Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 9. gr. laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga
Stefndi sýknaður af kröfum A, umsækjanda frá Filipseyjumum um dvalarleyfi og atvinnuleyfi á Íslandifrá greiðslu skaðabóta og miskabóta samtals að fjárhæð 7.323.350 kr. , krafa byggði á ágöllum á málsmeðferð hjá Útlendingastofnun. Ekki var fallist á að þeir ágallar hafi verið á málsmeðferð Útlendingastofnuna að stefnandi ætti rétt og miska- og skaðabótum.
A óskaði hælis á Íslandi og tók Ú í framhaldi af því málið til meðferðar. Óskaði Ú meðal annars upplýsinga frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna um aðstæður í heimalandi A, en tók ákvörðun um að synja umsókn A áður en svar barst. A kærði ákvörðunina til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, sem staðfesti hana. Talið var að bætt hafi verið að nokkru leyti úr annmarka á ákvörðun Ú við úrskurð ráðuneytisins, en þá hafði borist svar frá Flóttamannastofnuninni. Í svarinu komi þó fram að ekki væri útilokað að veita nákvæmari upplýsingar ef fyrirspurnin væri nákvæmari. Yrði að líta svo á að þessar upplýsingar hafi verið aðgengilegar og því hafi þess ekki verið gætt að afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga svo sem skylt sé að gera samkvæmt 3. mgr. 50. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Hafi því verið brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Voru ákvörðun Ú, um að synja umsókn A um hæli, og úrskurður dóms- og kirkjumálaráðuneytisins sem staðfesti hana, felld úr gildi.
Með dóminum var felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar frá 19. júní 2006 um að synja umsókn stefnanda um hæli og neita honum um dvararleyfi og að honum skyldi vísað úr landi. Úrskurður dómsmálaráðuneytisins frá 10. janúar 2007, þar sem ákvörðun Útlendingastonunar var staðfest, var einnig felldur úr gildi. Á báðum stigum stjórnsýslunnar hafði þess ekki verið gætt að afla fullnægjandi upplýsinga um aðstæður stefnanda sjálfs í heimalandinu áður en ákvörðun var tekin. Með því var ekki farið að 10. gr. stjórnsýslulaga en samkvæmt þeirri lagagrein ber stjórnvaldi að sjá til þess að mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því.