Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lykilorð: Tryggingarráðstöfun

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. september 2023

E-2271/2021

Magnús Eiríkur Eyjólfsson (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður) gegn Arion banka hf (Kristján B. Thorlacius lögmaður)

Ágreiningur var um hvort sjálfskuldarábyrgð stefnanda að fjárhæð 7.000.000 króna, í tengslum við hækkun á yfirdráttarheimild fyrirtækis sem hann var í forsvari fyrir, hefði átt að falla niður samtímis því að stefndi móttók tryggingarbréf að sömu fjárhæð útgefið af stefnanda. Jafnframt var deilt um hvort sjálfskuldarábyrgðin hefði átt að falla niður þegar viðauki var gerður við tryggingarbréfið þannig að það tók einnig til skulda fyrirtækisins. Þá var ágreiningur um hvort það væri ósanngjarnt eða andsætt góðri viðskiptavenju að bera sjálfskuldarábyrgðina fyrir sig, sbr. 1. mgr. 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Hvorki var talið að útfærsla tryggingarbréfsins í upphafi né sá viðauki sem gerður var síðar hafi gefið stefnda tilefni til að ætla að sjálfskuldarábyrgð hans væri fallin niður eða það væri á einhvern hátt ósanngjarnt eða andstætt góðri viðskiptavenju að bera hana fyrir sig. Þá var jafnframt talið að stefnandi hefði sýnt af sér tómlæti með því að mótmæla ekki gildi sjálfskuldarábyrgðarinnar fyrr en sex árum eftir gildistöku hennar, þrátt fyrir að hafa fengið send yfirlit um hana árlega.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2020

E-3541/2020

Húsasmiðjan ehf (Smári Hilmarsson lögmaður) gegn Baldri Jónssyni og Baldri Jónssyni ehf (Þórður Guðmundsson lögmaður)

Ábyrgðaryfirlýsing fyrir vöruúttektum ekki talin tryggja úttektir hjá stefnanda heldur forvera hans. Sýkna vegna aðildarskorts.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. mars 2020

E-4049/2018

Þrotabú Alfacom General Trading ehf (Guðmundur Pétursson lögmaður) gegn Gholamhossein Mohammad Shirazi (Atli Már Ingólfsson lögmaður)

Við skipti á þrotabúi félagsins AC reis ágreiningur með þrotabúinu og fyrrverandi eiganda félagsins AC hvor þeirra ætti 50% hlutafjár í félaginu A101. Dómurinn taldi að fyrrverandi eiganda AC hefði ekki tekist að sýna fram á að það fé sem var notað til að kaupa þau 50% hlutafjár í félaginu A101 sem ágreiningurinn varðaði hefðu komið frá stefnda. Því var fallist á þá kröfu þrotabúsins félagið AC að það ætti hin umdeildu 50% hlutafjár í félaginu A101.

Hæstiréttur birt 13. nóvember 2014

148/2014

Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl) gegn MP banka hf (Ásgeir Þór Árnason hrl) og MP banki hf (Anton Björn Markússon hrl)

A setti M hf. að handveði innstæðu sína á nánar tilgreindum reikningi hjá bankanum. Með yfirlýsingu nokkru síðar veitti A bankanum jafnframt veð í almennum kröfum sem A átti á hendur R vegna tveggja verksamninga í tengslum við fasteignir R. Var R og tilkynnt um veðsetninguna sama dag og tekið fram að greiðslur samkvæmt verksamningunum skyldu lagðar inn á fyrrgreindan bankareikning. Ágreiningur reis um efndir verksamninganna og rituðu A og R undir samkomulag um lokauppgjör þar sem fram kom að R greiddi 50.150.000 krónur inn á reikning A hjá Í hf. M hf. höfðaði í kjölfarið mál gegn R og krafðist, á grundvelli fyrrgreindrar veðsetningar, greiðslu á 28.281.218 krónum, sem nam yfirdrætti á reikningi A hjá M hf. Í dómi Hæstaréttar kom fram að R hafi borið að standa skil á greiðslum vegna uppgjörsins við A í samræmi við fyrrnefnda tilkynningu um veðsetningu og hafi ekki getað losnað undan efndaskyldu með því að greiða beint til A. Var krafa M hf. því tekin til greina.