Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lykilorð: Geymslugreiðsla

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. maí 2026 kl. 10:55

E-6900/2024

Ernir Bjarnason og Brynjar Óli Bjarnason (Jón Elvar Guðmundsson lögmaður) gegn Heiðari Ægissyni, Guðjóni Pétri Lýðssyni, Lundapysju ehf, Þormari ehf og NordX Import ehf (Sigurður Jakob Helgason lögmaður)

Stefnendur kröfðust viðurkenningar á forkaupsrétti sínum að hlutum í stefnda L ehf., sem stefndi H hafði selt stefndu G, Þ og N samkvæmt kaupsamningi. Í dóminum var talið að kaupsamningurinn hefði verið bindandi og virkjað forkaupsrétt stefnenda samkvæmt samþykktum félagsins. Ekki var fallist á að samningurinn væri ógildur, til málamynda eða að stefnendur hefðu sýnt af sér óheiðarleika við nýtingu forkaupsréttarins. Hins vegar var fallist á varakröfu stefndu um að forkaupsréttur hvors stefnanda tæki aðeins til tiltekinna hluta. Var forkaupsréttur stefnenda að þeim hlutum viðurkenndur og stefnda L ehf. gert að uppfæra hlutaskrá félagsins til samræmis við það.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2017

E-4549/2014

Matthías H Johannessen (Reimar Snæfells Pétursson hrl) gegn Aztiq Pharma Partners ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

Með dómi var ógilt að kröfu eins hluthafa, ákvörðun aðalfundar einkahlutafélags um hækkun hlutafjár og afnám ákvæða um forkaupsrétt hluthafa úr samþykktum félagsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. ágúst 2017

E-4549/2014

Matthías H Johannessen (Reimar Snæfells Pétursson hrl) gegn Aztiq Pharma Partners ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

Krafist var ógildingar á tveimur samþykktum á aðalfundi einkahlutafélags er vörðuðu hækkun hlutafjár og forkaupsrétt. Málinu vísað frá þar sem stefnandi var ekki talinn eiga lögvarða hagsmuni í málinu þar sem hann væri ekki lengur hluthafi.