Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

8 dómar fundust

Lagagrein: 27. gr. laga nr. 121/1994 — Lög um neytendalán

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júlí 2024

E-735/2023

Eðvarð Franklín Benediktsson (Davor Purusic lögmaður) gegn Arion banka hf (Hjördís Halldórsdóttir lögmaður)

Stefndi sýknaður af kröfum stefnanda. Stefnandi höfðaði mál á hendur stefnda vegna vaxtaskilmála veðskuldabréfs sem stefnandi gaf út. Dómurinn féllst á það með stefnda að um væri að ræða aðildarskort bæði stefnanda og stefnda.

Landsréttur birt 17. nóvember 2023

441/2022

Björn Kristjánsson Arnarson (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður) gegn Lífeyrissjóði verzlunarmanna (Ólafur Gústafsson lögmaður)

B höfðaði mál gegn L og krafðist viðurkenningar á því að L væri skylt að endurreikna lán vegna tveggja nánar tilgreindra skuldabréfa sem gefin voru út árið 2002 og 2008, með hliðsjón af því að vextir og verðbætur afborgana sem hefðu verið eldri en fjögurra ára á nánar tilgreindum dögum í desember 2016 væru fyrndar. B hafði fengið samþykkt frumvarp að nauðasamningi til greiðsluaðlögunar í janúar 2010 sem eldra skuldabréfið féll undir. Þá komst á tímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna í febrúar 2010 sem yngra skuldabréfið féll undir. Þegar umrædd úrræði komust á voru engar afborganir skuldabréfanna fallnar í gjalddaga. Fékk L greitt samkvæmt nauðasamningi til greiðsluaðlögunar vegna eldra skuldabréfsins til 1. nóvember 2011 en engar greiðslur bárust vegna yngra skuldabréfsins frá því tímabundin greiðsluaðlögun komst á. B var veitt heimilt til að leita greiðsluaðlögunar í mars 2012 en með úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála í nóvember 2016 var ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanirnar staðfest. Þá reiknaði L upp lán B og hóf hann að greiða af lánunum að nýju í janúar 2017. Í dómi Landsréttar kom fram að nauðasamningur til greiðsluaðlögunar vegna eldra skuldabréfsins og tímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna vegna yngra skuldabréfsins hefðu verið í gildi þegar B var veitt heimild til að leita greiðsluaðlögunar. Því var skuld B ekki gjaldkræf þegar heimildin var veitt, þrátt fyrir að greiðslufall samkvæmt umræddum nauðasamningi vegna eldra skuldabréfsins hefði orðið eftir 1. nóvember 2011 og ekkert hefði fengist greitt upp í yngra skuldabréfið frá gildistöku samningsins. Þegar umboðsmaður skuldara veitti B heimild til að leita greiðsluaðlögunar í mars 2012 hófst tímabundin frestun greiðslna þar sem L var samkvæmt a-lið 1. mgr. 11. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga óheimilt að krefjast eða taka við greiðslu á kröfum sínum. Strax í kjölfar þess að greiðsluaðlögunarumleitanir B voru felldar niður var skuld hans reiknuð út og honum kynnt staða hennar ásamt vöxtum og verðbótum en B hóf greiðslu hennar í janúar 2017. Með þessum afborgunum og beinum viðurkenningum á skuldastöðu sinni rauf B fyrningu krafna um vexti og verðbætur. Var L því sýknaður af kröfum B.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júní 2022

E-392/2022

Björn Kristjánsson Arnarson (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður) gegn Lífeyrissjóði verzlunarmanna (Grétar Már Ólafsson lögmaður)

Hafnað var kröfum stefnanda sem lutu að því að viðurkennt væri að vextir og verðbætur á skuldum hans væru fyrnd. Talið var að stefnandi hefði viðurkennt kröfuna og rofið fyrningu með því að greiða inn á þær.

Landsréttur birt 21. janúar 2022

671/2020

Guðmundur Ásgeirsson (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

G tók verðtryggt neytendalán hjá Landsbankanum árið 2006 sem greitt var að fullu árið 2015. Árið 2020 höfðaði G mál á hendur Í og krafðist skaðabóta sem námu þeim lánskostnaði sem hann greiddi umfram þá fjárhæð sem hann telur að Landsbankinn hefði haft heimild til að innheimta. Byggði G á því að tilskipun 87/102/EBE frá 22. desember 1986 um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi neytendalán, með síðari breytingum, hefði verið ranglega innleidd með þágildandi neytendalögum nr. 121/1994 sem leitt hefði til þess að hann hefði orðið fyrir fyrrgreindu fjárhagslegu tjóni. Vísaði G í því samhengi til dóms Hæstaréttar nr. 243/2015 frá 26. nóvember 2015 sem leitt hefði í ljós að tilskipunin hefði ekki verið réttilega innleidd í landsrétt. Með dómi Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að fyrningarfrestur kröfu hans hefði byrjað að líða eigi síðar en 26. nóvember 2015. Dómurinn hefði gefið G fullt tilefni til að hefjast þegar handa við að afla sér allra nauðsynlegra upplýsinga um mögulegt tjón sitt, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 150/2007, og var krafa G því fyrnd þegar hann höfðaði mál á hendur Í 4. mars 2020. Með hliðsjón af framangreindu var Í sýknað af kröfum G.

Hæstiréttur birt 26. nóvember 2015

243/2015

Theodór Magnússon (Tómas Jónsson hrl) og Helga Margrét Guðmundsdóttir (Þórður Heimir Sveinsson hdl) gegn Íbúðalánasjóði (Jóhannes Karl Sveinsson hrl)

T og H höfðuðu mál gegn Í og kröfðust viðurkenningar á því að staða láns samkvæmt skuldabréfi sem þau gáfu út í tilefni lánveitingarinnar hefði á tilteknum gjalddaga numið nánar tilgreindri fjárhæð. Var krafan á því reist að Í hefði verið óheimilt að innheimta verðbætur af láninu en af því leiddi að umframgreiðslur vegna verðbóta á afborganir og vexti yrðu reiknaðar strax við greiðslu hvers gjalddaga til frádráttar höfuðstól lánsins sem ætti að lækka sem því næmi. Í dómi Hæstaréttar kom fram að tilhögun verðtryggingarinnar sem samið hefði verið um við útgáfu skuldabréfsins hefði verið lögmæt í ljósi ákvæða laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Þá hefði Í við lánveitinguna til T og H borið að fara að fyrirmælum þágildandi laga nr. 121/1994 um neytendalán að því marki sem ekki hefði verið vikið frá þeim með sérlögum er hefðu gilt um starfsemi Í. Loks var talið að hvorki reglur Í um greiðslumat né fyrirmæli laga og stjórnvaldsákvarðana sem um starfsemi Í hefðu gilt hefðu vikið til hliðar skyldum hans sem lánveitanda samkvæmt lögum nr. 121/1994. Að fengnum framangreindum niðurstöðum kom næst til úrlausnar sú málsástæða T og H að Í hefði við lánveitinguna vanrækt að upplýsa þau um atriði sem honum hefði borið að tilgreina og varðaði kostnað T og H af láninu samkvæmt 5. og 6. gr. laga nr. 121/1994. Var í því sambandi gengið út frá því að til álita gæti komið að víkja til hliðar ákvæðum skuldabréfsins á grundvelli 36. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. c. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, hefði Í látið hjá líða að veita T og H upplýsingar um efni og áhrif skilmála skuldabréfsins í þeim mæli að ósanngjarnt væri af Í eða andstætt góðri viðskiptavenju að bera þá fyrir sig. Að virtum dómi Hæstaréttar í máli nr. 160/2015 og ákvæðum tilskipunar nr. 87/102/EBE um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi neytendalán, svo sem henni hafði verið breytt með tilskipun nr. 90/88/EBE, var talið að samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 121/1994 hefði hvílt sú skylda á Í við gerð lánssamningsins að veita T og H upplýsingar um fjögur atriði. Í fyrsta lagi um höfuðstól lánsins sem væri fjárhæð þess án nokkurs kostnaðar, í öðru lagi um heildarlántökukostnað, í þriðja lagi um árlega hlutfallstölu kostnaðar sem skyldi lýst sem árlegri prósentu heildarlántökukostnaðarins af höfuðstól skuldarinnar og í fjórða lagi um heildarupphæð sem greiða ætti og væri samtala höfuðstóls, vaxta og lántökukostnaðar. Með hliðsjón af orðalagi skuldabréfsins og þeirri fjármálaráðgjöf sem leggja yrði til grundvallar að Í hefði veitt við undirritun lánsins taldi Hæstiréttur að Í hefði fullnægt þeirri upplýsingaskyldu sem á honum hefði hvílt samkvæmt þágildandi lögum nr. 121/1994. Þá var með hliðsjón af fyrrgreindum dómi Hæstaréttar ekki talið að Í hefði verið skylt samkvæmt síðastnefndum lögum að láta T og H í té við lánveitinguna sérstaka greiðsluáætlun sem gerði ráð fyrir tiltekinni hækkun vísitölu neysluverðs og að við gerð lánssamningsins hefði verið þörf að gera ráð fyrir að verðbætur teldust til heildarlántökukostnaðar. Við úrlausn málsins var enn fremur litið til þess að tilskipun 87/102/EBE hefði ekki haft lagagildi hér á landi og gæti lögskýring með hliðsjón af 3. gr. laga nr. 2/1993 ekki leitt til annarrar niðurstöðu um túlkun ákvæða laga nr. 121/1994, sbr. meðal annars dóm Hæstaréttar í máli nr. 79/2010. Samkvæmt framansögðu var Í sýknað af kröfu T og H.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. febrúar 2015

E-4521/2013

Theodór Magnússon og Helga Margrét Guðmundsdóttir (Þórður Heimir Sveinsson hdl) gegn Íbúðalánasjóði (Áslaug Árnadóttir hdl)

Íbúðalánasjóður var sýknaður af kröfu lántaka um að viðurkennt yrði að skuld þeirra næmi tiltekinni, lægri fjárhæð en Íbúðalánasjóður gekk út frá.