Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

13 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 46. gr. a laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. október 2015

E-79/2015

Sergiy Sidor (Kristrún Elsa Harðardóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson hdl)

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu hælisleitanda um að felldur yrði úr gildi úrskurður þess efnis að hann yrði endursendur til Noregs á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Hæstiréttur birt 24. september 2015

84/2015

Tony Omos (Stefán Karl Kristjánsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)
Málaflokkur: Útlendingamál

Kærumál. Afhending gagna. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi. Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms, þar sem vísað var frá dómi máli á hendur A, meðal annars með skírskotun til þess að krafa sóknaraðila hafi verið nægjanlega skýr og afmörkuð til þess að héraðsdómara hafi verið unnt að taka afstöðu til hennar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. febrúar 2015

E-2753/2014

A (Áslaug Gunnlaugsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu hælisleitanda um að fella úr gildi úrskurð þess efnis að ekki yrði fjallað um hælisumsókn hans hér á landi heldur á Ítalíu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. febrúar 2015

E-2761/2014

A (Ívar Þór Jóhannsson hdl) gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Hafnað var kröfu stefnanda um að ógilda úrskurð innanríkisráðuneytisins og fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar, þess efnis að umsókn hans um hæli á Íslandi verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. febrúar 2015

E-2759/2014

A (Katrín Theodórsdóttir hdl) gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Hafnað var kröfu stefnanda um að ógilda úrskurð innanríkisráðuneytisins og fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar, þess efnis að umsókn hans um hæli á Íslandi verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.

Hæstiréttur birt 17. desember 2013

445/2013

Okoro Osahon (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

O, nígerískur ríkisborgari, krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður innanríkisráðuneytisins og felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar þar sem ákveðið var að umsókn hans um hæli á Íslandi yrði ekki tekin til meðferðar hér á landi og að hann skyldi endursendur til Ítalíu. Var ákvörðunin reist á d-lið 1. mgr. 46. gr. a. og a-lið 1. mgr. 32. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Í málinu lá fyrir að Ítalía hafði samþykkt að O yrði á grundvelli e-liðar 1. mgr. 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar fluttur aftur þangað, en O hafði áður sótt um hæli þar í landi en verið synjað. Byggði O umsókn sína um hæli hér á landi á atburðum sem hann kvað að hefðu átt sér stað í kjölfar þess að hann snéri aftur til Nígeríu frá Ítalíu. Í dómi Hæstaréttar sagði m.a. að líta yrði svo á að hælisumsókn O á Ítalíu og umsókn hans um hæli hér á landi væru eitt og sama málið. Var talið ljóst að fyrir hendi hefðu verið raunhæf úrræði fyrir O að leita réttar síns við meðferð málsins á Ítalíu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og að ekki hefði verið sýnt fram á að ítölsk yfirvöld myndu ekki veita O þá vernd sem áskilin væri í skuldbindingum þeirra á sviði mannréttinda, þar á meðal reglunni um að mönnum skuli ekki vísað brott þangað sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu. Þá taldi Hæstiréttur að þrátt fyrir að nokkrir ágallar væru á málsmeðferð og skilyrðum til móttöku hælisleitenda á Ítalíu yrði ekki talið að á Ítalíu væri fyrir hendi kerfisbundinn galli sem leiddi til þess að O stæði frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð þar í landi, yrði hann fluttur þangað. Stæði 45. gr. laga nr. 96/2002 því ekki í vegi að íslenskum stjórnvöldum væri með vísan til 46. gr. a. laganna heimilt að synja að taka umsókn O um hæli til efnismeðferðar. Þá var ekki fallist á með O að túlka bæri íslenska þýðingu Dyflinnarreglugerðarinnar með öðrum hætti en þá ensku að því er varðaði frest til flutnings hans til Ítalíu, en málsástæða hans um að ekki væri um að ræða „sjálfstæðan rétt til frestunar“ þegar ákvörðun væri tekin um málskot heldur yrði ráðherra að fresta réttaráhrifum í slíkum tilvikum, var talin of seint fram komin og kom hún því ekki til skoðunar fyrir Hæstarétti, sbr. 2. mgr. 163. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Loks var hvorki talið að rannsókn málsins hefði verið ófullnægjandi né að íslenskum stjórnvöldum hefði borið að taka til skoðunar hvort O uppfyllti skilyrði um veitingu dvalarleyfis af mannúðarástæðum. Var Í því sýknað af kröfu O.

Hæstiréttur birt 24. október 2013

405/2013

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Samuel, Eboigbe og Unuke (Ragnar Aðalsteinsson hrl)

S, nígerískur ríkisborgari, krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður innanríkisráðuneytisins og felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar þar sem ákveðið var að umsókn hans um hæli á Íslandi yrði ekki tekin til meðferðar hér á landi og að hann skyldi endursendur ásamt umsókn sinni til Svíþjóðar. Var ákvörðunin reist á d-lið 1. mgr. 46. gr. a. og a-lið 1. mgr. 32. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Í málinu lá fyrir að Svíþjóð hafði að beiðni Útlendingastofnunar samþykkt að S yrði á grundvelli e-liðar 1. mgr. 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar fluttur aftur þangað, en S hafði áður sótt um hæli þar í landi en verið synjað. Í dómi Hæstaréttar sagði m.a. að ekki hefði verið sýnt fram á að málsmeðferð í Svíþjóð vegna málefna hælisleitanda hefði verið haldin slíkum kerfislegum ágöllum að hún færi í bága við 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá hafði ekkert komið fram í málinu um að sænsk stjórnvöld myndu ekki veita S þá vernd sem áskilin væri í alþjóðlegum skuldbindingum Svíþjóðar á sviði mannréttinda, þar á meðal reglunni um „non-refoulement“ sem öll ríki Evrópusambandsins væru bundin af, yrði S sendur aftur til Svíþjóðar. Var því talið að 45. gr. laga nr. 96/2002 stæði því ekki í vegi að íslenskum stjórnvöldum væri með vísan til 46. gr. a. laganna heimilt að synja að taka umsókn S um hæli til efnismeðferðar. Þá var jafnframt talið að skilyrði undantekningarheimildar 2. mgr. 46. gr. a. væru ekki uppfyllt í málinu, þrátt fyrir að S hefði frá því í júlí eða ágúst 2012 átt í sambandi við íslenska konu, enda hafði hann ekki sýnt fram á að aðstæður hans væru að öðru leyti svo sérstakar að ákvæðið ætti við. Loks var ekki fallist á það með S að stjórnvöld hefðu brotið gegn 9. og 10. gr. stjórnsýslulaga við meðferð málsins. Var íslenska ríkið því sýknað af kröfu S.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. maí 2013

E-3271/2012

Samuel Eboigbe Unuke (Katrín Oddsdóttir hdl) gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hdl)

Felldur var úr gildi úrskurður innanríkisráðuneytisins þar sem ákveðið var að endursenda stefnanda til Svíþjóðar án þess að umsókn hans um hæli á Íslandi yrði tekin til meðferðar. Einnig var felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að fella niður framfærslu stefnanda.