Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lykilorð: Peningafölsun
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson saksóknari)
gegn
Inga Sigurði Svanssyni (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir nettælingu, sbr. 4. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga, og peningafölsun og dæmdur í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu bóta.
Héraðssaksóknari (
Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X, Andreeu-Efigeniu Feraru, Victor-Doru Niculau, Ion Calin og Y (
Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður)
Fjórir einstaklingar sakfelldir fyrir að nota falsaða evruseðla í viðskiptum með það einkum að markmiði að fá gjaldgengar íslenskar krónur í þeirra stað. Fimmti meðal ákærðu var sýknaður þar sem ekki taldist sannað að honum hefði verið ljóst að seðill sem hann notaði til að greiða fyrir veitingar væri falsaður.
Ákærði krefst aðallega sýknu af sakargiftum samkvæmt fyrri lið ákæru 13. mars 2008 en að dæmd verði vægasta refsing fyrir þá háttsemi sem lýst er í síðari lið ákærunnar. Til vara krefst ákærði að refsing verði milduð og jafnframt skilorðsbundin. Samkvæmt áfrýjunarstefnu er ákvæði héraðsdóms um upptöku fíkniefna ekki til endurskoðunar fyrir Hæstarétti. Stendur það ákvæði óraskað. Sakarferill ákærða er réttilega rakinn í héraðsdómi, er ákærði síbrotamaður eins og ferillinn ber með sér. Að gerðum þessum athugasemdum en ella með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms verður hann staðfestur. Ákærði verður dæmdur til að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns fyrir Hæstarétti sem ákveðin verða að meðtöldum virðisaukaskatti eins og nánar greinir í dómsorði.