Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

21 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (samningur Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðislegri misnotkun). nr. 58/2012

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. febrúar 2025

S-2907/2024

Málið nr. S-2907/2024 Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Karlmaður var sakfelldur fyrir framleiðslu, öflun og vörslur á þremur ljósmyndum sem sýndu annars vegar tölvugert "barn" og hins vegar raunverulegt barn á kynferðislegan hátt og gerð 100.000 króna fésektarrefsing. Ákærði var á hinn bóginn sýknaður af stærstum hluta sakarefnis, sem laut að myndatöku af kynlífsdúkkum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. nóvember 2024

S-5110/2023

Héraðssaksóknari (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Sigurði Sigurjónssyni (Skúli Hansen lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Maður sakfelldur og dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir kynferðisbrot og barnaverndarlagabrot með því að hafa tekið þrjár myndir af kynfærum og rassi sofandi drengs og sent þær til fullorðins einstaklings sem hann átti í samskiptum við á WhatsApp. Drengnum voru sömuleiðis dæmdar miskabætur.

Landsréttur birt 11. október 2019

310/2019

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Gunnsteini M. Þorsteinssyni Löve (Flosi Hrafn Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

G var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum með því að hafa í fimm tilgreind skipti ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og sviptur ökurétti, þar af tvisvar sinnum jafnframt undir áhrifum slævandi lyfja. Með hliðsjón af sakaferli G og 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og í samræmi við dómvenju var refsing hans ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 22. nóvember 2016

S-140/2016

Ákæruvaldið (Stefanía G. Sæmundsdóttir saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ungur karmaður sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára gamalli stúlku. Refsing ákveðin 15 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár. Ákærða gert að greiða stúlkunni 600 þúsund krónur í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. nóvember 2016

S-141/2016

Ákæruvaldið (Stefanía G. Sæmundsdóttir saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Karmaður sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára gamalli stúlku. Ákærði sýknaður að hluta. Refsing ákveðin 9 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Ákærða gert að greiða stúlkunni 500 þúsund krónur í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 22. september 2016

S-142/2016

Ákæruvaldið (Stefanía G. Sæmundsdóttir saksóknari) gegn X (Arnar Þór Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ungur karlmaður, sem játaði sök, sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára gamalli stúlku. Refsing ákærða lækkuð með heimild í 2. málslið 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga þar sem talið var að ákærði og brotaþoli hefðu verið á svipuðum aldri og þroskastigi í skilningi tilvitnaðs ákvæðis. Refsing ákærða ákveðin 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þá var ákærði dæmdur til að greiða brotaþola 300 þúsund krónur í miskabætur, auk vaxta og dráttarvaxta.

Hæstiréttur birt 17. desember 2015

366/2015

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Hæstiréttur birt 29. janúar 2015

45/2014

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Magnús Hrafn Magnússon hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var ákærður fyrir brot gegn 1. mgr. 210. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa haft í vörslum sínum á hörðum diski 11 hreyfimyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. X neitaði sök og bar því við að myndskeiðin hefðu slæðst þar inn með öðru myndefni sem hann hefði hlaðið niður án þess að hann hafi orðið þess var. Í dómi héraðsdóms kom fram að þegar litið væri til fyrirliggjandi sönnunargagna og þess að einungis væri um 11 myndskeið að ræða, sem vistuð væru í einni og sömu möppunni, innan um mikið magn annars efnis, þætti gegn eindreginni neitun X ekki hafið yfir skynsamlegan vafa að skilyrði 1. mgr. 210. gr. a. um ásetning væru uppfyllt. Var X því sýknaður. Fyrir Hæstarétti var því meðal annars haldið fram af hálfu ákæruvaldsins að það mat héraðsdóms, að framburður X hefði verið trúverðugur, væri rangt þar sem skilja yrði framburð hans hjá lögreglu þannig að hann hefði viðurkennt að hafa afritað myndefni sem varðaði börn og sett í möppu á fyrrgreindum diski. Hæstiréttur taldi að þar sem X hefðu ekki verið kynntar þær sakargiftir, sem honum væru gefnar að sök, meðan á skýrslutöku hjá lögreglu stóð hefði skýrsla hans þar um sakarefnið takmarkað gildi, sbr. 1. mgr. 28. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Meðal annars af þeim sökum væri ekki ástæða til að ætla að mat héraðsdóms á sönnunargildi framburðar X væri rangt svo einhverju skipti um úrslit málsins. Þá var talið að niðurstöður matsmanns, sem var dómkvaddur eftir uppkvaðningu héraðsdóms, væru ekki svo afgerandi að því yrði slegið föstu á grundvelli þeirra að X hefði gerst sekur um að hafa brotið af ásetningi gegn 1. mgr. 210. gr. a. almennra hegningarlaga. Með vísan til þessa og forsendna héraðsdóms að öðru leyti var niðurstaða hans staðfest.

Hæstiréttur birt 8. maí 2014

147/2014

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn Hjálmari Forna Poulsen (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) (Einar Gautur Steingrímsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

H var sakfelldur fyrir kynferðisbrot með því að hafa tælt A, sem þá var 15 ára, til að hafa við sig kynferðismök með því að gefa honum vilyrði fyrir bifhjóli að launum fyrir þau. Ljóst þótti að H hefði notfært sér yfirburði aldurs, reynslu og þroska í því skyni að tæla A til kynferðismakanna. Þá var H einnig sakfelldur fyrir að hafa í vörslu sinni hreyfimynd sem sýndi barn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Var háttsemi H talin varða við 3. mgr. 202. gr. og 1. mgr. 210. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við ákvörðun refsingar var litið til alvarleika brots hans gagnvart A, en að auki að hann hefði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi, hann hefði verið ungur að aldri er brotið var framið og rannsókn málsins hefði dregist nokkuð. Var refsing H ákveðin fangelsi í sex mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var H gert að greiða A 600.000 krónur í miskabætur og sæta upptöku á fartölvu.

Héraðsdómur Vesturlands birt 10. apríl 2014

S-12/2014

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Lykilorð: Kynferðisbrot.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Maður sakfelldur fyrir kynferðisbrot með því að hafa haft í vörslum sínum myndir, er sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 3. apríl 2014

S-10/2014

Ríkissaksóknari (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn Svanberg Rúnari Lárussyni I
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur barnakláms og dæmdur í skilorðsbundið fangelsi.

Hæstiréttur birt 21. nóvember 2013

548/2013

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) (Einar Gautur Steingrímsson hrl) (Björgvin Jónsson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr., 199. gr., 2. mgr. 202. gr., 1. mgr. 206. gr., 209. gr., 3. mgr. 210. gr., 1. mgr. 210. gr. a, áður 4. mgr. 210. gr. og 2. mgr. 210. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 auk tilraunar til brota gegn 199. gr., 2. mgr. 202. gr. og 209. gr. almennra hegningarlaga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga, með nánar tilgreindri háttsemi gegn tólf stúlkum og fyrir vörslur á barnaklámi. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að X hefði ekki áður gerst brotlegur við lög. Brot hans hefðu mörg og hefðu mörg þeirra verið til þess fallin að hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar, en margar stúlknanna voru mjög ungar þegar brotin áttu sér stað. Var talið að X hefði þannig haft yfirburðastöðu í aldri og þroska í samskiptum við þær og hefði hann nýtt sér þá stöðu. Þá var einnig litið til þess að þegar X framdi alvarlegasta brotið hefði hann aðeins verið 16. ára að aldri. Að þessu virtu og með vísan til 1., 2., 6. og 7. töluliða 1. mgr. 70. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga var refsing X ákveðin fangelsi í 4 ár og 6 mánuði. Þá var X gert að sæta upptöku á tölvu auk þess sem honum gert að greiða stúlkunum miskabætur.

Hæstiréttur birt 24. janúar 2013

335/2012

Ákæruvaldið gegn Vali, Brynjari og Andersen (Björn Jóhannesson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

V var ákærður fyrir að hafa áreitt kynferðislega tvær fjórtán ára stúlkur með því að hafa án vitneskju þeirra tekið ljósmyndir af þeim nöktum á ljósabekk á sólbaðsstofu, en í tilteknum fjölda tilvika hafi kynfæri þeirra sést þar greinilega. Voru brotin í ákæru talin voru varða aðallega við 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en til vara 209. gr. sömu laga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Hvorki var af orðalagi 2. mgr. 202. gr., sbr. 199. gr. almennra hegningarlaga né lögskýringargögnum um ákvæðin ráðið skýrlega að kynferðisleg áreitni gæti verið fólgin í háttsemi, sem sá, sem hún beindist að yrði ekki var við. Vafa um inntak 2. mgr. 202. gr. að þessu leyti yrði að meta ákærða í hag og voru brot hans því heimfærð undir 209. gr. almennra hegningarlaga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga. V var einnig ákærður fyrir að hafa haft fyrrgreindar ljósmyndir ásamt afritum þeirra í sínum vörslum. Var V vegna þeirrar háttsemi sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 210. gr. a. almennra hegningarlaga. Refsing V var, að virtum 78. gr., 60. gr. og 77. gr., ákveðin fangelsi í fimm mánuði, en hann hafði áður gerst sekur um brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga og rauf skilorð eldri dóms með vörslu fyrrgreindra ljósmynda.