarskrár, enda féllu heimildir félagsmanna almennt í B-flokk. Með dómi Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að umþrætt viðmiðunartímabil hefði ekki falið í sér ómálefnalega takmörkun, mismunun eða óréttmætar skerðingar á réttindum félagsmanna. Þá taldi dómurinn að málefnaleg sjónarmið, sem rúmuðust enda innan valdheimilda löggjafans, hefðu ráðið því að setja framsali veiðiheimilda úr B-flokki í A-flokk skorður. Með hliðsjón af því og því víðtæka svigrúmi til mats sem íslenskir dómstólar hefðu játað löggjafanum til stefnumótunar á sviði fiskveiðistjórnunar var ekki talið að framangreint fyrirkomulag hefði brotið í bága við stjórnarskrárvarin réttindi félagsmanna áfrýjanda. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu Í af kröfum FM því staðfest.

...Árið 2009 gaf ráðherra út reglugerð nr. 283/2009 sem tók bæði til veiða innan og utan íslenskrar efnahagslögsögu og sem setti takmarkanir á leyfilegan heildarafla í makríl. Í reglugerðinni...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. janúar 2021

E-464/2020

Félag makrílveiðimanna (Jóhannes Bjarni Björnsson) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson)

Stefnandi gerði í málinu aðallega kröfu um viðurkenningardóm í þá veru að óheimilt hafi verið að takmarka heimildir félagsmanna hans til veiða úr makrílstofninum með því að grundvalla úthlutun aflahlutdeildar á grundvelli tíu bestu aflareynsluára veiðiskipa á árunum 2008–2018 samkvæmt bráðabirgðaákvæði í lögum nr. 151/1996 um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, sbr. lög nr. 46/2019 . En til vara krafðist stefnandi viðurkenningardóms um að óheimilt hafi verið að takmarka sérstaklega heimildir félagsmanna hans til ráðstöfunar á slíkum aflaheimildum í B flokki samkvæmt tilgreindum ákvæðum í sömu breytingalögum nr. 46/2019. Í báðum tilvikum taldi stefnandi að umrædd löggjöf færi í bága við jafnræði, atvinnufrelsi og tengd eignaréttindi félagsmanna hans, sbr. 1. mgr. 65. gr., og 75. gr., sbr. 72. gr. stjórnarskrár. Að mati dómsins var ekki fallist á að sýnt væri fram á það að umrædd löggjöf færi eins og á stóð í bága við framangreind stjórnarskrárákvæði og var stefndi því sýknaður.

...Árið 2009 gaf ráðherra út reglugerð nr. 283/2009 sem tók bæði til veiða innan og utan íslenskrar efnahagslögsögu og sem setti takmarkanir á leyfilegan heildarafla í makríl. Í reglugerðinni...

Hæstiréttur birt 6. desember 2018

509/2017

Ísfélag Vestmannaeyja hf (Stefán A. Svensson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson lögmaður)

Í málinu krafðist ÍV hf. viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í vegna fjártjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir með því að fiskiskip hans hefðu á grundvelli reglugerða verið úthlutað minni aflaheimildum í makríl árin 2011 til 2014 en skylt hefði verið samkvæmt lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða og lögum nr. 151/1996 um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reisti ÍV hf. kröfu sína á því að skylda til svokallaðrar hlutdeildarsetningar makrílstofnsins hefði verið orðin virk þegar umræddar úthlutanir fóru fram, aðallega samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 151/1996 en til vara samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laga nr. 116/2006, og hefði borið að úthluta aflaheimildunum á þeim grunni. Varnir Í lutu að því að úthlutun aflaheimilda til ÍV hf. umrædd ár hefði að öllu leyti verið í samræmi við lög nr. 151/1996, 116/2006 og lög nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og reglugerðir settar samkvæmt þeim um veiðar á makríl. Í því sambandi vísaði Í meðal annars til 5. mgr. 4. gr. laga nr. 151/1996, sem veitti ráðherra sérstaka heimild til að setja reglur um stjórn veiða, þegar Ísland hefði nýtt rétt til að mótmæla samþykktum um fiskveiðistjórnun, sem gerðar hefðu verið á grundvelli samnings sem Ísland væri aðili að. Í dómi Hæstaréttar kom fram að niðurlagsákvæði 5. mgr. 4. gr. laga nr. 151/1996 væri fortakslaust um það að þegar ráðherra setti sérstakar reglur um stjórn veiða íslenskra skipa á grundvelli þess ákvæðis giltu ákvæði 5. og 6. gr. laganna eftir því sem við gæti átt. Var því lagt til grundvallar að með reglugerðum þeim, sem ráðherra hefði sett um makrílveiðar íslenskra skipa innan og utan íslenskrar lögsögu á árunum 2008 til 2014, hefði í skilningi 2. mgr. 5. gr. laga nr. 151/1996 verið tekin ákvörðun um að takmarka heildarafla úr makrílstofninum. Þá var talið að veiðireynsla í makríl hefði verið orðin samfelld árið 2011 þar sem ársafli íslenskra skipa úr makrílstofninum hefði að minnsta kosti þrisvar á undangengnum sex almanaksárum fyrir árið 2011 svarað til að minnsta kosti þriðjungs þess heildarafla sem til ráðstöfunar var af hálfu íslenskra stjórnvalda það ár. Af því leiddi að við úthlutun aflaheimilda í makríl árið 2011 hefði verið skylt að ákvarða aflahlutdeild fiskiskipa ÍV hf. í samræmi við 2. mgr. 5. gr. laga nr. 151/1996, en það hefði ekki verið gert og ÍV hf. úthlutað minni aflahlutdeildum en hann ætti rétt til. Var viðurkenningarkrafa ÍV hf. því tekin til greina.

...mars 2009 út reglugerð nr. 283/2009 um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2009. Í 1. gr. hennar sagði að öllum fiskiskipum sem hefðu leyfi til veiða í atvinnuskyni í...

Hæstiréttur birt 6. desember 2018

508/2017

Huginn ehf (Stefán A. Svensson lögmaður, Heiðrún Lind Marteinsdóttir lögmaður, 4. prófmál) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson lögmaður)

Í málinu krafðist H ehf. viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í vegna fjártjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir með því að fiskiskip hans hefði á grundvelli reglugerða verið úthlutað minni aflaheimildum í makríl árin 2011 til 2014 en skylt hefði verið samkvæmt lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða og lögum nr. 151/1996 um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reisti H ehf. kröfu sína á því að skylda til svokallaðrar hlutdeildarsetningar makrílstofnsins hefði verið orðin virk þegar umræddar úthlutanir fóru fram, aðallega samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 151/1996 en til vara samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laga nr. 116/2006, og hefði borið að úthluta aflaheimildunum á þeim grunni. Varnir Í lutu að því að úthlutun aflaheimilda til H ehf. umrædd ár hefði að öllu leyti verið í samræmi við lög nr. 151/1996, 116/2006 og lög nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og reglugerðir settar samkvæmt þeim um veiðar á makríl. Í því sambandi vísaði Í meðal annars til 5. mgr. 4. gr. laga nr. 151/1996, sem veitti ráðherra sérstaka heimild til að setja reglur um stjórn veiða, þegar Ísland hefði nýtt rétt til að mótmæla samþykktum um fiskveiðistjórnun, sem gerðar hefðu verið á grundvelli samnings sem Ísland væri aðili að. Í dómi Hæstaréttar kom fram að niðurlagsákvæði 5. mgr. 4. gr. laga nr. 151/1996 væri fortakslaust um það að þegar ráðherra setti sérstakar reglur um stjórn veiða íslenskra skipa á grundvelli þess ákvæðis giltu ákvæði 5. og 6. gr. laganna eftir því sem við gæti átt. Var því lagt til grundvallar að með reglugerðum þeim, sem ráðherra hefði sett um makrílveiðar íslenskra skipa innan og utan íslenskrar lögsögu á árunum 2008 til 2014, hefði í skilningi 2. mgr. 5. gr. laga nr. 151/1996 verið tekin ákvörðun um að takmarka heildarafla úr makrílstofninum. Þá var talið að veiðireynsla í makríl hefði verið orðin samfelld árið 2011 þar sem ársafli íslenskra skipa úr makrílstofninum hefði að minnsta kosti þrisvar á undangengnum sex almanaksárum fyrir árið 2011 svarað til að minnsta kosti þriðjungs þess heildarafla sem til ráðstöfunar var af hálfu íslenskra stjórnvalda það ár. Af því leiddi að við úthlutun aflaheimilda í makríl árið 2011 hefði verið skylt að ákvarða aflahlutdeild fiskiskipa H ehf. í samræmi við 2. mgr. 5. gr. laga nr. 151/1996, en það hefði ekki verið gert og H ehf. úthlutað minni aflahlutdeildum en hann ætti rétt til. Var viðurkenningarkrafa H ehf. því tekin til greina.

...mars 2009 út reglugerð nr. 283/2009 um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2009. Í 1. gr. hennar sagði að öllum fiskiskipum sem hefðu leyfi til veiða í atvinnuskyni í...