Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

34 dómar fundust

Lagagrein: 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga

Landsréttur birt 20. ágúst 2020

515/2020

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Ásmundur Jónsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Lilja Margrét Olsen lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a- og b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála

Hæstiréttur birt 29. ágúst 2016

600/2016

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Lilja Margrét Olsen hdl)

Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, en X þess í stað gert að sæta farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008, sbr. b. lið 1. mgr. 95. gr. sömu laga.

Hæstiréttur birt 10. ágúst 2016

569/2016

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Guðmundur Þórir Steinþórsson fulltrúi) gegn X (Snorri Snorrason hdl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga.

Hæstiréttur birt 29. september 2014

635/2014

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson fulltrúi) gegn X (Leifur Runólfsson hdl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga og b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Hæstiréttur birt 22. september 2014

621/2014

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson fulltrúi) gegn X (Leifur Runólfsson hdl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga og b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Hæstiréttur birt 16. september 2014

606/2014

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi) gegn X (Leifur Runólfsson hdl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga og b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Hæstiréttur birt 14. maí 2014

327/2014

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson fulltrúi) gegn X (Leifur Runólfsson hdl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sbr. c. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í dómi Hæstaréttar kom fram að hvorki væri fullnægt skilyrðum c. né d. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til þess að X yrði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli þeirra laga. Þá var ekki talið að X hefði verið gert að dvelja á ákveðnu afmörkuðu svæði áður en látið var reyna á gæsluvarðhald, svo sem áskilið væri í 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.

Hæstiréttur birt 10. mars 2014

166/2014

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Hildur Sunna Pálmadóttir fulltrúi) gegn X (Hrefna Dögg Gunnarsdóttir hdl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu L um að X yrði gert að sæta gæsluvarðhaldi, en honum þess í stað bönnuð brottför af landinu um tiltekinn tíma. Málinu var vísað frá Hæstarétti þar sem kæran uppfyllti ekki áskilnað 2. mgr. 193. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Hæstiréttur birt 15. nóvember 2012

431/2012

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari) gegn Bilal Fathi (Ragnar Aðalsteinsson hrl)
Málaflokkur: Skjalafals

B var ákærður fyrir skjalafals með því að hafa í kjölfar komu sinnar til landsins framvísað við lögreglu í blekkingarskyni frönsku vegabréfi sem reyndist grunnfalsað. B játaði háttsemina en með vísan til 1. mgr. 31. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sem Ísland er aðili að, krafðist hann þess að sér yrði ekki gerð refsing. Ekki var talið að B hefði leitt að því viðhlítandi rök eða lagt fram gögn um að lífi hans eða frelsi væri ógnað í heimalandi hans þannig að hann teldist flóttamaður í merkingu 1. gr. samningsins sbr. og 1. og 2. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu B því staðfest. Hæstiréttur fann að því að B hefði ekki verið veitt réttarstaða sakbornings er „viðtalsskýrsla“ var tekin af honum þar sem hann hafði stöðu vitnis. Taldi Hæstiréttur að á því tímamarki hefði legið fyrir rökstuddur grunur um að B hefði með framvísun vegabréfsins gerst sekur um refsiverða háttsemi. Héraðsdómur yrði þó ekki ómerktur vegna þessa þar sem B hefði engin haldbær rök leitt að því að vörn hans í málinu hefði verið áfátt af þessum sökum.

Hæstiréttur birt 15. nóvember 2012

430/2012

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari) gegn Adam Aamer (Ragnar Aðalsteinsson hrl)
Málaflokkur: Skjalafals

A var ákærður fyrir skjalafals með því að hafa í kjölfar komu sinnar til landsins framvísað við lögreglu í blekkingarskyni frönsku vegabréfi sem reyndist grunnfalsað. A játaði háttsemina en með vísan til 1. mgr. 31. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sem Ísland er aðili að, krafðist hann þess að sér yrði ekki gerð refsing. Ekki var talið að A hefði leitt að því viðhlítandi rök eða lagt fram gögn um að lífi hans eða frelsi væri ógnað í heimalandi hans þannig að hann teldist flóttamaður í merkingu 1. gr. samningsins sbr. og 1. og 2. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu A því staðfest. Hæstiréttur fann að því að A hefði ekki verið veitt réttarstaða sakbornings er „viðtalsskýrsla“ var tekin af honum þar sem hann hafði stöðu vitnis. Taldi Hæstiréttur að á því tímamarki hefði legið fyrir rökstuddur grunur um að A hefði með framvísun vegabréfsins gerst sekur um refsiverða háttsemi. Héraðsdómur yrði þó ekki ómerktur vegna þessa þar sem A hefði engin haldbær rök leitt að því að vörn hans í málinu hefði verið áfátt af þessum sökum.

Hæstiréttur birt 4. september 2012

581/2012

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Óli Á. Hermannsson fulltrúi) gegn X (Unnar Steinn Bjarndal hdl)

X hafði framvísað fölsuðu vegabréfi og var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga og b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Aftur á móti þóttu ekki uppfyllt skilyrði a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Hæstiréttur birt 21. ágúst 2012

558/2012

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson fulltrúi) gegn X (Úlfar Guðmundsson hdl)

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sbr. 18. gr. laga nr. 86/2008, og a. og b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, var staðfestur.

Hæstiréttur birt 24. febrúar 2012

120/2012

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson fulltrúi) gegn X (Helga Vala Helgadóttir Bachmann hdl)

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 7. september 2011

S-969/2011

Ákæruvaldið (Óli Ásgeir Hermannsson ftr) gegn Rafal Raad Gamar AL-Sabee (Unnar Steinn Bjarndal hdl)
Lykilorð: Skjalafals.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærðu er gert að sæta fangelsi í 30 daga fyrir skjalafals.

Héraðsdómur Reykjaness birt 7. september 2011

S-968/2011

Ákæruvaldið (Óli Ásgeir Hermannsson ftr) gegn Ahmed Abdullah Atiyah AL-GBURI (Leifur Runólfsson hdl)
Lykilorð: Skjalafals.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærða er gert að sæta fangelsi í 30 daga fyrir skjalafals.

Hæstiréttur birt 3. september 2009

498/2009

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Setfán Karl Kristjánsson hdl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sbr. og 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga.

Hæstiréttur birt 17. september 2008

502/2008

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum gegn X (Ásbjörn Jónsson hdl)

Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, svo sem þeim var breytt með 18. gr. laga nr. 86/2008, þar sem ekki þóttu leiddar að því nægjanlegar líkur að X hefði gefið rangar upplýsingar um hver hann væri. Þá þóttu gögn málsins ekki fullnægjandi til að álykta með nægjanlegri vissu að af X stafaði slík hætta að nauðsynlegt væri að grípa til gæsluvarðhalds.

Hæstiréttur birt 12. ágúst 2008

440/2008

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum gegn X (Ásbjörn Jónsson hdl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 7. mgr. 29. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, svo sem þeim var breytt með 18. gr. laga nr. 86/2008, þar sem rökstuddur grunur var uppi um að hann hefði gefið rangar upplýsingar um hver hann væri.