Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lagagrein: 34. gr. laga nr. 15/1998 — Lög um dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. janúar 2022

E-6219/2019

Erla Bolladóttir (Ragnar Aðalsteinsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu og ríkissaksóknara (Andri Árnason lögmaður)

Felldur var úr gildi úrskurður endurupptökunefndar en fallist var á með stefnanda að tiltekin gögn sem kynnu að hafa þýðingu í málinu hefðu ekki verið metin með forsvaranlegum hætti í úrskurði endurupptökunefndar.

Hæstiréttur birt 20. febrúar 2019

601/2015

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari) gegn Sigurði Guðmundssyni (Lilja Jónasdóttir réttargæslumaður) (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)

Með úrskurði endurupptökunefndar var fallist á beiðni S að hluta um endurupptöku dóms Hæstaréttar í máli nr. 168/2002 þar sem S var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 215. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa hrist drenginn X svo harkalega eða með öðrum hætti orðið valdur að nánar tilgreindum áverkum hans með þeim afleiðingum að hann lést tveimur dögum síðar. Var úrskurður nefndarinnar reistur á matsgerð sem S hafði aflað en niðurstaða hennar var sú að ekki lægi fyrir að banamein drengins hefði verið „Shaken Baby Syndrome“. Í dómi Hæstaréttar kom fram að álit allra þeirra sérfræðinga sem matsmaður vísaði til í mati sínu hefðu legið til grundvallar dómi réttarins um sakfellingu S. Fallast yrði á með S að embætti ríkissaksóknara hefði látið lítið til sín taka við meðferð málsins hjá endurupptökunefnd. Þannig hefði það hvorki gætt þess að láta mæta til dómþings við fyrirtöku matsbeiðni þar sem taka skyldi ákvörðun um hvern dómkveðja skyldi sem matsmann né að óska í tíma yfirmats. Niðurstöður yfirmatsmanna, sem lágu fyrir eftir að úrskurður nefndarinnar var kveðinn upp, hefðu verið í andstöðu við undirmatið en í samræmi við læknisfræðilegar niðurstöður sem lagðar voru til grundvallar í dómi réttarins í máli nr. 168/2002. Á hinn bóginn hefði ríkissaksóknari látið endurupptökunefnd í té ábendingar um að matsmaðurinn sætti rannsókn. Þá hefði við munnlegan málflutning verið upplýst af hálfu S að matsmaðurinn hefði á árinu 2016 sætt banni dómstóls í Bretlandi við því að gefa skýrslu fyrir dómi og myndi það gilda út árið 2019. Væri óhjákvæmilegt að líta til þess við ákvörðun um þýðingu matsgerðar hennar til endurupptöku málsins. Kom fram að í úrskurði nefndarinnar væri ekkert fjallað um þau atriði sem matsmaður hefði tilgreint í mati sínu að líta bæri til varðandi ástand drengsins. Með sama hætti væri í engu getið um efnislegar athugasemdir læknis sem lagðar hefðu verið fram um matsgerðina og heldur ekki um krufningarskýrslu og önnur læknisfræðileg gögn sem legið hefðu til grundvallar dómi Hæstaréttar. Hefði nefndin látið nægja að taka upp og vísa í almenna umfjöllun matsmanns um fræðigreinar varðandi „Shaken Baby Syndrome“ að virtum kenningum matsmanns um heilkennið. Jafnframt hefði nefndin ekki litið nægilega til gagna sem fram voru komin er hún tók þá ákvörðun sína að matsgerð þessa eina matsmanns skyldi leiða til þess að uppfyllt teldust skilyrði til endurupptöku málsins. Var því ekki talið að S hefði með fullnægjandi hætti fært fram haldbær ný gögn sem ætla mætti að hefðu verulegu skipt fyrir niðurstöðu málsins ef þau hefði komið fram áður en dómur gekk, sbr. a. liðar 1. mgr. 211. gr. laga nr. 88/2008, sbr. nú a. lið 1. mgr. 228. gr. laganna. Hefði því ekki verið fullnægt skilyrðum fyrir endurupptöku málsins. Þá var talið að með þágildandi 3. mgr. 215. gr., sbr. 1. mgr. 214. gr. laga nr. 88/2008 hefði löggjafinn falið nefnd, sem heyrir undir framkvæmdarvald ríkisins, hlutverk sem gæti náð til þess að fella úr gildi úrlausnir dómstóla. Sú skipan væri andstæð meginreglu 2. gr. stjórnarskrárinnar og væri því lagaákvæðið, sem leiddi til hennar, ekki gild réttarheimild og yrði þess vegna ekki beitt. Gæti úrskurður endurupptökunefndar því ekki orðið til þess að fyrri dómur Hæstaréttar hefði fallið úr gildi. Samkvæmt þessu var málinu málinu vísað frá Hæstarétti og stóð dómur réttarins í máli nr. 168/2002 því í öllum atriðum óhaggaður.

Landsréttur birt 25. janúar 2019

306/2018

Ólafur Ólafsson (Hjördís Halldórsdóttir lögmaður) gegn ríkissaksóknara og íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)

Í málinu krafðist Ó ógildingar úrskurðar endurupptökunefndar um að hafna beiðni hans um endurupptöku hæstaréttarmáls nr. 145/2014 þar sem Ó var sakfelldur fyrir þátt sinn í markaðsmisnotkun tengdri viðskiptum með hlutafé í Kaupþingi banka hf. Ekki var fallist á með Ó að tengsl nefndarmanns endurupptökunefndar við einn dómenda í hæstaréttarmálinu og maka hans hefði valdið vanhæfi hennar við meðferð endurupptökunefndar á beiðni hans. Þá var Ó ekki talinn hafa leitt að því verulegar líkur að sönnunargögn sem færð voru fram í hæstaréttarmálinu hefðu verið rangt metin svo að áhrif hefði haft á niðurstöðu dómsins samkvæmt c-lið 1. mgr. 211. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Loks var ekki talið að rökstuðningi endurupptökunefndar hefði verið svo áfátt að úrskurður nefndarinnar yrði ógiltur. Var kröfu Ó um ógildingu úrskurðar endurupptökunefndar því hafnað.

Hæstiréttur birt 27. september 2018

521/2017

Ákæruvaldið (Davíð Þór Björgvinsson settur ríkissaksóknari) gegn Albert Klahn Skaftasyni (Guðjón Ólafur Jónsson lögmaður), Guðjóni Skarphéðinssyni (Ragnar Aðalsteinsson lögmaður), Kristjáni Viðari Júlíussyni (Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður), Sævari Marinó Ciesielski (Oddgeir Einarsson lögmaður) og Tryggva Rúnari Leifssyni (Jón Magnússon lögmaður)
Lykilorð: Endurupptaka. Manndráp. Sýkna.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Með dómi Hæstaréttar 22. febrúar 1980 í máli nr. 214/1978 voru K, S og T sakfelldir fyrir manndráp samkvæmt 215. og 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa orðið nafngreindum manni að bana í janúar 1974. Jafnframt var A sakfelldur fyrir að hafa tálmað rannsókn málsins með háttsemi sinni umrætt sinn samkvæmt 2. mgr. 112. gr. sömu laga. Þá voru G, K og S sakfelldir fyrir að hafa orðið öðrum manni að bana í nóvember 1974 og voru brot þeirra heimfærð undir sömu lagaákvæði og í fyrra tilvikinu. Með úrskurðum 24. febrúar 2017 tók endurupptökunefnd afstöðu til beiðna dómfelldu um endurupptöku málsins og féllst nefndin á að málið yrði tekið upp að þeim hluta sem að framan er lýst. Taldi nefndin skilyrði þágildandi a., c. og d. liða 1. mgr. 211. gr. laga nr. 88/2008 vera uppfyllt. Í dómi Hæstaréttar kom fram að í úrskurðum nefndarinnar hefði verið gerð grein fyrir þeim nýju gögnum sem fram hefðu komið eftir að dómur Hæstaréttar í máli nr. 214/1978 gekk og eftir úrlausn réttarins 15. júlí 1997 um beiðni S um endurupptöku málsins. Hvorki væru sérstakir annmarkar á málsmeðferð endurupptökunefndar né mati hennar á þýðingu nýrra gagna. Hefði þegar af þeirri ástæðu verið fullnægt skilyrðum þágildandi a. liðar 211. gr. laga nr. 88/2008 og því ekki efni til að taka afstöðu til þess hvort uppfyllt hefðu verið skilyrði annarra stafliða lagagreinarinnar. Af hálfu ákæruvaldsins var þess krafist að dómfelldu yrðu sýknaðir af þeim sakargiftum sem þeir voru sakfelldir fyrir með dómi Hæstaréttar í máli nr. 214/1978 og endurupptaka málsins tók til. Komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að það leiddi af lögum að dómfelldu yrðu þegar á grundvelli kröfugerðar ákæruvaldsins sýknaðir af þessum sakargiftum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. desember 2017

E-1952/2016

Ólafur Ólafsson (Þórólfur Jónsson hrl) gegn ríkissaksóknara og íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl)

Hafnað var kröfu stefnanda um að fella úr gildi úrskurð endurupptökunefndar sem komist hafði að þeirri niðurstöðu að ekki væri efni til þess að endurupptaka sakamál þar sem stefnandi hafði verið sakfelldur fyrir markaðsmisnotkun.

Hæstiréttur birt 16. mars 2017

85/2017

Ólafur Ólafsson (Þórólfur Jónsson hrl) gegn ríkissaksóknara og íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem vísað var frá dómi kröfu Ó á hendur R og Í um að viðurkennt yrði að skilyrði fyrir endurupptöku máls sem dæmt hafði verið í Hæstarétti væru uppfyllt. Í úrskurði héraðsdóms, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, kom fram að ákvörðun um endurupptöku máls væri á hendi endurupptökunefndar, sbr. 1. mgr. 34. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla. Þótt dómstólar ættu úrskurðarvald um það hvort gætt hefði verið fyrirmæla laga þegar nefndin tók afstöðu til endurupptökubeiðni Ó og gætu fellt þá ákvörðun nefndarinnar úr gildi yrðu taldir slíkir annmarkar á henni, væri það ekki á færi dómstóla að taka nýja ákvörðun í málinu eins og krafa Ó fæli í raun í sér. Var kröfunni því vísað frá dómi, sbr. 1. mgr. 24. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Hæstiréttur birt 25. febrúar 2016

628/2015

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari) gegn Hannibal Sigurvinssyni (Bjarni Hauksson hrl)

Með úrskurði endurupptökunefndar var fallist á beiðni H um endurupptöku dóms Hæstaréttar í máli nr. 356/2014. Niðurstaða nefndarinnar var reist á því annars vegar að héraðsdómur í málinu hafði ekki verið birtur fyrir H samkvæmt 156. gr., sbr. 3. mgr. 185. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og hins vegar að H hafði ekki undirritað yfirlýsingu um áfrýjun, sem bjó að baki áfrýjunarstefnu ríkissaksóknara, þótt gert hafði verið ráð fyrir því í texta hennar, en í stað þess hafði S, verjandi hans í héraði, ritað undir hana. Hefði yfirlýsingin þannig ekki fullnægt ákvæði 1. málsliðar 2. mgr. 199. gr. sömu laga. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þótt endurupptökunefnd, sem samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla væri sjálfstæð og óháð stjórnsýslunefnd, væru meðal annars með 215. gr. laga nr. 88/2008 fengin viðfangefni, sem vörðuðu úrlausn dómsmála, fengi það því ekki breytt að dómstólar ættu eftir meginreglu fyrri málsliðar 60. gr. stjórnarskrárinnar úrskurðarvald um ákvarðanir nefndarinnar. Yrði á þeim grunni að taka afstöðu til þess hvort lög hefðu með réttu staðið til þeirrar niðurstöðu sem endurupptökunefnd hafði komist að í úrskurði sínum. Talið var að störfum S sem verjanda H í héraði hefði lokið við uppkvaðningu héraðsdómsins, sbr. 5. mgr. 31. gr. laga nr. 88/2008. Á hinn bóginn yrði, að virtum samskiptum H og S í framhaldi af uppkvaðningu héraðsdóms, að líta svo á að H hefði veitt S umboð, sem félli undir ákvæði laga nr. 77/1998 um lögmenn, til að koma fram fyrir sína hönd gagnvart ríkissaksóknara og dómstólum vegna áfrýjunar dómsins. Gæta yrði að því að birting héraðsdóms fyrir ákærðum manni hefði þau áhrif ein að frestur hans samkvæmt 2. mgr. 199. gr. laga nr. 88/2008 til að lýsa yfir áfrýjun dómsins byrjar að líða við birtinguna, en af því markast um leið hvenær fyrst megi fullnægja ákvæðum dómsins um refsingu og önnur viðurlög, sbr. 4. mgr. 185. gr. sömu laga. Hefði ríkissaksóknara mátt líta svo á þegar yfirlýsing um áfrýjun í nafni H hefði borist, án þess að héraðsdómurinn hefði áður verið birtur fyrir honum samkvæmt 156. gr. laga nr. 88/2008, að H væri nægilega kunnugt um efni dómsins til að honum væri fært að taka ákvörðun um hvort hann myndi una honum eða áfrýja. Í framkvæmd við áfrýjun héraðsdóma í sakamálum hefði lengi tíðkast að telja lögmann bæran um að standa að yfirlýsingu til ríkissaksóknara um áfrýjun án þess að lögð væri fram sérstök yfirlýsing ákærða sjálfs um áfrýjun eða skriflegt umboð hans til lögmannsins í þessu skyni. Hefðu þau tilvik um árabil í raun verið í meiri hluta. Í því ljósi yrði að líta svo á að slíkt verk mætti í skilningi 2. mgr. 21. gr. laga nr. 77/1998 telja venjulegt til að gæta hagsmuna ákærðs manns fyrir dómi. Samkvæmt framansögðu hefðu því ekki að lögum verið skilyrði til að verða við beiðni H um endurupptöku málsins fyrir Hæstarétti. Þá var talið að með 3. mgr. 215. gr., sbr. 1. mgr. 214. gr. laga nr. 88/2008 hefði löggjafinn falið nefnd, sem heyrir undir framkvæmdarvald ríkisins, hlutverk sem gæti náð til þess að fella úr gildi úrlausnir dómstóla. Sú skipan væri andstæð meginreglu 2. gr. stjórnarskrárinnar og væri því lagaákvæðið, sem leiddi til hennar, ekki gild réttarheimild og yrði þess vegna ekki beitt. Samkvæmt því gæti úrskurður endurupptökunefndar ekki orðið til þess að fyrri dómur Hæstaréttar hefði fallið úr gildi. Af þeim sökum var málinu vísað frá Hæstarétti, en af því leiddi að dómur réttarins í máli nr. 356/2014 stóð í öllum atriðum óhaggaður.