Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

12 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 47. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júní 2026 kl. 16:38

E-3533/2025

A (Grímur Már Þórólfsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

Íslenska ríkið var talið bera bótaábyrgð á grundvelli hlutlægrar bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 vegna handtöku og blóðsýnatöku sem stefnandi gekkst undir. Ekki var fallist á að hann hefði sjálfur valdið eða stuðlað að aðgerðum lögreglu þannig að rök stæðu til þess að fella niður eða lækka bætur til hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. maí 2025

E-7532/2023

A (Gunnar Gíslason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Lögregla stöðvaði stefnanda við reglubundið umferðareftirlit skv. umferðarlögum þar eð hann ók á ofsahraða. Fallist var á það að mál á hendur stefnanda hefði verið fellt niður í skilningi 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 þegar fíkniefnapróf sýndi að ekki mældust fíkniefni í þvagi hans. Einnig var fallist á að þegar stefnandi fylgdi lögreglunni á lögreglustöð til þess að gefa sýni vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna hefði hann verið handtekinn í skilningi 1. mgr. 90. gr. laga nr. 88/2008, sbr. dóm Landsréttar í máli nr. 363/2024. Það var einnig skilgreint sem líkamsrannsókn í skilningi 77. gr. sömu laga þegar stefnandi gaf lögreglu þvagsýni. Því var hins vegar hafnað að bifreið stefnanda hefði verið haldlögð enda voru ökuréttindi hans runnin út þegar lögregla stöðvaði hann. Stefnanda voru dæmdar miskabætur.

Landsréttur birt 12. desember 2024

363/2024

Íslenska ríkið (Þorvaldur Hauksson lögmaður) gegn A (Leó Daðason lögmaður)

A var stöðvaður af lögreglu við akstur bifreiðar 15. nóvember 2018. Í lögregluskýrslu kom fram að grunur hefði vaknað um akstur undir áhrifum fíkniefna og var A handtekinn og færður á lögreglustöð. A var gert að sæta blóð- og þvagrannsókn og greindist umbrotsefni THC sem er í kannabis í þvagi hans. Seinna var rannsókn á máli A hætt. Höfðaði A málið til heimtu bóta vegna þvingunaraðgerða sem hann hafði verið beittur, bæði handtöku og líkamsrannsókn. Í dómi Landsréttar var rakið að með hliðsjón af 5. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar stæðu efnisrök til að beita bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála með lögjöfnun um handtöku A og jafnframt stæðu efnisrök til að beita bótareglunni og þá blóð- og þvagrannsókn sem A varð að sæta meðan hann var sviptur frelsi á grundvelli 2. mgr. 47. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Landsréttur vísaði til þess að skilyrðum 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 fyrir bótaábyrgð Í væri fullnægt. Aftur á móti komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að A hefði valdið eða stuðlað sjálfur að þeim aðgerðum lögreglu sem hann reisti kröfu sína á. Samkvæmt niðurlagi 2. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 þótti rétt að fella að öllu leyti niður bætur til A. Var því fallist á kröfu Í um sýknu af kröfu A.

Héraðsdómur Suðurlands birt 16. september 2019

S-647/2019

Ákæruvaldið (Arndís Bára Ingimarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Kamil Bruszkiewicz (Helgi Bragason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði dæmdur fyrir fíkniefnabrot og umferðarlagabrot, þ.m.t. ölvunarakstur.Sýknaður af því að hafa neitað að veita atbeina sinn við rannsókn máls.

Landsréttur birt 29. nóvember 2019

220/2019

A (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður, Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður, 1. prófmál) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson lögmaður)

A höfðaði mál gegn Í og krafðist skaðabóta í kjölfar aðgerða lögreglu þegar hann var handtekinn og sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Í kjölfar sviptingarinnar var A vikið tímabundið úr starfi sínu sem ökumaður hópbifreiða á meðan málið væri til rannsóknar en málið var síðar fellt niður hjá lögreglu og bráðabirgðasviptingin felld úr gildi. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að A hefði starfað við akstur fólksflutningabifreiða í umrætt sinn og fíkniefnapróf sem tekið hefði verið af honum á vettvangi hefði gefið jákvæða niðurstöðu. Því hefði lögreglustjóri haft réttmæta ástæðu til að ætla að skilyrði ökuréttarsviptingar væru fyrir hendi, sbr. 103. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Þá var ekki talið að aðgerðir lögreglu hefðu falið í sér ólögmæta meingerð gegn frelsi, friði, æru eða persónu A, sem virða bæri honum til miskabóta á grundvelli b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Var Í því sýknað af kröfu A.

Landsréttur birt 8. júní 2018

81/2018

Ákæruvaldið gegn Ísmari Erni Steinþórssyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Í var sakfelldur í héraði fyrir tólf þjófnaðarbrot, hylmingu, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot. Fyrir Landsrétti var meðal annars deilt um það hvort Í hefði brotið gegn 47. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með því að hafa neitað að gefa þvagsýni við rannsókn málsins hjá lögreglu. Þá krafðist hann sýknu af þjófnaði á reiðhjóli sem hann hafði verið sakfelldur fyrir í héraði. Í dómi Landsréttar kom fram að ákærði losnaði ekki undan refsiábyrgð vegna synjunar sinnar af þeirri ástæðu að honum hafi ekki verið veittar leiðbeiningar um hvaða viðurlögum það kynni að varða ef hann léti ekki í té þvagsýni til rannsóknar, samanber dóm Hæstaréttar í máli nr. 304/2009. Enn fremur þótti sannað að Í hefði gerst sekur um að hafa stolið reiðhjólinu. Var héraðsdómur því staðfestur um sakfellingu Í. Við ákvörðun refsingar Í var litið til sakarferils hans auk þess sem tekið var tillit til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing Í ákveðin fangelsi í tólf mánuði auk þess sem áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting hans.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 4. maí 2017

S-192/2016

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn Ísmari Erni Steinþórssyni (Gísli M. Auðbergsson hrl)
Lykilorð: Hylming. Þjófnaður.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Karlmaður sakfelldur fyrir þjófnaðarbrot og hylmingarbrot, en einnig fyrir umferðarlagabrot. Sýknaður að hluta

Hæstiréttur birt 26. nóvember 2009

304/2009

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson settur saksóknari) gegn Sigurði Ágústi Sigurðssyni (Ragnar Aðalsteinsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var ákærður fyrir brot gegn 3., sbr. 2. mgr. 47. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með því að hafa neitað að láta lögreglu í té þvagsýni í þágu rannsóknar á ætluðu umferðarlagabroti hans. Í dómi Hæstaréttar kom fram að lögreglu hefði verið rétt við yfirheyrslu að gera ákærða grein fyrir því hvaða viðurlögum það kynni að varða ef hann léti ekki í té þvagsýni til rannsóknar og að þau kynnu að verða þyngri ef slíkt sýni yrði ekki gefið. Á hinn bóginn var ekki talið að ákærði losnaði undan refsiábyrgð á synjun sinni af þeirri ástæðu einni að honum hafi ekki verið veitta leiðbeiningar um þetta. Var S því sakfelldur fyrir ofangreint umferðarlagabrot og sviptur ökurétti samkvæmt 2. mgr. 102. gr. umferðarlaga.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 29. janúar 2009

S-71/2008

Ákæruvaldið (Jón Fannar Kolbeinsson fulltrúi) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ungur karlmaður sakfelldur fyrir þjófnað, eignaspjöll og umferðarlagabrot. Refsing ákveðin tveggja mánaða fangelsi, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var ákærði jafnframt sviptur ökurétti í eitt ár fyrir að neita að veita atbeina sinn við rannsókn máls á ætluðu broti hans fyrir akstur undir árhrifum ávana- og fíkniefna.

Hæstiréttur birt 30. október 2008

236/2008

Ákæruvaldið gegn Maríu Bergsdóttur (Jón Egilsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

M var ákærð fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis og fyrir brot gegn valdstjórninni. Fyrir Hæstarétti byggði M aðallega á því að hún hefði ekki notið réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi. Talið var að ekki yrði annað séð en að jafnræðis hefði verið gætt með málsaðilum við meðferð málsins fyrir héraðsdómi en ákærða hafði ekki gert grein fyrir þeim sönnunargögnum sem hún hefði farið á mis við að koma á framfæri, né hefði hún fært viðhlítandi rök fyrir því að héraðsdómari hefði tekið afstöðu gegn henni við meðferð málsins eða úrlausn þess. Í málinu hélt M því fram að hún hefði ekki verið ölvuð við aksturinn heldur drukkið áfengi eftir að hún missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði utan vegar. Talið var að unnt væri að skera úr um sakargiftir á hendur M á grundvelli tveggja blóðsýna sem tekin voru úr henni eftir slysið og væri því ekki þörf á að styðjast við mælingu á þvagsýni. Þyrfti því ekki að taka afstöðu til málatilbúnaðar ákærðu að þessu leyti. Í málinu lá fyrir álitsgerð sem benti til þess að etanól í blóði M hefði verið um 1,50‰ á þeim tíma, sem lögreglu var tilkynnt um umferðaróhappið og hefði styrkur þess þá verið fallandi, sem gæfi til kynna að áfengisneyslu hennar hefði lokið meira en klukkustund fyrr. Með vísan til niðurstöðu álitsgerðarinnar, þess að bifreiðin var enn heit er lögregla kom á staðinn og að ekkert vitni kannaðist við að hafa gefið ákærðu að drekka á vettvangi var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu M staðfest. Þá var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu M fyrir brot gegn valdstjórninni staðfest. Var talið að M hefði ekki getað dulist að lögreglu- og sjúkraflutningamenn hefðu í umrætt sinn verið að gegna skyldustörfum sínum. Með vísan til 60. gr. stjórnarskrárinnar hefði M ekki getað komið sér hjá því að hlýða yfirvaldsboði í bráð þótt hún teldi sig hafa ástæðu til að draga í efa að heimilt væri að ganga svo langt sem raun bar vitni við sýnatökuna, sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 387/1993. Var niðurstaða héraðsdóms um að M skyldi dæmd til 30 daga skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar og henni gerð 160.000 króna fésekt, auk sviptingar ökuréttar í eitt ár, staðfest.