Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

9 dómar fundust

Lög: Lög um verslunaratvinnu nr. 28/1998

Landsréttur birt 24. mars 2023

84/2022

Ingimar Sigurðsson, I.B./Nýja bílahöllin ehf (Guðni Ásþór Haraldsson lögmaður) gegn Ideal Company ehf (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður)

Ágreiningur málsaðila sneri að viðskiptum með bifreið en þá greindi á um hvenær samningur komst á um kaup og sölu hennar og á milli hverra. Þá laut ágreiningur þeirra jafnframt að því hvort uppfyllt hafi verið skilyrði riftunar samningsins og um greiðslu skaðabóta vegna ætlaðra vanefnda hans. Í dómi Landsréttar var rakið að samkvæmt samskiptum aðila, sem lágu fyrir á meðal gagna málsins, væri ljóst að bindandi samningur um kaup og sölu bifreiðarinnar hafi komist á 26. nóvember 2019. Þá hafi fyrsta greiðsla kaupverðsins verið innt af hendi 6. desember sama ár með 1.500.000 króna innborgun IC ehf. á reikning N ehf. Með hliðsjón af atvikum, gögnum málsins og málatilbúnaði áfrýjenda, var hafnað málsástæðum þeirra um aðildarskort til sóknar og varnar. Þá var rakið að ekki hafi verið samið sérstaklega um gjalddaga greiðslna eða afhendingu bifreiðarinnar. Þótt IC ehf. hafi ekki greitt eftirstöðvar kaupverðsins innan þeirra tímamarka sem áfrýjendur settu fram einhliða, fælist ekki í því greiðsludráttur af hálfu IC ehf. Skilyrði riftunar samningsins hafi því ekki verið fyrir hendi er áfrýjendur tilkynntu IC ehf. að þeir hygðust selja bifreiðina þriðja aðila. Samningur málsaðila hafi því enn verið í gildi þegar bifreiðin var seld þriðja aðila degi síðar. Í sölu bifreiðarinnar til þriðja aðila hafi falist veruleg vanefnd áfrýjenda á samningi þeirra við IC ehf. Félagið teldist hafa rift samningnum 2. janúar 2020. Hafi áfrýjendum þá borið að endurgreiða IC ehf. þá fjárhæð sem greidd hafði verið inn á kaupverðið ásamt nánar tilgreindum dráttarvöxtum, en áfrýjendur voru ekki taldir hafa sýnt fram á að þeir hefðu öðlast rétt til að halda nokkru eftir af því sem móttekið var. Annað það sem áfrýjendur færðu fram til stuðnings sýknukröfu sinni í málinu var ekki talið geta haggað þeirri niðurstöðu. Samkvæmt framangreindu var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. janúar 2023

E-1247/2022

Ólafur Grímur Björnsson (Jón Örn Árnason lögmaður) gegn Fabrik ehf (Sveinn Guðmundsson lögmaður)

Stefnandi krafðist bóta úr hendi stefnda vegna sölu hins síðarnefnda á málverki í eigu stefnanda sem selt var fyrir milligöngu manns sem hafði verkið í vörslum sínum. Byggði stefnandi kröfur sínar á hendur stefnda á því að vörslumaður verksins hefði ekki haft heimild til þess að selja verkið og að stefni hefði, sem uppboðshaldari, vanrækt að afla heimildar eiganda verksins til sölunnar. Í dómi héraðsdóms var ekki talið sannað að stefnda hefði mátt vera ljóst að vörslumaður verksins hefði ekki verið eigandi þess eða skort heimild til sölunnar. Með vísan til þess og meginreglunnar um að vörslur lausafjármuna veittu líkindi fyrir því að viðkomandi ætti eignarrétt að hlutnum var talið að stefndi hefði með réttu mátt líta svo á að vörslumaðurinn væri eigandi verksins. Var kröfum stefnanda að því er varðaði hina meintu ólögmætu sölu stefnda á verkinu því hafnað. Á hinn bóginn var fallist á að stefnandi ætti rétt til bóta úr hendi stefnda vegna vanrækslu hins síðarnefnda á að upplýsa stefnanda um kaupanda verksins eftir að stefndi varð þess áskynja að verkið hafði verið selt í heimildarleysi. Var stefndi dæmdur til þess að greiða stefnanda bætur af þeim sökum sem nam hluta þess kostnaðar sem stefnandi hafði haft af því að afla upplýsinga um kaupanda verksins.

Hæstiréttur birt 30. apríl 2015

605/2014

Sverrir Þór Skaftason (Daníel Isebarn Ágústsson hrl) gegn Lýsingu hf, Þórhalli M. Kristjánssyni (Árni Ármann Árnason hrl) og Þórhallur M. Kristjánsson (Guðjón Ólafur Jónsson hrl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X ehf. var gert skylt að afhenda L allar upplýsingar, sem hann hafði undir höndum, um þrjú nánar tilgreind netföng sem X ehf. hýsti á tilteknu tímabili.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. maí 2009

E-2812/2008

Guðbjartur Ægir Ágústsson (Baldvin Hafsteinsson hrl) gegn Guðmundi Steinssyni og Einkabílasölunni ehf (Valgeir Kristinsson hrl)

Máli vísað frá dómi þar sem nauðsyn hafði borið til að málið væri höfðað í nafni stefnanda, en einnig í nafni eiganda þeirrar bifreiðar sem krafist var riftunar á sbr. samningsskilmála bílasamnings sem báðir aðila höfðu skrifað undir.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 3. september 2008

S-63/2008

Ákæruvaldið (Kristín Völundardóttir lögreglustjóri) gegn Elsayed Mohamed El S Abouraya (Tryggvi Guðmundsson hdl)
Lykilorð: Atvinnuréttindi.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn tollalögum, lögum um útlendinga, lögum um verslunaratvinnu og lögeglusamþykkt Ísafjarðarbæjar.

Hæstiréttur birt 25. janúar 2007

402/2006

Hilda R. Hansen (Björgvin Þorsteinsson hrl) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Hákon Árnason hrl)

H gaf fyrirsvarsmanni bifreiðasölu umboð til að selja bifreið sína. J keypti bifreiðina og til að fjármagna kaupin veitti V honum bílalán. V lagði andvirði lánsins inn á reikning fyrrnefndrar bifreiðasölu en bifreiðasalan kom greiðslunni hins vegar ekki til skila til H. Í kjölfarið krafðist H þess að V og bifreiðasölunni yrði in solidum gert að greiða sér skuld eða skaðabætur sem næmi þeirri fjárhæð sem bílalánið hljóðaði upp á. Krafa H á hendur bifreiðasölunni var tekin til greina. V var hins vegar sýknað af kröfu H í héraði og var sú niðurstaða staðfest í Hæstarétti. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að það sé lántakandi sem eigi aðild að kröfu sem reist sé á því að V hafi greitt lánsfé til rangs aðila. Þá hafi V mátt líta svo á að honum væri rétt að greiða lánsféð til bifreiðasölunnar enda væri ósannað að kaupandinn eða bifreiðasalinn hefðu gefið sérstök fyrirmæli um að ráðstafa skyldi lánsfénu á annan hátt en gert var.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 9. október 2006

S-53/2006

Ákæruvaldið (Kristín Völundardóttir sýslumaður) gegn Mohamed Ali Hassan Tantawy
Lykilorð: Leyfisskyld starfsemi.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

M var sektaður fyrir farandsölu án dvalar-, atvinnu- og farandsöluleyfa.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júlí 2006

E-2906/2005

Við fjöruborðið ehf (Helgi Bragason hdl) gegn Helgu Nínu Svavarsdóttur (Ólafur Thoroddsen hdl) og Bílasölunni Höfðahöllinni ehf (Kristín Edwald hrl)

Stefndu, seljandi og bifreiðasali, voru dæmdir til að greiða óskipt stefnanda skaðabætur vegna galla í bifreið. Bifreiðasalinn var talinn hafa vanrækt starfsskyldur sínar. Seljandi bar ábyrgð samkvæmt lögum um lausafjárkaup.