Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lykilorð: Flóttamenn

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. október 2015

E-79/2015

Sergiy Sidor (Kristrún Elsa Harðardóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson hdl)

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu hælisleitanda um að felldur yrði úr gildi úrskurður þess efnis að hann yrði endursendur til Noregs á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. maí 2013

E-3271/2012

Samuel Eboigbe Unuke (Katrín Oddsdóttir hdl) gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hdl)

Felldur var úr gildi úrskurður innanríkisráðuneytisins þar sem ákveðið var að endursenda stefnanda til Svíþjóðar án þess að umsókn hans um hæli á Íslandi yrði tekin til meðferðar. Einnig var felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að fella niður framfærslu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. apríl 2008

E-4843/2007

Amadou Shernu Daillo (Katrín Theodórsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Sigurður Gísli Gíslason hdl)

Með dóminum var felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar frá 19. júní 2006 um að synja umsókn stefnanda um hæli og neita honum um dvararleyfi og að honum skyldi vísað úr landi. Úrskurður dómsmálaráðuneytisins frá 10. janúar 2007, þar sem ákvörðun Útlendingastonunar var staðfest, var einnig felldur úr gildi. Á báðum stigum stjórnsýslunnar hafði þess ekki verið gætt að afla fullnægjandi upplýsinga um aðstæður stefnanda sjálfs í heimalandinu áður en ákvörðun var tekin. Með því var ekki farið að 10. gr. stjórnsýslulaga en samkvæmt þeirri lagagrein ber stjórnvaldi að sjá til þess að mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. júní 2006

E-6286/2005

Reginald Iheme (Sigríður Rut Júlíusdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl)

Stefnandi krafðist ógildingar á úrskurði dómsmálaráðuneytisins frá 31. ágúst 2005 en með honum var staðfestur úrskurður Útlendingarstofnunar 18. mars s.á. um að synja beiðni stefnanda um hæli á Íslandi sem flóttamanni. Ekki var fallist á kröfuna enda ekki fallist á að úrskurðurinn væri efnislega rangur eins og stefnandi hafði haldið fram. Stefndi var því sýknaður af kröfu stefnanda í málinu.