Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lagagrein: 17. gr. laga nr. 47/2003 — Lög um eftirlit með skipum
Viðurkennd var bótaskylda varastefnda, útgerðarmanns, vegna líkamstjóns sem stefnandi hlaut í sjóslysi, þó þannig að stefnandi bar tjón sitt sjálfur að 1/3 hluta. Vátryggingafélag sem stefnt var aðallega var sýknað af dómkröfum stefnanda.
Ákæruvaldið (
Kristján Óskar Ásvaldsson fulltrúi)
gegn
Hauki Vagnssyni (
Snorri Sturluson hdl)
Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn siglingalögum, lögum um eftirlit með skipum, lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa og hótanir.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Jónasi Garðarssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
J var sakfelldur fyrir að hafa aðfararnótt 10. september 2005, sem skipstjóri skemmtibátsins Hörpu á siglingu með fjóra farþega, verið undir áhrifum áfengis við stjórn bátsins og ekki haft gát á siglingaleiðinni er siglt var í næturmyrkri og slæmu skyggni og hafa þannig með stórfelldri vanrækslu í skipstjórastarfi orðið valdur að því að báturinn steytti á Skarfaskeri með þeim afleiðingum að farþeginn X lést og farþeginn Y hlaut verulega áverka. Þá var hann sakfelldur fyrir að hafa ekki gert ráðstafanir til bjargar farþegum eftir að stórlega laskaður báturinn losnaði af skerinu um 20 mínútum eftir ásiglinguna, hvorki leitað aðstoðar björgunarliða né siglt skemmstu leið til lands, heldur tekið stefnu austur Viðeyjarsund þar sem bátnum hvolfdi skömmu síðar með þeim afleiðingum að farþeginn Z drukknaði en Y hlaut ofkælingu. Voru brot ákærða heimfærð undir 215. gr. og 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk 2. mgr. 6. gr., 11. gr., 1. mgr. 7. gr., sbr. 239. gr., 1. mgr. og 2. mgr. 238. gr. siglingarlaga nr. 34/1985. Fyrir Hæstarétt var lögð fram matsgerð tveggja lækna sem töldu að J hefði verið ófær um að hugsa rökrétt eða taka fulla ábyrgð á gerðum sínum í kjölfar ásiglingarinnar. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að matsmenn hafi ekki getað stutt niðurstöðu sína við beina skoðun eða rannsóknir á ákærða, enda hafi þeim verið falið að leggja mat á mjög skammvinnt tímabundið andlegt ástand hans eftir slysið, sem varð hálfu öðru ári áður en matið fór fram. Rýri þetta sjálfstætt gildi matsgerðarinnar mjög. Ekki þótti af gögnum málsins unnt að draga þá ályktun að J hefði verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum eftir ásiglinguna, sbr. 15. gr. almennra hegningarlaga, eða að hann hefði orðið fyrir slíkri truflun að 16. gr. laganna ætti við. Var niðurstaða héraðsdóms um 3 ára fangelsisrefsingu J staðfest. Þá var J dæmdur til greiðslu miskabóta tilhanda eftirlifandi foreldrum og börnum X og Z.
Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
Stefáni Jónasi Guðmundssyni (Mál nr. 18-2006-1006)
Skipstjóri sem sigldi skipi óhaffæru þar sem gildistími haffæriskírteinis var útrunninn var dæmdur til greiðslu sektar.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Jónasi Garðarssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
Skipstjóri dæmdur í 3 ára fangelsi fyrir stórfelld brot á almennum hegningarlögum og siglingarlögum með stórkostlegri vanrækslu við stjórn skemmtibáts, sem olli dauða tveggja farþega um borð og meiriháttar líkamsmeiðslum þess þriðja.