Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lagagrein: 43. gr. laga nr. 113/1996 — Lög um viðskiptabanka og sparisjóði
Hróbjartur Jónatansson (sjálfur) gegn
Frjálsa lífeyrissjóðnum (
Gestur Jónsson lögmaður)
H, sem var sjóðfélagi í F, krafðist þess að F yrði gert að afhenda honum nánar tilgreind gögn er vörðuðu fjárfestingar F í S hf. H reisti kröfu sína um afhendingu gagnanna á því að að öflun umbeðinna gagna væri liður í mati hans á því hvort grundvöllur væri til höfðunar skaðabótamáls á hendur stjórn F og/eða A hf. vegna fjárfestinga og lánveitinga sjóðsins til S hf., sbr. 2. málslið 2. mgr. 77. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í úrskurði Landsréttar kom fram að H hefði ekki fært viðhlítandi rök fyrir því að þau gögn sem hann krafðist að fá afhent gætu ráðið niðurstöðu um hvort mál yrði höfðað, sbr. síðari málslið 2. mgr. 78. gr. laga nr. 91/1991. Var kröfu H því hafnað.
Kaupsamningur. Ábyrgð. Bankar. Endurgreiðsla ofgreidds fjár. Tilboð. Samþykki boðs. Skaðabætur. Dráttarvextir. Vanreifun. Frávísun máls að hluta frá héraðsdómi. Er B tók yfir söluumboð Peugeot bifreiða hér á landi af J tók hann meðal annars að sér að standa skil á ábyrgðum sem J stóð í við KB, viðskiptabanka sinn, vegna innflutnings á bifreiðum, en KB hafði um nokkurt skeið ábyrgst greiðslur til bifreiðaframleiðandans samkvæmt ákveðnu fyrirkomulagi. Skömmu síðar fékk J heimild til greiðslustöðvunar og í kjölfarið var bú félasins tekið til gjaldþrotaskipta. Þar sem B hugðist skipta um viðskiptabanka kom til uppgjörs fyrrgreindra ábyrgða milli B og KB og greiddi B 166.096.611 krónur á grundvelli yfirlits bankans, sem miðað var við stöðu ábyrgðanna 31. maí 2000. Á árinu 2001 taldi B sig verða varan við ákveðið misræmi í birgðastöðu og óskaði eftir því við KB að kannað yrði réttmæti fyrrgreinds uppgjörs. Í kjölfar könnunar innan bankans ritaði bankastjóri KB bréf 26. september 2002 til B þar sem viðurkennt var að B hefði ofgreitt bankanum fjárhæð sem næmi 30.906.105 krónum og bauðst bankinn til að endurgreiða þá fjárhæð ásamt tilteknum fjárhæðum vegna vaxta og kostnaðar. Með bréfi sem póstlagt var 4. febrúar 2003 afturkallaði KB tilboð sitt þar sem skiptastjóri þrotabús J hefði hafnað nánar tilgreindum aðgerðum sem bankinn taldi forsendu fyrir því að endurgreiðsla af hans hálfu gæti átt sér stað. Sýnt þótti að áður en þetta bréf barst B hafði KB borist svarbréf B þar sem fallist var á þann skilning KB að bankinn hefði oftekið framangreinda fjárhæð við uppgjörið og var krafist greiðslu hennar auk vaxta og kostnaðar sem var töluvert hærri en það sem KB hafði boðið. Í aðalkröfu sinni krafðist B endurgreiðslu umræddrar fjárhæðar á grundvelli óskráðra reglna um endurgreiðslu ofgreidds fjár en hann þótti ekki hafa sýnt nægilega fram á hvaða upplýsingar hann hafi haft um forsendur uppgjörsins þegar það átti sér stað til að lagður yrði dómur á það hvort umræddum reglum yrði beitt. Það þótti hins vegar ljóst að í bréfi KB hafi verið viðurkennt að B hefði verið ofkrafinn um tilgreinda upphæð. Fólst í bréfinu tilboð, sem B taldist hafa samþykkt að því er varðaði höfuðstól endurgreiðslukröfunnar og hafði samþykki hans sannanlega borist KB áður en sá síðarnefndi afturkallaði tilboðið. Var KB því bundinn við þann þátt tilboðsins. Ekki var fallist á að B ætti með sama hætti rétt á greiðslum vegna vaxta og kostnaðar sem KB hafði boðið enda hafði B krafist hærri greiðslna en boðnar höfðu verið og því hafnað tilboði KB að því leyti. Nánar greindum kröfum B um greiðslu skaðabóta vegna kostnaðar sem hann kvaðst hafa orðið fyrir vegna ofgreiðslunnar var vísað frá héraðsdómi vegna vanreifunar.
K krafðist ómerkingar á tilteknum ummælum S, sem birtust í dagblaði. Hann taldi að í þeim fælust ærumeiðandi aðdróttanir um sig. Voru umrædd greinarskrif S innlegg í heita þjóðfélagsumræðu í tengslum við svokallað FBA mál og báru með sér hvassa gagnrýni á forystumenn Sjálfstæðiflokksins, en K gegndi meðal annars stöðu framkvæmdastjóra flokksins. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sýknu S. Taldi Hæstiréttur að ekki yrði lagt á S að sanna ummælin þar sem sönnunarfærslan myndi reynast honum óhæfilega erfið. Þá kom fram að K væri framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og hefði einnig gegnt tilteknum stöðum eftir tilnefningu flokksins. Þegar litið væri til áberandi stöðu hans innan Sjálfstæðisflokksins yrði hann að una því að um þessi tengsl væri fjallað á opinberum vettvangi og bæri að fara varlega við að hefta slíka umræðu. Sératkvæði.
Á var starfsmaður sjóðsins F, sem var sameinaður öðrum fjárfestingarlánasjóðum í fjárfestingarbankann FBA. Eftir sameininguna kom í ljós að í gögnum um gjaldeyrisstöðu F voru mistök sem færðust inn í gögn FBA um sama efni og tapaði bankinn talsverðu fé af þeim sökum. Stjórnendur FBA töldu Á bera ábyrgð á mistökunum og gáfu honum kost á að láta af störfum hjá bankanum með þeim kjörum sem ráðningarsamningur hans tryggði honum. Féllst Á á það. Á taldi að í framhaldi af starfslokum sínum hjá bankanum hefðu stjórnendur hans breitt út rangar ásakanir um að hann hefði gefið rangar upplýsingar um gjaldeyrisjöfnuð F. Hefðu þessar ásakanir gert honum ókleift að fá starf við sitt hæfi. Stefndi hann FBA og krafði bankann um skaðabætur vegna tapaðra atvinnutekna og miskabætur. Talið var að FBA bæri ekki skaðabótaábyrgð vegna starfslokanna sjálfra, enda hefði báðum aðilum verið heimilt að segja ráðningarsamningnum upp án sérstakra ástæðna. Þá var talið ósannað að ósk stjórnenda FBA um að Á léti þar af störfum hefði valdið honum frekari erfiðleikum við að finna sér nýtt starf en hann mátti búast við að því athuguðu að starfslok hans stöfuðu af mistökum sem hann bar a.m.k. að hluta ábyrgð á. Á hinn bóginn var talið að stjórnendur bankans hefðu gengið lengra í ávirðingum í garð Á en þeim var stætt á í bréfi til ríkisendurskoðunar, sem dreift var til nokkurs fjölda manna, þegar þeir fullyrtu að tapið sem varð, væri honum einum að kenna. Voru Á dæmdar miskabætur vegna þessa.
R ákvað að kanna framkvæmd laga nr. 94/1996 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur með því að bera saman framtaldar fjármagnstekjur 1347 skattgreiðanda og þær fjárhæðir sem bankar og sparisjóðir höfðu reiknað þeim í fjármagnstekjur og dregið af þeim í staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts. Viðskiptabankinn L taldi að R ætti ekki lögvarinn rétt til upplýsinga um þessi atriði án tengsla við eiginlega rannsókn á skattskilum tiltekinna aðila. Talið var að upplýsingar þær, sem R fór fram á, væru liður í hefðbundnu skatteftirliti og í samræmi við hlutverk skattyfirvalda. Varð ekki annað séð en að málefnalegar ástæður hefðu legið að baki beiðni R og öryggissjónarmiða gætt í viðeigandi mæli. Ekki var fallist á að L gæti borið fyrir sig 43. gr. laga nr. 113/1996 um viðskiptabanka og sparisjóði, enda væri þar skýrt tekið fram, að fyrirmæli ákvæðisins vikju þegar skylt væri að veita upplýsingar lögum samkvæmt. Þá þótti 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 ekki heldur koma í veg fyrir að umbeðnar upplýsingar yrðu veittar. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms, um að L væri skylt að afhenda R umbeðnar upplýsingar.