Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 145. gr. laga nr. 60/1998 — Lög um loftferðir
K höfðaði mál á hendur F ehf. og krafðist greiðslu kjarasamningsbundinna veikindalauna í 13 mánuði úr hendi F ehf. og viðurkenningar á því að hann skyldi njóta almennra frímiðaréttinda hjá F ehf. í tíu ár. Landsréttur vísaði til þess að K hefði verið í tímabundnu leyfi frá störfum F ehf. en að störfum hjá N þegar hann veiktist alvarlega svo að leiddi til missis starfsréttinda hans. Þá hafi K fengið óskert veikindalaun í 13 mánuði frá N. Því taldi Landsréttur að veikindaréttindi K gagnvart F ehf. hefðu ekki orðið virk á ný enda hafi legið fyrir að K myndi ekki geta komið aftur til starfa þar sem hann hefði misst starfsréttindi sín. Það sama ætti við um starfskjör K að öðru leyti, svo sem frímiðaréttindi.
Ágreiningur um veikindalaunarétt o.fl.
Ákæruvaldið (
Gunnar Örn Jónsson)
gegn
Einari Birni Ingvasyni og Margréti Bertu Valsdóttur (
Kristján Stefánsson hrl)
Maður og kona voru sakfelld fyrir þjófnaðarbrot og fíkniefnabrot. Maðurinn var sýknaður af ákæru fyrir brot á reglugerð um mannflutninga í loftförum, þar sem þeirri háttsemi sem ákærða var gefin að sök var ekki lýst í settum lögum. Refsing konunnar var ákveðin fangelsi í 1 mánuð, skilorðsbundið í tvö ár, auk þess sem henni var gert að greiða sekt, refsing mannsins var ákveðin 2 mánaða fangelsi.