Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á ýmsum lögum vegna samnings milli ríkisstjórnar Íslands annars vegar og ríkisstjórnar Danmerkur og heimastjórnar Færeyja hins vegar. nr. 108/2006

Hæstiréttur birt 19. júní 2013

383/2013

The, Vä, rde, Fund IX-A LP, Vä, rde, Investment, Partners, LP, Vä, rde, Investment og Partners (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn Morgan, Stanley, Senior, Funding og Inc (Heiðar Ásberg Atlason)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var sú ákvörðun slitastjórnar L hf. að viðurkenna við slit félagsins kröfu M með stöðu í réttindaröð samkvæmt 112. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Krafan var reist á fé sem C hafði lagt inn í L hf. en krafan hafði verið framseld til M eftir að henni var lýst við slitameðferðina. Með vísan til fyrri dóma Hæstaréttar og ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins var talið ótvírætt að umrætt fé teldist vera í innstæða í skilningi 1. málsliðar 3. mgr. 9. gr. laga nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta en ekki var talið skipta máli að C hefði verið lánastofnun. Þá var C ekki talið vera aðildarfélag í skilningi 3. gr. og 6. mgr. 9. gr. laga nr. 98/1999 og var C ekki undanskilið tryggingarvernd af þeim sökum. Með vísan til 3. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtækja nyti krafan því forgangs samkvæmt 112. gr. laga nr. 21/1991 við slit L hf. og var ekki fallist á sjónarmið M þess efnis að sá forgangur bryti gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu.