Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 2. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Hæstiréttur birt 14. maí 2014

305/2014

Ægisgata 5, húsfélag (Magnús Björn Brynjólfsson hrl) gegn Reynaldi (Heiðar Örn Stefánsson hrl), Jónssyni (Ingvar Sveinbjörnsson hrl), Vátryggingafélagi (Hjörleifur Kvaran hrl) og Íslands hf (Kristbjörg Stephensen hrl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem vísað var frá dómi framhaldssök og sakaukasök Æ á hendur RJ o.fl., sökum þess að skilyrði 29. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og 19. gr. sömu laga væru ekki uppfyllt, svo og að þeir annmarkar væru á stefnu að ekki væri heldur fullnægt 1. mgr. 80. gr. laganna. Æ hafði höfðað skaðabótamál vegna tjóns sem varð á nýbyggingu í óveðri í Reykjavík í desember 2007 og var framhalds- og sakaukasök reist á því að Æ hefði vanmetið tjón sitt við málshöfðun aðalsakar. Í sakaukasök hafði Æ uppi auknar kröfur á hendur byggingarstjóra og ábyrgðartryggjanda hans, RJ og V hf., en í framhaldssök gerði hann kröfur á hendur húsasmíðameistara og ábyrgðartryggjanda hans, O og S hf., verkfræðingum sem komu að hönnun hússins og ábyrgðartryggjanda þeirra, B, Þ og T, og loks hlutaðeigandi sveitarfélagi, R.

Hæstiréttur birt 14. júní 2012

563/2011

Halldór J. Júlíusson (Óskar Sigurðsson hrl) gegn Sveitarfélaginu Álftanesi (Friðbjörn Eiríkur Garðarsson hrl)

Sveitarfélagið Á var sýknað af kröfu H um skaðabætur vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir er nýtt aðalskipulag sveitarfélagsins fyrir tímabilið 2005 til 2024 tók gildi þar sem ósannað þótti að H hefði orðið fyrir fjártjóni við gildistöku skipulagsins. Þá lá hvorki fyrir að sveitarfélagið hefði valdið H fjártjóni með saknæmri háttsemi er það synjaði hugmyndum H um hagnýtingu á landi hans undir byggingarlóðir né er honum var synjað um leyfi til að reisa þar einbýlishús.

Héraðsdómur Austurlands birt 24. nóvember 2008

Z-1/2008

Þráinn Sigurðsson (Magnús Helgi Árnason hdl) gegn Djúpavogshreppi (Bjarni Guðmundur Björgvinsson hdl)

D krafðist nauðungarsölu á fasteign í eigu Þ vegna vangoldinna fasteignagjalda en Þ krafðist þess að nauðungarsalan næði ekki fram að ganga þar sem hann hefði greitt fasteignagjöldin með yfirlýsingu um skuldajöfnuð við oftekin gatnagerðargjöld frá árinu 2001. Talið var að hugsanleg krafa hans um endurgreiðslu umræddra gatnagerðargjalda væri fyrnd og væri þegar af þeirri ástæðu ekki hægt að fallast á kröfu hans. Ákvörðun sýslumanns um að hafna mótmælum Þ við framgangi nauðungarsölunnar var því staðfest.