Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

16 dómar fundust

Lagagrein: 124. gr. laga nr. 55/1987 — Tollalög

Hæstiréttur birt 1. febrúar 2007

395/2006

Íslenska ríkið (Óskar Thorarensen hrl) gegn Jónum Transporti hf (Lilja Jónasdóttir hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Á árinu 2001 kom í ljós hjá tollstjóra að skjöl um tollafgreiðslu sendingar, sem kom til landsins í febrúar 1999, fundust ekki og var því litið svo á að varan væri ótollafgreidd. Var J tilkynnt um að sem rekstraraðila tollvörugeymslu og flutningsaðila sendingarinnar bæri hann ábyrgð á greiðslu aðflutningsgjalda og yrðu þau áætluð með vísan til 4. mgr. 97. gr. tollalaga nr. 55/1987. J var ósáttur við þessa ákvörðun enda taldi hann innflutning þennan vera tollfrjálsan þar sem um búslóð hefði verið að ræða, sbr. 4. tölul. 5. gr. tollalaga. Hann innti greiðsluna þó af hendi með fyrirvara í nóvember 2002. Í niðurstöðu héraðsdóms, sem staðfest var í Hæstarétti, segir að tollayfirvöldum hefði verið heimilt að áætla aðflutningsgjöld þegar fullnægjandi gögn skorti til að byggja ákvörðun slíkra gjalda á. Það leiddi þó af meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að tollayfirvöldum bæri að beita slíkri heimild þannig að eigi væri gengið lengra í áætlun en nauðsynlegt væri. Í ljósi gagna sem síðar voru lögð fram, auk framburðar vitna fyrir dómi, lá að mati dómsins fyrir að innihald sendingarinnar hefði verið búslóð og því tollfrjáls. Var Í því gert að endurgreiða J þá fjárhæð sem hann hafði áður innt af hendi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 7. apríl 2006

S-91/2006

Ákæruvaldið (Sævar Lýðsson fulltrúi) gegn Telst þetta varða við 1. mgr. 123. gr., sbr. 124. gr. og 135. gr. tollalaga nr. 55/1987, sbr. 20. gr. tollalaga, sbr. 9. gr. laga nr. 69/1996, sbr. 1., 2. og 10. gr. reglugerðar um tollmeðferð vara sem ferðamenn og farmenn hafa með sér við komu til landsins nr. 526/2000, sbr. reglugerð nr. 13/2002.“, Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og að honum verði gert að sæta upptöku á framangreindum varningi, Ákærði krefst þess aðallega sýknu af refsikröfu ákæruvalds, en til vara að honum verði einungis gerð vægasta refsing sem lög leyfa. Þá er þess krafist að upptökukröfu verði hafnað og I (Anna Linda Bjarnadóttir hdl)
Lykilorð: Tolllagabrot.
Málaflokkur: Skattaréttur

K var sakfelldur fyrir tollalagabrot, en við leit í farangri hans við komu til Keflavíkurflugvallar fundust skartgripir og annar varningur sem hann taldist ekki hafa framvísað með tilskildum hætti. Var K gert að greiða 800.000 krónur í sekt og haldlagður varningur gerður upptækur.

Hæstiréttur birt 10. apríl 2003

570/2002

Ákæruvaldið (Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari) gegn X (Kristján Stefánsson hrl)
Lykilorð: Tollalagabrot. Upptaka.
Málaflokkur: Skattaréttur

X var ákærður fyrir tollalagabrot með því að hafa keypt áfengi sem hann hafi vitað að væri ólöglega innflutt og vopnalagabrot með því að eiga haglabyssu án þess að hafa öðlast skotvopnaleyfi. Fundust 238 lítrar af áfengi, sem var í 19 og 25 lítra plastbrúsum, í bifreið X, en haglabyssan á heimili hans. Enda þótt umbúnaður áfengisins og magn þess benti ekki til þess að um væri að ræða löglegan varning sem væri ætlaður til einkaneyslu var ekki talin fram komin næg sönnun að um væri að ræða ólöglegan innflutning á áfengi. Þar sem X var aðeins ákærður fyrir brot gegn tollalögum en ekki áfengislögum sýknaði héraðsdómur hann af þessum hluta ákærunnar og hafnaði kröfur ákæruvalds um upptöku á áfenginu. Hins vegar dæmdi héraðsdómur X til að greiða sekt í ríkissjóð fyrir vopnalagabrotið. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um meint brot X gegn tollalögum, en þeim þætti málsins sem laut að broti X á vopnalögum var ekki áfrýjað til Hæstaréttar.

Hæstiréttur birt 27. janúar 2000

442/1999

N, r. 442 /1999 og Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Jóni Guðmundi Magnússyni (Jóhannes Albert Sævarsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

J var ákærður fyrir tollalagabrot með því að hafa sem skipstjóri flutningaskipsins H borið ábyrgð á ólögmætum innflutningi á áfengi með skipinu, sem eigandi hafði ekki fundist að. Ekkert var fram komið um að J hefði verið kunnugt um áfengið, er skipið kom til landsins, og var eingöngu á því byggt af hálfu ákæruvaldsins, að J bæri hlutlæga refsiábyrgð samkvæmt 3. mgr. 123. gr. tollalaga nr. 55/1987, sbr. 124. gr. sömu laga. Að virtum fyrri málslið 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og fyrri málslið 1. mgr. 7. gr. samnings um verndun mannréttinda og mannfrelsis, sbr. lög nr. 62/1994 um mannréttindasáttmála Evrópu, var talið, að undantekningar frá þeirri meginreglu refsiréttar, að refsiábyrgð yrði aðeins byggð á sök brotamanns, yrðu að vera skýrt orðaðar í lögum. Talið var, að ekki kæmi skýrlega fram í 3. mgr. 123. gr. laga nr. 55/1987, að stjórnandi fars bæri hlutlæga refsiábyrgð og í 124. gr. laganna kæmi heldur ekki fram að refsiábyrgð gæti byggst á hlutlægum grunni. Af athugasemdum við frumvarp til tollalaga og forsögu framangreindra ákvæða þótti ekki verða ráðið með ótvíræðum hætti, að stjórnandi fars bæri hlutlæga ábyrgð ef eigandinn fyndist ekki eða refsiábyrgð hans væri reist á öðrum grundvelli en annarra. Var 3. mgr. 123. gr. laga nr. 55/1987 ekki talin fela í sér nægilega skýra refsiheimild til þess að sakfella J fyrir tollalagabrot, sem ekkert lá fyrir um að hann hefði átt hlut að, og var hann því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.

Hæstiréttur birt 12. mars 1999

99/1999

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Karl Georg Sigurbjörnsson hdl)

X, skipverji á ms. Goðafossi, var grunaður um brot gegn 123. og 124. gr. tollalaga nr. 55/1987 og 4. sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998, með því að hafa smyglað til landsins miklu magni af áfengi, tóbaki og fleiru. Talið var að skilyrði a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, væri fullnægt til að staðfesta mætti úrskurð héraðsdóms um að X sætti gæsluvarðhaldi.

Hæstiréttur birt 12. mars 1999

110/1999

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Páll Arnór Pálsson hrl)

X, skipverji á ms. Goðafossi, var grunaður um brot gegn 123. og 124. gr. tollalaga nr. 55/1987 og 4. sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998, með því að hafa smyglað til landsins miklu magni af áfengi, tóbaki og fleiru. Talið var að skilyrði a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, væri fullnægt til að staðfesta mætti úrskurð héraðsdóms um að X sætti gæsluvarðhaldi.

Hæstiréttur birt 12. mars 1999

109/1999

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Tómas Jónsson hrl)

X, skipverji á ms. Goðafossi, var grunaður um brot gegn 123. og 124. gr. tollalaga nr. 55/1987 og 4. sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998, með því að hafa smyglað til landsins miklu magni af áfengi, tóbaki og fleiru. Talið var að skilyrði a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, væri fullnægt til að staðfesta mætti úrskurð héraðsdóms um að X sætti gæsluvarðhaldi.

Hæstiréttur birt 12. mars 1999

108/1999

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Steinar Þór Guðgeirsson hdl)

X, skipverji á ms. Goðafossi, var grunaður um brot gegn 123. og 124. gr. tollalaga nr. 55/1987 og 4. sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998, með því að hafa smyglað til landsins miklu magni af áfengi, tóbaki og fleiru. Talið var að skilyrði a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, væri fullnægt til að staðfesta mætti úrskurð héraðsdóms um að X sætti gæsluvarðhaldi.

Hæstiréttur birt 12. mars 1999

107/1999

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Jóhannes Albert Sævarsson hdl)

X, skipverji á ms. Goðafossi, var grunaður um brot gegn 123. og 124. gr. tollalaga nr. 55/1987 og 4. sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998, með því að hafa smyglað til landsins miklu magni af áfengi, tóbaki og fleiru. Talið var að skilyrði a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, væri fullnægt til að staðfesta mætti úrskurð héraðsdóms um að X sætti gæsluvarðhaldi.

Hæstiréttur birt 12. mars 1999

106/1999

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hdl)

X, skipverji á ms. Goðafossi, var grunaður um brot gegn 123. og 124. gr. tollalaga nr. 55/1987 og 4. sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998, með því að hafa smyglað til landsins miklu magni af áfengi, tóbaki og fleiru. Talið var að skilyrði a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, væri fullnægt til að staðfesta mætti úrskurð héraðsdóms um að X sætti gæsluvarðhaldi.

Hæstiréttur birt 12. mars 1999

104/1999

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Kristján Stefánsson hrl)

X, skipverji á ms. Goðafossi, var grunaður um brot gegn 123. og 124. gr. tollalaga nr. 55/1987 og 4. sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998, með því að hafa smyglað til landsins miklu magni af áfengi, tóbaki og fleiru. Talið var að skilyrði a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, væri fullnægt til að staðfesta mætti úrskurð héraðsdóms um að X sætti gæsluvarðhaldi.

Hæstiréttur birt 12. mars 1999

101/1999

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Kristinn Bjarnason hrl)