Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

12 dómar fundust

Lagagrein: 44. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 25. september 2008

S-225/2008

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn X (Árni Pálsson hrl)
Lykilorð: Þjófnaður.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað. Eldri dómur dæmdur upp, alls 2ja mánaða fangelsi skilorðsbundið

Hæstiréttur birt 5. maí 2008

219/2008

N, r. 219/2008 og Ríkissaksóknari (enginn) gegn Birni Ólafi Hallgrímssyni (sjálfur)

B var skipaður verjandi X við lögreglurannsókn sakamáls, en lét af þeim starfa áður en meðferð málsins lauk. Gerði hann kröfu um að héraðsdómari ákvarðaði honum þóknun vegna framangreindra starfa og var það gert. Kærði B ákvörðunina til Hæstaréttar og krafðist þess að þóknun hans yrði hækkuð. Talið var að ekki lægi fyrir að máli gegn X væri lokið í skilningi 1. og 2. ml. 1. mgr. 44. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála og hafi því ekki verið tímabært að kveða á um þóknun B með þeim hætti sem gert hafi verið. Var hin kærða ákvörðun því ómerkt.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 9. maí 2007

S-60/2006

Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Evu Caremu Melgar Rada (Þuríður Kristín Halldórsdóttir hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

E var ákærð fyrir að selja allt að 60 grömm af hassi á tilteknu tímabili og að hafa haft vörslur hass, hvort tveggja í félagi við J. Sakfellt var fyrir hlutdeild í sölu J en sýknað af sakargiftum um vörslur. Ákvörðun refsingar var frestað skilorðsbundið og 3/4 sakarkostnaðar felldir á ríkissjóð.

Hæstiréttur birt 8. mars 2007

589/2006

Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari) gegn Eduardo Useda Correa (Hilmar Ingimundarson hrl) (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir réttargæslumaður)
Lykilorð: Kynferðisbrot. Miskabætur.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

E var ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa þröngvað Y með ofbeldi til samræðis. Með vísan til þess að héraðsdómur hefði metið frásögn Y af atburðum trúverðuga og að hún fékk stoð í niðurstöðum DNA-rannsóknar, skýrslu um réttarlæknisfræðilega skoðun og framburði vitna var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu E fyrir brot gegn 194. gr. almennra hegningarlaga. Þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 2 ár og 6 mánuði og var hann jafnframt dæmdur til að greiða Y 700.000 krónur í miskabætur.

Héraðsdómur Suðurlands birt 7. mars 2007

S-494/2006

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn Þorláki Fannari Albertssyni (Hilmar Ingimundarson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Karlmaður sakfelldur fyrir líkamsárás og dæmdur til að greiða brotaþolum skaðabætur auk þess að greiða allan sakarkostnað. Ákærði rauf skilorð og var dæmdur í sex mánaða fangelsi en fimm mánuðir voru skilorðsbundnir til þriggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. nóvember 2006

S-1140/2006

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Sverri H. Valgeirssyni (Gizur Bergsteinsson hdl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás með því að hafa stungið mann fimm sinnum með hnífi. Refsing 12 mánaða fangelsi, þar af voru 9 mánuðir skilorðsbundnir til þriggja ára. Við ákvörðun refsingar var einkum litið til þess að atlagan var hættuleg og hending ein að ekki fór verr, en einnig var horft til þess að afleiðingarnar voru ekki alvarlegar. Veigamikil rök voru fyrir skilorðsbindingu refsingar að hluta. Þá var ákærði dæmdur til greiðslu skaðabóta.

Hæstiréttur birt 14. janúar 2005

506/2004

Sigurjón Sighvatsson (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn Byggingafélagi Búða ehf, Hótel Búðum ehf (Ólafur Haraldsson hrl) og þrotabúi Viktors H. Sveinssonar (Sveinn Andri Sveinsson hrl)

Kærumál. Gagnaöflun. Samlagsaðild. Málshöfðunarfrestur. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi að hluta. Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um frávísun á kröfum S á hendur þrotabúi V á þeim grunni að ekki hafi verið fyrir hendi lagaheimild til málshöfðunar á hendur honum. Þá var einnig staðfest niðurstaða héraðsdómara um að samlagsaðild væri með öðrum varnaraðilum og að málið hafi verið höfðað innan málshöfðunarfrests. Talið var að S hefði í stefnu mátt gera gleggri grein fyrir því tjóni sem skaðabótakröfu hans var ætlað að bæta. Eins og málið var vaxið hafi þó ekki verið næg efni til að telja annmarka á reifun S fyrir kröfugerð sinni svo verulegan að ekki mætti bæta úr honum við meðferð málsins, eða að vörn væri svo áfátt vegna skorts á matsgerð að vísa bæri nú málinu frá héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 4. mars 2004

423/2003

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn John Edwin Rehm III (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Að morgni sunnudagsins 1. júní 2003 kom til átaka í miðborg Reykjavíkur milli bandarískra varnarliðsmanna og íslenskra ungmenna. Í átökunum varð Y fyrir fimm hnífsstungum og voru þrjár þeirra taldar lífshættulegar. J gaf sig fram við lögreglu nokkru síðar og viðurkenndi að hann hefði beitt hnífi gegn Y og vísaði á hnífinn. Blóð á hnífnum reyndist vera úr Y. Í niðurstöðu réttarmeinafræðings um áverka á Y kom fram að einn hinna lífshættulegu áverka gæti ekki verið eftir umræddan hníf. J kvaðst hafa verið sleginn með flösku í höfuðið aftanfrá og hafi hann gripið til hnífsins og otað honum blindandi í þá átt sem hann taldi árásina koma úr. Taldi hann sig hafa fundið fyrir því einu sinni að hnífurinn hafi komist í snertingu við eitthvað. Var J ákærður fyrir tilraun til manndráps. Fjölskipaður héraðsdómur taldi sannað að J hefði lagt til Y með hnífnum en ósannað að hann hefði veitt Y fleiri en einn áverka. Þá væri ósannað að J hefði veitt Y einn hinna lífshættulegu áverka og því bæri að heimfæra háttsemi hans undir 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga en ekki 211. gr. samanber 20. gr. sömu laga. Einnig var talið ósannað að árás J á Y hefði verið í samverknaði við annan mann. Ekki var fallist á að verknaður J gæti talist refsilaus vegna neyðarvarnar. Í dómi Hæstaréttar var fundið að rannsókn málsins þar sem ekki hafði verið rannsakað hverjir aðrir kynnu að hafa veitt Y áverka í umræddum átökum, eins og fullt tilefni hafi verið til í ljósi niðurstöðu réttarmeinafræðingsins og að ekki hafi verið kannað sannleiksgildi framburðar J um áverka sem hann hafi hlotið við að vera sleginn með flösku í höfuðið. Þar sem ákærði hafði ekki gefið skýrslu fyrir Hæstarétti gat rétturinn ekki endurmetið niðurstöðu héraðsdóms um sönnunargildi munnlegs framburðar fyrir dómi og ekki var talið sýnt að ný meðferð fyrir héraðsdómi myndi varpa skýrara ljósi á málið. Var því niðurstaða héraðsdóms staðfest. Refsing J var ákveðin 18 mánaða fangelsi. Þar sem bótakrafa Y var miðuð við það að J hefði valdið öllu tjóni hans og í málinu taldist ósannað að svo hefði verið var ekki talið unnt að leggja dóm á kröfuna og var henni því vísað frá dómi.

Hæstiréttur birt 24. janúar 2002

331/2001

Sigurjón Sigurgeirsson (Tómas Jónsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl)

S, sem sætt hafði gæsluvarðhaldi vegna sakargifta um líkamsárás, höfðaði bótamál á hendur íslenska ríkinu (Í). Með hliðsjón af gögnum málsins var talið að réttmætt tilefni hefði verið til handtöku S og gæsluvarðhalds yfir honum frá 29. september 1998 til 9. næsta mánaðar. Í gæti því ekki orðið bótaskylt gagnvart S af þessum sökum, sbr. síðari málslið 1. mgr. 175. gr. laga nr. 19/1991. Þá var og hafnað að S gæti byggt bótakröfu á því að þessar aðgerðir hefðu verið framkvæmdar á óþarflega hættulegan, særandi eða móðgandi hátt eða að gæsluvarðhaldsvist hans hafi í heild verið óþarflega harkaleg. Af hálfu Í hafði hins vegar ekki verið sýnt fram á að hagsmunir tengdir rannsókn málsins hafi með réttu getað staðið til þess að hefta frelsi S frá 9. til 23. október 1998, er hann var leystur úr gæsluvarðhaldi. S hafði endanlega verið sýknaður af umræddum sakargiftum með dómi 14. júní 2000. Samkvæmt þessu var fullnægt skilyrðum a. liðar 176. gr. og 1. mgr. 175. gr. laga nr. 19/1991 til að dæma S bætur fyrir fjártjón og miska. Við ákvörðun miskabóta var meðal annars litið til þess að S hafði fram til 9. október 1998 sætt gæsluvarðhaldi, sem réttmætt tilefni var til.

Hæstiréttur birt 13. apríl 2000

40/2000

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Ævari Þór Ævarssyni (Jón Steinar Gunnlaugsson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Æ var ákærður fyrir nauðgun með því að hafa með ofbeldi og ógnandi framkomu þröngvað stúlkunni K til holdlegs samræðis. Æ og K, sem verið höfðu að fagna próflokum, voru bæði undir áhrifum áfengis og mundu óglöggt atburði kvöldsins. Fallist var á sakarmat héraðsdómara og færslu til refsiákvæðis, en héraðsdómari taldi breyttan framburð ákærða, sem áður hafði viðurkennt verknaðinn, ekki trúverðugan. Var Æ talinn hafa gerst brotlegur við 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 2. gr. laga nr. 40/1992. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 15 mánuði, en með vísan til ungs aldurs og þess að hann hafði ekki áður verið dæmdur fyrir refsiverðan verknað og með hliðsjón af atvikum málsins var ákveðið að fresta fullnustu refsingarinnar í þrjú ár. Þá var Æ dæmdur til að greiða K 500.000 krónur í miskabætur.