A var stöðvaður af lögreglu við akstur bifreiðar 15. nóvember 2018. Í lögregluskýrslu kom fram að grunur hefði vaknað um akstur undir áhrifum fíkniefna og var A handtekinn og færður á lögreglustöð. A var gert að sæta blóð- og þvagrannsókn og greindist umbrotsefni THC sem er í kannabis í þvagi hans. Seinna var rannsókn á máli A hætt. Höfðaði A málið til heimtu bóta vegna þvingunaraðgerða sem hann hafði verið beittur, bæði handtöku og líkamsrannsókn. Í dómi Landsréttar var rakið að með hliðsjón af 5. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar stæðu efnisrök til að beita bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála með lögjöfnun um handtöku A og jafnframt stæðu efnisrök til að beita bótareglunni og þá blóð- og þvagrannsókn sem A varð að sæta meðan hann var sviptur frelsi á grundvelli 2. mgr. 47. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Landsréttur vísaði til þess að skilyrðum 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 fyrir bótaábyrgð Í væri fullnægt. Aftur á móti komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að A hefði valdið eða stuðlað sjálfur að þeim aðgerðum lögreglu sem hann reisti kröfu sína á. Samkvæmt niðurlagi 2. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 þótti rétt að fella að öllu leyti niður bætur til A. Var því fallist á kröfu Í um sýknu af kröfu A.
Ákæruvaldið (Guðmundur Þ. Steinþórsson saksóknarfulltrúi) gegn
X
G var sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna og þannig verið óhæfur til að stjórna henni örugglega. Í ljósi sakaferils var G gert að sæta fangelsi í tvo mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.
Umferðarlög, fíkniefnaakstur, málskostnaður
X var sakfelldur fyrir líkamsárás gegn A með því að hafa ráðist að A og slegið hana, tekið höndum um háls hennar og sest klofvega ofan á brjóstkassa hennar með þeim afleiðingum að hún hlaut eymsli, marbletti, bólgur og sár víðsvegar um líkamann. Var háttsemin talin varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var X fundinn sekur um að hafa ekið bifreið ófær um að stjórna henni örugglega vegna neyslu ávana- og fíkniefna og brot gegn áfengislögum með því að hafa haft í vörslum sínum heimabrugg. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að árásin var tilefnislaus og hrottafengin og að A var sambýliskona X, en árásin hafði verið gerð við heimili þeirra og A ítrekað reynt að komast undan. Þá voru brot X tekin upp sem hegningarauki við sektargerð sem hann hafði hlotið vegna fyrri brots gegn áfengislögum. Vegna dráttar á meðferð málsins var refsing X á hinn bóginn ákveðin skilorðsbundið fangelsi í 3 mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti í 18 mánuði og gert að greiða 160.000 króna sekt.
Sakfellt fyrir fíkniefnaakstur.
Stefndi, íslenska ríkið, sýknað af kröfum stefnanda vegna ætlaðrar ólögmætrar sýnatöku í tengslum við rannsókn sakamáls.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson settur saksóknari)
gegn
Sigurði Ágústi Sigurðssyni (
Ragnar Aðalsteinsson hrl)
S var ákærður fyrir brot gegn 3., sbr. 2. mgr. 47. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með því að hafa neitað að láta lögreglu í té þvagsýni í þágu rannsóknar á ætluðu umferðarlagabroti hans. Í dómi Hæstaréttar kom fram að lögreglu hefði verið rétt við yfirheyrslu að gera ákærða grein fyrir því hvaða viðurlögum það kynni að varða ef hann léti ekki í té þvagsýni til rannsóknar og að þau kynnu að verða þyngri ef slíkt sýni yrði ekki gefið. Á hinn bóginn var ekki talið að ákærði losnaði undan refsiábyrgð á synjun sinni af þeirri ástæðu einni að honum hafi ekki verið veitta leiðbeiningar um þetta. Var S því sakfelldur fyrir ofangreint umferðarlagabrot og sviptur ökurétti samkvæmt 2. mgr. 102. gr. umferðarlaga.
Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X um að ákæruvaldinu yrði gert óheimilt að leggja fram í málinu niðurstöður rannsókna á þvag- og blóðsýnum, sem tekin voru við rannsókn málsins.
Ungur karlmaður sakfelldur fyrir þjófnað, eignaspjöll og umferðarlagabrot. Refsing ákveðin tveggja mánaða fangelsi, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var ákærði jafnframt sviptur ökurétti í eitt ár fyrir að neita að veita atbeina sinn við rannsókn máls á ætluðu broti hans fyrir akstur undir árhrifum ávana- og fíkniefna.