PJ, DB, JP og BH voru ákærðir fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, sbr. 173. gr. a, sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og skipulagða brotastarfsemi, sbr. 175. gr. a sömu laga, með því að hafa staðið saman, ásamt óþekktum aðila, að innflutningi á 99,25 kg af kókaíni, að styrkleika 81-90%, hingað til lands frá Brasilíu, ætluðu til sölu og dreifingar í ágóðaskyni, en efnin voru falin í sjö trjádrumbum sem komið var fyrir í gámi sem var síðar haldlagður í Hollandi þar sem efnin voru fjarlægð og gerviefni sett í þeirra stað. Við komu gámsins hingað til lands hafi hin ætluðu fíknefni verið fjarlægð úr trjádrumbunum í því skyni að koma þeim í sölu og dreifingu, þar til lögregla lagði hald á efnin og ákærðu voru handteknir. Þá voru JP og DB sakfelldir fyrir önnur nánar tilgreind fíkniefnalagabrot sem sættu ekki endurskoðun Landsréttar. Ákærðu játuðu allir brot gegn 173. gr. a, sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga og voru sakfelldir fyrir þá háttsemi, en töldu ósannað að magn eða styrkleiki efnanna hefði verið sem í ákæru greindi og að þeir hefðu vitað hversu mikið af fíknefnum ætlunin hefði verið að flytja til landsins. Í dómi Landsréttar kom fram að með vísan til matsgerða sem aflað var við rekstur málsins í héraði og fyrir Landsrétti yrði miðað við að magn og styrkleiki efnanna hefði verið samkvæmt ákæru. Þá væri ótrúverðugt að ákærðu hefðu ekki vitað af magni efnanna í ljósi hinnar umfangsmiklu umgjarðar um innflutninginn og kostnað við hann. Í öllu falli hefðu þeir látið sér það í léttu rúmi liggja og samþykkt að taka þátt í innflutningnum. Í dómi Landsréttar var inntak 175. gr. a almennra hegningarlaga um skipulega brotastarfsemi reifað og skírskotað til lögskýringargagna að baki ákvæðinu. Taldi Landsréttur ekki tilefni til að vísa þeim ákærulið frá dómi á grundvelli þess að hann uppfyllti ekki kröfur c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var kröfunni hafnað. Í annan stað var það mat réttarins að ákæruvaldið hefði hvorki leitt sönnur, svo að yfir skynsamlegan vafa væri hafið, að tilvist skipulagðra brotasamtaka hefði verið raunin í tilfelli ákærðu né að þeir hefðu haft ásetning til að fremja brot sem lið í starfsemi skipulagðra brotasamtaka í skilningi 175. gr. A almennra hegningarlaga. Voru ákærðu því sýknaðir af sakargiftum samkvæmt því. Ákærðu voru jafnframt ákærðir fyrir peningaþvætti samkvæmt 1., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa tekið við, geymt, umbreytt og aflað sér ávinnings af refsiverðum brotum og eftir atvikum með öðrum ólögmætum eða refsiverðum hætti tilteknum fjárhæðum sem þeir hafi notaði með tilgreindum hætti. Að virtu heildstæðu mati á ákæruliðum er vörðuðu peningaþvætti taldi Landsréttur gallana á þeim slíka að telja yrði að þeir hefðu áhrif á möguleika ákærðu til að verjast þeim. Uppfylltu þeir því ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 og var þeim vísað frá dómi. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot þeirra varðaði tilraun til innflutnings á fordæmalaust miklu magni af kókaíni. Var jafnframt horft til hættueiginleika efnisins og styrkleika þess. Þar að auki hefði verið um samverknað ákærðu að ræða með verkskiptri aðild, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Enn fremur var litið til þess að þáttur ákærðu í brotinu hefði verið mismikill. Ásetningur þeirra til innflutningsins, sem skipulagður hefði verið í þaula, þótti einbeittur. Var því við refsiákvörðun litið til 1., 3., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Jafnframt var höfð hliðsjón af játningu ákærðu. Refsing PJ var ákveðin fangelsi í níu ár, BH var gert að sæta fangelsi í sex ár og sex mánuði og DB og JP hvorum um sig gert að sæta fangelsi í fimm ár. Loks var ákærðu gert að sæta upptöku verðmæta.
GAG, GS og HMÓ, voru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi með því að hafa staðið saman að innflutningi á saltdreifara sem í voru faldir 53 lítrar af amfetamínvökva hingað til lands frá Hollandi í félagi með tveimur óþekktum erlendum aðilum, móttekið tækið og fíkniefnin og haft í vörslum sínum á nánar tilgreindri jörð og í samvinnu við óþekktan íslenskan aðila fjarlægt amfetamínvökvann úr saltdreifaranum og framleitt allt að 117,5 kg af amfetamíni í sölu- og dreifingarskyni. Ætluðum þætti hvers ákærða var nánar lýst í ákærunni. Í dómi Landsréttar kom fram að sannað teldist að GAG, GS og HMÓ hefðu sammælst um stórfellt fíkniefnalagabrot með því að GAG og HMÓ hefðu í félagi við óþekkta erlenda aðila staðið saman að innflutningi saltdreifarans til landsins þar sem falinn var amfetamínvökvi. Þá hefði GS móttekið og varslað saltdreifarann á jörð sinni. GAG, GS og HMÓ hefðu, í samvinnu við óþekktan íslenskan aðila, staðið saman að því að amfetamínvökvinn var fjarlægður úr saltdreifaranum og úr honum framleitt amfetamín í sölu- og dreifingarskyni. Að teknu tilliti til matsgerðar dómkvadds matsmanns þótti ekki óvarlegt að leggja til grundvallar að GAG, GS og HMÓ hefðu framleitt að minnsta kosti 80,2 kg af amfetamíni. Fram kom í dómi Landsréttar að um þaulskipulagt fíkniefnalagabrot hefði verið að ræða sem framið hefði verið í ávinningsskyni. Verknaðurinn hefði verið unninn í félagsskap allra ákærðu, auk tveggja erlendra einstaklinga og óþekkts Íslendings, þar sem hver hafði sitt hlutverk. Þótti sýnt að GAG, GS og HMÓ hefðu vitandi vits tekið ákvörðun um þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi. Voru þeir því sakfelldir og framangreind háttsemi þeirra heimfærð til 173. gr. a og 175. gr. a almennra hegningarlaga. Jafnframt var GS, HMÓ, ÓÁH og GEB gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa staðið saman að kannabisræktun í útihúsi á nánar tilgreindri jörð. Hefðu þeir sammælst um verkaskiptingu við uppsetningu, ræktun og þurrkun kannabisplantnanna í sölu- og dreifingarskyni og skipt á milli sín afrakstrinum en við leit hafði lögregla lagt hald á 6.110 g af kannabisplöntum, 16.265 g af maríjúana og 131 kannabisplöntu. Auk heimfærslu á háttsemi GS, HMÓ, ÓÁH og GEB til refsiákvæðis 173. gr. a almennra hegningarlaga var einnig ákært fyrir ætlaða skipulagða brotastarfsemi samkvæmt 175. gr. a sömu laga. Með dómi Landsréttar voru GS, HMÓ, ÓÁH og GEB sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og háttsemi þeirra heimfærð til 173. gr. a almennra hegningarlaga, en ekki þótti sýnt fram á að þeir hefðu vitandi vits tekið ákvörðun um að taka þátt í starfsemi skipulagðra brotasamtaka í skilningi 175. gr. a almennra hegningarlaga. Þá var ÓÁH enn fremur sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum nánar tilgreint magn fíkniefna og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni nánar tilgreint magn ýmissa fíkniefna. Að lokum var HMÓ sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum nánar tilgreint magn fíkniefna. Við ákvörðun refsingar var litið 1., 3., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Ennfremur var litið til 9. töluliðar sömu málsgreinar að því er varðaði ákvörðun refsingar GS. Refsing HMÓ og ÓÁH var ákveðin fangelsi í 10 ár, GAG og GS var gert að sæta fangelsi í 8 ár hvorum og GEB í 18 mánuði og var refsing hans bundin skilorði. Þá var fallist á kröfu um upptöku á nánar tilgreindum fíkniefnum og munum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kristian Hajdéraj (
Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot.
Reykjavík, dvst. […], Daða Björnssyni, kennitala […], […], Reykjavík, dvst. […] Jóhannesi Páli Durr, kennitala […], […], Reykjavík, dvst. […], og Birgi Halldórssyni kennitala […], […], Reykjavík, dvst (
Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Páli Jónssyni (
Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður),
Daða Björnssyni (
Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður),
Jóhannesi Páli Durr (
Almar Þór Möller lögmaður) og
Birgi Halldórssyni (
Ólafur Örn Svansson lögmaður)
Ákærðu voru sakfelldir fyrir m.a.stórfellt fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi og dæmdir til fangelsisrefsingar.
[...], Guðjóni Sigurðssyni, kennitala […], Halldóri Margeiri Ólafssyni, kennitala [...] Ólafi Ágústi Hraundal, kennitala [...], og Geir Elí Bjarnasyni, kennitala [...], fyrir eftirtalin brot I (
Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðlaugi Agnari Guðmundssyni (
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður),
Guðjóni Sigurðssyni (
Stefán Ragnarsson lögmaður),
Halldóri Margeiri Ólafssyni (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður),
Ólafi Ágústi Hraundal (
Jón Magnússon lögmaður),
Geir Elí Bjarnasyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) og
Úranusi ehf. (
Garðar Steinn Ólafsson lögmaður)
Ákærðu voru sakfelldir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfelld fíkniefnalagabrot.
J var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa átt þátt í innflutningi á 11.550 millilítrum af vökva sem innihélt amfetamínbasa til söludreifingar í ágóðaskyni. Voru efnin falin í plastflöskum í eldsneytistanki bifreiðar. Í héraðsdómi var J sýknaður af kröfum ákæruvaldsins en meðákærði sakfelldur. Í dómi Landsréttar er framburður J álitinn reikull um ýmis atriði. Í ljósi allra atvika var framburður hans um að honum hefði verið alls ókunnugt um raunverulegan tilgang fararinnar hingað til lands og ekkert vitað um hið mikla magn fíkniefna í eldsneytistanki bifreiðarinnar talinn ótrúverðugur. Honum hefði ekki getað dulist að fíkniefni væru falin í bifreiðinni. Hann hefði þrátt fyrir þá vitneskju ákveðið að taka að sér akstur hennar til landsins og þar með innflutninginn á fíkniefnunum sem í henni voru falin. Með vísan til þess og á grundvelli heildstæðs mats á framburði J og með vísan til þeirra atvika málsins sem sönnuð væru, svo og ótrúverðugra og misvísandi skýringa meðákærða og J á tilgangi ferðar þeirra til landsins, væri hafið yfir vafa að J hefði staðið að þeim innflutningi fíkniefna sem honum væri gefinn að sök í ákæru. Var J því sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Við ákvörðun refsingar J var litið til þess að gögn málsins bæru ekki vott um ríkan þátt hans í undirbúningi ferðarinnar til landsins, útvegun efna þeirra sem um ræddi eða hlutdeild í samskiptum við aðra sem áttu þátt í undirbúningi ferðarinnar og skipulagi hennar. Þáttur hans í brotinu var því ekki metin til jafns við meðákærða í héraði. Þá var jafnframt tekið tillit til þess dráttar sem orðið hefði á rekstri málsins, auk þess að J hefði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Refsing J var ákveðin fangelsi í fjögur ár en til frádráttar refsingunni kæmi gæsluvarðhald sem hann hefði sætt.
B, D, G, JR, JD og K voru sakfelld fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa dagana 27. til 29. febrúar 2020 í félagi haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni og jafnframt staðið að framleiðslu á samtals 1.896,50 g af amfetamíni, sem hafði á bilinu 34-66% styrkleika og samtals 1.071,15 g af amfetamíni, sem hafði á bilinu 1,7- 3,2% styrkleika. Var háttsemi þeirra talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en ekki var á það fallist að háttsemi þeirra teldist vera liður í skipulagðri brotastarfsemi í skipulögðum brotasamtökum í skilningi 175. gr. a almennra hegningarlaga. Þá var JR jafnframt sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum samtals 5,58 g af marijúana og samtals 57,17 g af amfetamíni sem lögregla fann við leit á JR og á tveimur tilgreindum dvalarstöðum hans. Voru þau brot JR talin varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. B, D og K voru hins vegar sýknaðir af þeirri háttsemi að hafa losað skaðleg efni sem notuð voru við framleiðslu fíkniefnanna í umhverfið og valdið þannig yfirvofandi hættu á verulegu tjóni á umhverfinu. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot B, D, G, JR, JD og K var þaulskipulagt og framið í samverknaði, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, þótt aðkoma þeirra að brotinu hefði verið með misjöfnum hætti. Litið var svo á að þau ættu sér ekki málsbætur. Einnig var við ákvörðun refsingar litið til 1., 3., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Refsing JR var ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði, refsing B, D og K fangelsi í þrjú ár hver og G og JD fangelsi í tvö ár og sex mánuði hvort. Til frádráttar refsingu B, D, JR, JD og K kom tilgreint gæsluvarðhald sem þau höfðu sætt, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga. Ennfremur voru gerð upptæk ýmis tæki, búnaður og efni, sem lögregla hafði lagt hald á, sem og bifreið og reiðufé í eigu JD.
Ákærðu sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Annar ákærðu var jafnframt sakfelldur fyrir innflutning fíkniefna og peningaþvætti.
H var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa ásamt öðrum manni staðið að innflutningi á samtals 37.755,28 g af amfetamíni og 4.965,28 g af kókaíni, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Fíkniefnin voru flutt frá Þýskalandi falin í bifreið sem ekið var til Danmerkur og þaðan með farþegaferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar, þar sem þau fundust við leit. Við ákvörðun refsingar var litið til 3. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og tekið tillit til styrkleika efnanna. Var H gert að sæta fangelsi í sjö ár en til frádráttar kom gæsluvarðhald sem hann sætti. Þá voru fíkniefnin og bifreiðin, sem notuð var við innflutninginn, gerð upptæk.
Ákærðu sakfelld fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi. Refsing á bilinu 3 til 4 ár.
Tveir menn dæmdir í 7 ára fangelsi fyrir innflutning á fíkniefnum.
Tveir karlmenn dæmdir til fangelsisvistar fyrir innflutning á ríflega fimm kílóum af kókaíni.
X var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa átt þátt í innflutningi á 11.550 millilítrum af vökva sem innihélt amfetamínbasa til söludreifingar í ágóðaskyni. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að gögn málsins bæru ekki um ríkan þátt X í undirbúningi ferðarinnar til landsins, útvegun efna þeirra sem um ræddi eða í samskiptum við aðra sem áttu þátt í undirbúningi ferðarinnar og skipulagi hennar. Var refsing X ákveðin fangelsi í fimm ár.
Tveir menn ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Var annar þeirra sýknaður af ákærunni en hinn dæmdur til sex og hálfs árs fangelsisvistar.
Ákærðu sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið saman að innflutningi á samtals 2.963,64 grömmum af MDMA. Refsing ákærðu ákveðin fangelsi í fjögur ár.