Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lykilorð: Reikningur

Landsréttur birt 21. maí 2026 kl. 16:22

352/2025

Kjartan Ólafsson (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður) gegn Viðhaldsmönnum ehf (Páll Ágúst Ólafsson lögmaður)

V ehf. og K deildu um hvort greiðsluskylda hvíldi á K vegna framkvæmda sem V ehf. vann að fasteign hans. V ehf. hafði árið 2019 gefið út reikning á hendur E ehf. vegna framkvæmda á fasteigninni sem ekki hafði fengist greiddur að fullu. Höfðaði V ehf. mál gegn E ehf. til innheimtu á reikningnum og var E ehf. dæmt árið 2021 til að greiða V ehf. samtals 1.526.470 krónur. Byggði niðurstaða þess dóms á því að E ehf. hefði verið viðsemjandi V ehf. vegna framkvæmdanna. Bú E ehf. var skömmu síðar tekið til gjaldþrotaskipta og lýsti V ehf. kröfu í þrotabúið en engar greiðslur komu upp í þá kröfu. Í kjölfarið höfðaði V ehf. mál á hendur K vegna kröfu sem byggð var á sama reikningi og V ehf. hafði gefið út áður á E ehf. Byggði V ehf. á því að K væri hinn eiginlegi verkkaupi og viðskiptamaður félagsins vegna framkvæmdanna. Með hinum áfrýjaða dómi var fallist á greiðsluskyldu K og vísað til þess að framkvæmdirnar hefðu verið unnar í þágu K og að tölvupóstsamskipti aðila bentu ótvírætt til þess að þeir hefðu litið svo á að greiðsluskylda hvíldi á K þótt E ehf. hefði haft milligöngu um greiðslurnar og aðila hefði greint á um fjárhæðir. Í dómi Landsréttar kom fram að gögn málsins bæru engin merki um að V ehf. hefði á sínum tíma litið á K sem viðsemjanda sinn. Að virtu heildstæðu mati bæru gögnin merki um að samningssamband V ehf. hefði verið við E ehf. en ekki K. Málatilbúnaður V ehf. væri auk þess í ósamræmi við þau reikningsviðskipti sem upphaflega fóru fram milli V ehf. og E ehf. og þær forsendur sem lagðar voru til grundvallar í dómi héraðsdóms í máli V ehf. gegn E ehf. um að V ehf. hefði átt í beinu samningssambandi við E ehf. Þá taldi Landsréttur að ekki yrði séð af tölvupóstsamskiptum sem lágu fyrir í málinu að K hefði tekist á herðar greiðsluskyldu gagnvart V ehf. vegna framkvæmdanna. Var því hvorki talið að V ehf. hefði fært sönnur á að K hefði í reynd verið viðsemjandi félagsins um verkið né sýnt fram á annan sjálfstæðan lagagrundvöll fyrir því að K bæri greiðsluskyldu vegna kröfu V ehf. í málinu. Var K því sýknaður af kröfu V ehf. 2

Landsréttur birt 16. desember 2025

946/2024

Katla DMI ehf (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður, Snorri Steinn Vidal lögmaður, 1. prófmál) gegn DRIVE4YOU ehf (Pétur Már Jónsson lögmaður)

Ágreiningur málsaðila varðaði kröfu D ehf. um greiðslu þriggja reikninga fyrir akstur fólksflutningabifreiða í þjónustu við K ehf., sem rak ferðaþjónustustarfsemi, en K ehf. byggði á því að í reikningunum fælist ofrukkun miðað við samkomulag aðila, og að D ehf. hefði ofrukkað K ehf. um árabil. Í dómi Landsréttar var vísað til forsendna hins áfrýjaða dóms um að D ehf. hefði rukkað K ehf. um akstur umfram það sem aðilar höfðu samið um en að aðstöðumunur hefði verið með aðilum og hirðuleysi K ehf. um yfirferð reikninga verið stórfellt. Að því gættu var staðfestur hinn áfrýjaði dómur þar sem fallist var á kröfu D ehf., að frádregnum þeim hlutum reikninganna er vörðuðu greiðslur fyrir nánar tilgreinda aukakílómetra, aukaaksturstíma og greiðslur samkvæmt hærri gjaldflokki en grundvöllur var fyrir.

Landsréttur birt 9. október 2025

331/2024

Yabimo ehf (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Gylfaflöt-2 ehf (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) og GF-4 ehf (Heiðar Ásberg Atlason lögmaður)

Y ehf. höfðaði mál á hendur G-2 ehf. og GF-4 ehf. til hagsbóta fyrir þrotabú VRG ehf. samkvæmt 1. mgr. 130. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Krafðist Y ehf. þess aðallega að G-2 ehf. og GF-4 ehf. yrði óskipt gert að greiða þrotabúinu skuld að fjárhæð 557.770 evrur ásamt nánar tilgreindum dráttarvöxtum. Var aðalkrafa Y ehf. reist á því að G-2 ehf. og GF-4 ehf. hefðu, sem eigendur lóða og kaupendur á stálgrindarhúsum á lóð að Gylfaflöt 2-4, skuldbundið sig til að inna af hendi greiðslur til VRG ehf., í samræmi við reikninga sem Y ehf. og Yabimo Services Sp. Z o.o. Sp. K gáfu út á grundvelli samninga frá apríl 2018. Í dómi Landsréttar var talið að G-2 ehf. og GF-4 ehf. hefðu í reynd skuldbundið sig til að inna af hendi greiðslur til VRG ehf. vegna reikninga sem Y ehf. og Yabimo Services gáfu út á grundvelli fyrrgreindra samninga. Var það niðurstaða Landsréttar að Y ehf. ætti rétt á greiðslum úr hendi G- 2 ehf. og GF-4 ehf. vegna reikninganna en umkrafin fjárhæð var lækkuð, meðal annars með hliðsjón af matsgerð sem lá fyrir í málinu. Var G-2 ehf. og GF-4 ehf. óskipt gert að greiða þrotabúi VRG ehf. 434.157 evrur en kröfu Y ehf. um dráttarvexti var vísað frá héraðsdómi þar sem það skorti á reifun kröfunnar.

Landsréttur birt 9. febrúar 2024

757/2022

OSN ehf (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður) gegn Ellerti Skúlasyni ehf (Guðmundur Ágústsson lögmaður, Orri Sigurðsson lögmaður, 2. prófmál)

O ehf. höfðaði mál gegn E ehf. til greiðslu skulda vegna 67 reikninga sem O ehf. hafði gefið út. Með dómi Landsréttar var talið að E ehf. hefði með fyrirvaralausri innborgun að fjárhæð 10.000.000 króna inn á einn tiltekinn reikning viðurkennt kröfu O ehf. Bæri E ehf. sönnunarbyrði fyrir því að krafa O ehf. vegna vinnu við verkið hefði verið ósanngjörn og ekki í samræmi við umfang þess en honum hefði ekki tekist sú sönnun. Var því fallist á kröfu O ehf. um greiðslu eftirstöðva reikningsins sem námu 8.499.000 krónum. Að öðru leyti var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu E ehf. af öðrum kröfum O ehf.

Landsréttur birt 10. mars 2023

752/2021

Munck Íslandi ehf (Sveinbjörn Claessen lögmaður) gegn G&M Sp. z.o.o (Eyvindur Sólnes lögmaður) og útibúi á Íslandi (Sigurður Ágústsson lögmaður, 3. prófmál)

G og L ehf., sem síðar varð M ehf., gerðu með sér verksamninga á árunum 2015 og 2016 sem lutu að því að G skyldi annast um steypu- og mótavinnu sem undirverktaki fyrir M ehf. G og M ehf. rituðu undir samkomulag 20. október 2016 þar sem G skuldbatt sig til að greiða starfsmönnum sínum laun í samræmi við íslensk lög en stæði G ekki við skyldur sínar samkvæmt samkomulaginu væri M ehf. heimilt að rifta öllum samningum aðila án frekari fyrirvara. Þá skuldbatt M ehf. sig með samkomulaginu til þess að greiða 200.000 evrur til G sem skyldi nýta það fé til þess að gera upp það sem vangoldið væri af launum starfsmanna G. M ehf. rifti samningum aðila 2. nóvember 2016 og vísaði til þess að G hefði ekki staðið við skyldu sína samkvæmt framangreindu samkomulagi frá 20. október 2016 um að gera upp laun starfsmanna sinna í samræmi við íslensk lög og kjarasamninga. G mótmælti riftun samninganna og krafðist greiðslu á ógreiddum reikningum. Með dómi héraðsdóms var komist að þeirri niðurstöðu að G hefði sýnt fram á réttmæti allrar fjárkröfu sinnar og riftun M ehf. á samningum aðila hafi verið ólögmæt. Krafan hafi hvorki verið fyrnd né fallin niður fyrir tómlæti G og ekki hefði verið sýnt fram á að M ehf. ætti gagnkröfu á hendur G. Þá hefðu mótbárur M ehf. gegn reikningum verið allt of seint fram komnar. M ehf. var því dæmt til að greiða kröfu G. Fyrir Landsrétti krafðist M ehf. þess aðallega að hinn áfrýjaði dómur yrði ómerktur þar sem niðurstaða héraðsdóms um ólögmæti riftunar byggði á íslenska staðlinum ÍST 30:2012 sem hefði hvorki verið hluti af samningum aðila né hluti málsgagna. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að staðallinn hefði að geyma almenna útboðs- og samningsskilmála um verkframkvæmdir og að tilvísanir í dómi héraðsdóms til staðalsins endurspegluðu almennar reglur sem giltu á réttarsviði um verksamninga. Yrði dómurinn því ekki ómerktur þótt til staðalsins væri vísað í honum. Að því gættu og með þeirri áréttingu að M ehf. stóð ekki við þá skuldbindingu sína samkvæmt samkomulagi aðila frá október 2016 um greiðslu staðfesti Landsréttur héraðsdóm með vísan til forsendna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. febrúar 2021

E-5062/2020

Handafl ehf (Gestur Gunnarsson lögmaður) gegn VHM ehf (Sævar Þór Jónsson lögmaður)

Notendafyrirtæki dæmt til að greiða starfsmannaleigu reikning vegna þjónustusamnings að fullu. Ekki talin skilyrði til að halda eftir greiðslum vegna meintra vangoldinna launa og launatengdra gjalda og lækkun kröfunnar af öðrum sökum ekki samþykkt.

Landsréttur birt 24. janúar 2020

256/2019

Logaland ehf (Gunnar Egill Egilsson lögmaður) gegn Landspítala (Baldvin Hafsteinsson lögmaður)

L ehf. höfðaði mál á hendur Landspítala og krafðist greiðslu skuldar, að fjárhæð 2.004.522 krónur, vegna afhendingar tiltekinna rekstrarvara. Í dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu Landspítalans enda hefði L ehf. ekki sýnt fram á það með málatilbúnaði sínum að Landspítalinn hefði veitt vörunum viðtöku.