Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
8 dómar fundust
Lagagrein: 63. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
K var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. og 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa án heimildar og í blekkingarskyni límt falsaðan skoðunarmiða á skráningarmerki og sett þau á bifreið sem hafði önnur skráningarmerki. Í dómi Landsréttar kom fram að hvort sem bifreiðinni hefði verið ekið eða ekki hefði tilvist merkjanna og miðanna gefið þá röngu mynd að merkin væru á réttri bifreið og að heimilt hefði verið að aka henni. Yrði af þeim sökum að líta svo á að merkin og miðarnir hefðu verið til þess fallnir að blekkja í lögskiptum í skilningi framangreindra ákvæða almennra hegningarlaga. Með vísan til framburðar K fyrir Landrétti var talið að hann hefði haft ásetning til að nota merkin og miðana til blekkingar í lögskiptum. Við ákvörðun refsingar var litið til 3. mgr. 155. gr. og 2. og 3. töluliðar 1. mgr. 70. gr. hegningarlaga og að K hefði ekki áður sætt refsingu. Var refsing hans ákveðin 150.000 króna sekt.
Lögreglustjórinn á Austurlandi (
Helgi Jensson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kristjáni Sigurði Kristjánssyni (
Sigmundur Hannesson lögmaður)
Sakfellt fyrir skjalabrot.
X var dæmdur til að greiða sekt fyrir brot gegn umferðarlögum og ófullnægjandi vörslu graðneyta. Sýknu að hluta, Z var sýknaður alfarið.
Ákæruvaldið (Guðmundur Þórir Steinþórsson saksóknarfulltrúi) gegn
Eduards Naglis
Ákærði var sakfelldur fyrir skjalabrot, umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Honum var gerður hegningarauki við dóm frá árslokum 2015 og var refsing þess dóms tekin upp og ákærða nú dæmd refsing í einu lagi. Refsing hans þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði, skilorðsbundið til eins árs. Þá var ákærði jafnframt sviptur ökurétti í þrjú ár frá dómsbirtingu að telja og var dæmdur til að sæta upptöku fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Kristín Þórðardóttir fulltrúi)
gegn
Konráði Helga Haraldssyni (
Guðmundur Jónsson hdl)
Skjalabrot.
Ákæruvaldið (
Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri)
gegn
Atla Ívari Guðmundssyni (
Bjarni Hauksson hrl)
Ákærði sakfelldur fyrir of hraðan akstur á bifhjóli auk annarra umferðarlagabrota. Ákærði sviptur ökurétti. Kröfu um upptöku bifhjóls hafnað.
Ákæruvaldið (
Ragnheiður Harðardóttir vararíkissaksóknari)
gegn
Einari Þór Sigríðarsyni (
Halldór Helgi Backman hrl)
E var í fyrsta lagi gefið að sök að hafa í félagi við annan mann stolið bensíni úr tanki bifreiðar, í öðru lagi að hafa ekið bifreið án þess að hafa meðferðis ökuskírteini og í þriðja lagi að hafa haft eiturlyf í vörslum sínum. E var í héraði dæmdur í fangelsi í 11 mánuði, og var 10 mánaða skilorðsdómur dæmdur með. Héraðsdómara hafði hins vegar ekki verið kunnugt um að umræddur skilorðsdómur hafði áður verið dæmdur með. Brot E voru framin áður en hann hlaut 14 mánaða fangelsisdóm. Að því virtu og þegar litið var til þess að E játaði greiðlega brot sín var niðurstaða Hæstaréttar sú að E skyldi ekki gerð sérstök refsing fyrir framangreind brot.
Ákæruvaldið (
Sigríður Jósefsdóttir saksóknari)
gegn
Guðmundi Max Jónssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
G var dæmdur fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis og að hafa stofnað í hættu lífi eða heilsu fjölda fólks, með því að hafa ekið bifreiðinni inn í mannþröng og á ljósastaur með þeim afleiðingum að staurinn brotnaði og féll niður á gangstétt þar sem fólk var saman komið. Var G gerð fangelsisrefsing vegna þessa.