Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lykilorð: Tilraun til þjófnaðar
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi)
gegn
Ivan Oliinyk (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði brot sín, var sakfelldur skv. ákæru fyrir líkamsárás, þjófnaði og vopnalagabrot og dæmdur í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
S var sakfelld fyrir fjögur þjófnaðarbrot og eina tilraun til þjófnaðar, nytjastuld í fjórum tilvikum, hylmingu og fjársvik í tvígang, skjalabrot, húsbrot, tollalagabrot, tvö brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot með því að hafa alls 18 sinnum ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, þar af 11 sinnum að auki undir áhrifum slævandi lyfja. Auk þess var hún sakfelld fyrir önnur umferðarlagabrot og brot gegn 1. mgr. 168. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en með þeirri háttsemi raskaði hún umferðaröryggi á alfaraleið og stofnaði lífi og heilsu fólks í hættu á ófyrirleitinn hátt. Með hliðsjón af framansögðu og þrátt fyrir að S hafi játað brot sín skýlaust og ekki áður sætt refsingu þóttu ekki vera efni til að skilorðsbinda refsingu hennar að hluta eða í heild. Var S gert að sæta fangelsi í átta mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Martin Erni Arnarsyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot, vopnalaga-, fíkniefnalaga- og umferðarlagabrot.
E var sakfelldur fyrir fíknefnalagabrot, vopnalagabrot, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur sviptur ökurétti og tilraun til þjófnaðarbrots. Með vísan til sakaferils E var refsing hans ákveðin sex mánaða fangelsi auk þess sem hann var sviptur ökurétti í fjögur ár og fíkniefni og hnúajárn voru gerð upptæk.