Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-1031/2020:

Ákæruvaldið

(Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)

gegn

Davíð Nikulássyni

I

(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Gripdeild. Hegningarauki. Hótanir. Játningarmál. Skaðabótakrafa. Skilorð. Skilorðsrof. Þjófnaður. Upptaka. Vopnalagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot, hótanir, þjófnaði og gripdeild.

I

Mál þetta, sem dómtekið var 30. september s.l., höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 21. apríl 2020 á hendur Davíð Nikulássyni, kt. 000000-0000, [...], fyrir eftirtalin brot framin á höfuðborgarsvæðinu árin 2016, 2018 og 2019; „1. Fyrir fíkniefna- og vopnalagbrot, með því að hafa sunnudaginn 26. júní 2016 að […] í […] haft í vörslum sínum 13 kannabisplöntur, og að hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur, jafnframt á sama tíma haft í vörslum sínum og átt loftskambyssu án skotvopnaleyfis og rafstuðsbyssu og brúnan fjaðrahníf, sem lögregla fann eftir leit. M. 007-2016-36868

Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018 og 1. mgr. 12. gr., sbr. g.-lið 1. mgr. 2. gr., og við b. og c. -lið 2. mgr. 30. gr. sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998 .

  1. Fyrir hótanir og vopnalagabrot, með því að hafa að kvöldi laugardagsins 10. nóvember 2018 innandyra að heimili móður sinnar að […] hótað að drepa móður sína, […] og var þetta til þess fallið að vekja hjá henni ótta um líf sitt og velferð, og í framhaldinu haft í vörslum sínum á almannafæri exi, sem ákærði bar innanklæða við ölstofuna Riddarann að Engihjalla 8 í Kópavogi. M. 007-2018-77225

    Telst þetta varða við 233. gr. almennra hegningarlaga og 1. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

  2. Fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 23. janúar 2019 í versluninni Jack and Jones í Kringlunni í Reykjavík stolið tveimur skyrtum samtals að verðmæti kr. 17.980,-. M. 007-2019-4027

    Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  3. Fyrir hótanir og brot á lögreglulögum, með því að hafa að kvöldi miðvikudagsins 23. janúar 2019 innandyra að heimili móður sinnar að […] hótað að drepa bróður sinn […] og kvaðst ákærði að ætla að finna exi til þess, og var þetta til þess fallið að vekja hjá honum ótta um líf sitt og velferð og í framhaldinu eftir að lögregla var kölluð til að […] eigi sinnt fyrirmælum lögreglu við handtöku en ákærði sleit sig lausan þegar lögregla reyndi að handjárna hann og sló til lögreglumannsins, sem beita þurfti varnarúða til að handjárna ákærða við handtökuna. M. 007-2019-4050

    Telst þetta varða við 233. gr. almennra hegningarlaga og 19. gr., sbr. 41. gr. lögreglulaga 90/1996.

  4. Fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 13. mars 2019 í verslun ÁTVR að Krossmóum 4 í Reykjanesbæ, stolið flösku af Tinda vodka að fjárhæð kr. 5.399,-. M. 008-2019-6698

    Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga.

  5. Fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 16. maí 2019 í verslun ÁTVR að Helluhrauni 16-18 í Hafnarfirði, stolið 500 ml flösku af Tinda vodka að fjárhæð kr. 3.940,-. M. 007-2019-49190

    Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga.

  6. Fyrir þjófnað, með því að hafa föstudaginn 17. maí 2019 í verslun ÁTVR að Helluhrauni 16- 18 í Hafnarfirði, stolið flösku af Koskenkorva vodka að fjárhæð kr. 2.798,-. M. 007-2019-49185

    Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga.

  7. Fyrir vopnalagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 13. ágúst 2019 á almannafæri utandyra að […] í Hafnarfirði haft í vörslum sínum og átt sverð, sem ákærði bar á sér við afskipti lögreglu. M. 007-2019-51046

    Telst þetta varða við 1. mgr., og d. lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

  8. Fyrir gripdeild, með því að hafa fimmtudaginn 15. ágúst 2019 í verslun 10-11 að Laugavegi 116 í Reykjavík tekið heimildarlaust sígarettupakka og eldspýtur samtals að fjárhæð kr. 1.668,- og yfirgefið verslunina án þess að greiða fyrir vörurnar. M. 007-2019-51423

    Telst þetta varða við 245. gr. almennra hegningarlaga.

  9. Fyrir brot á lögreglulögum og vopnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 15. ágúst 2019 á dvalarstað sínum innandyra að […] eigi sinnt fyrirmælum lögreglu um að láta frá sér tvo hnífa og skjöld og verið með ógnandi hegðun við handtöku þannig að lögregla þurfti að beita varnarúða til að handjárna og afvopna ákærða og jafnframt haft í vörslum sínum 3 sverð, fjaðrahníf (butterfly hníf) og 6 bitvopn (hnífa - bitvopn með blaði lengra en 12 cm), og geymt á dvalarstað sínum skotfæri, skotgeymi, haglaskot, riffilskot og 71 byssukúlu (sbr. munaskrá 139702, merkt 495568-571) eigi í læstum hirslum í herbergi á heimili sínu M. 007-2019-51664

    Telst þetta varða við 19. gr., sbr. 41. gr. lögreglulaga nr. 90/1996, 23. gr., og 1. mgr., og.- a., -b. og -d. lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

  10. Fyrir eignaspjöll, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 31. ágúst 2019 innandyra á Hilton Hótel Nordica við Suðurlandsbraut í Reykjavík valdið skemmdum á móttökuborði og glerhillu hótelsins, með því berja í borðið og hilluna með flösku með þeim afleiðingum að borðið og hillan brotnuðu. M. 007-2019-55101

    Telst þetta varða við 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga.

  11. Fyrir vopnalagabrot, með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 3. október 2019 á veitingastaðnum Mónakó að Laugvegi 78 í Reykjavík haft í vörslum sínum á almannafæri exi, sem lögregla fann eftir leit í buxnastreng ákærða. M. 007-2019-62946

    Telst þetta varða við 1. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á riffil- og haglaskoti og 71 byssukúlu, (sbr. munaskrá 139702, merkt 495568-571), 4 sverðum og 2 öxum, loftskambyssu, rafstuðsbyssu, 7 hnífum, og 2 fjaðrahnífum, samkvæmt 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998.“ Í málinu gerir Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins einnig svohljóðandi einkaréttarkröfur: „1. Af hálfu Áfengis- og tókbaksverslunar ríkisins (ÁTVR), kt. 000000-0000, Stuðlahálsi 2 í Reykjavík, gerir Skúli Bjarnason hrl. kröfu um skaðabætur úr hendi ákærða að fjárhæð kr. 5.339,- með vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá 13. mars 2019 til 4. maí 2019. Eftir það er krafist dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist lögmannskostnaðar að mati dómsins eða samkvæmt málskostnaðarreikningi, sem áskilinn er réttur til að leggja fram síðar. (ákæruliður 5, mál. nr. 008- 2019- 6698).

  12. Af hálfu Áfengis- og tókbaksverslunar ríkisins (ÁTVR), kt. 000000-0000, Stuðlahálsi 2 í Reykjavík, gerir Skúli Bjarnason hrl. kröfu um skaðabætur úr hendi ákærða að fjárhæð kr. 3.940,- með vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá 16. maí 2019 til 27. júlí 2019. Eftir það er krafist dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist lögmannskostnaðar að mati dómsins eða samkvæmt málskostnaðarreikningi, sem áskilinn er réttur til að leggja fram síðar. (ákæruliður 6, mál. nr. 007- 2019- 49190).
  13. Af hálfu Áfengis- og tókbaksverslunar ríkisins (ÁTVR), kt. 000000-0000, Stuðlahálsi 2 í Reykjavík, gerir Skúli Bjarnason hrl. kröfu um skaðabætur úr hendi ákærða að fjárhæð kr. 2.798,- með vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá 17. maí 2019 til 27. júlí 2019. Eftir það er krafist dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist lögmannskostnaðar að mati dómsins eða samkvæmt málskostnaðarreikningi, sem áskilinn er réttur til að leggja fram síðar. (ákæruliður 7, mál. nr. 007- 2019- 49185).“

    Sama dag var einnig dómtekið mál sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu höfðaði með svohljóðandi ákæru 8. september 2020 á hendur ákærða; „1. Fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 1. október 2019 í verslun BYKO, Skemmuvegi 4a, Kópavogi, stolið sandskífu (slípibelti), Bosch handfræsara, 10 stk af borskrúfum, 7 stk af 5 mm ró og 7 stk af 5 mm splittró, keðju, spraybrúsa og sprautubyssu, samtals að fjárhæð kr. 27.158,- M. 007-2019-78821

    Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 9/1940.

  14. Fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 2. október 2019 í verslun BYKO að Skemmuvegi 4a, Kópavogi, stolið hleðslurafhlöðu af gerðinni Bosch, einangrunarbandi, strigabandi, 2 stk,. Bison snertilím og pönnu, samtals að fjárhæð kr. 23.667,- M. 007-2019-80386

    Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

    Samkvæmt heimild í 1. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála ákvað dómari að málin skyldu sameinuð og þau dæmd sem eitt mál undir málsnúmerinu S-1031/2020. Í sama þinghaldi óskaði sækjandi bókað að ákæruvaldið félli frá hótunarbroti samkvæmt 2. tölulið fyrri ákærunnar, dagsettri 21. apríl 2020, en héldi sig við þá verknaðarlýsingu að ákærði hefði þá haft í vörslum sínum á almannafæri exi, sem hann bar innanklæða við ölstofuna Riddarann að Engihjalla 8 í Kópavogi. Að þessari breytingu fenginni viðurkenndi ákærði skýlaust öll brot sín samkvæmt báðum ákærum og féllst á upptökukröfu ákæruvaldsins. Einnig samþykkti hann einkaréttarkröfu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning ákærða væri sannleikanum samkvæm, enda í samræmi við gögn málsins, var ákveðið að fara með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008, og látið nægja að skírskota til ákæru um málsatvik, sbr. 4. mgr. 183. gr. sömu laga. Krefst ákærði vægustu refsingar sem lög leyfa og að refsingin verði að öllu leyti bundin skilorði. Jafnframt krefst hann þess að málsvarnarþóknun verjanda verði greidd úr ríkissjóði.

II

Í ljósi skýlausrar játningar ákærða telst sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem hann er sakaður um í áðurgreindum ákærum. Eru brot hans þar rétt heimfærð til refsiákvæða að öðru leyti en því að brot ákærða samkvæmt 2. tölulið ákæru 21. apríl 2020 telst, í ljósi áðurnefndrar breytingar, varða við 1. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr., vopnalaga nr. 16/1998.

Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt sakavottorði hefur honum alls fjórum sinum verið gerð refsing frá árinu 2006, fyrir þjófnað, gripdeild, hótanir, vopnalagabrot og umferðalagabrot. Síðast var hann með dómi Héraðsdóms Reykjaness 15. mars 2017 dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir þjófnað og gripdeild. Var sá dómur hegningarauki við sekt sem ákærði hafði gengist undir hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 27. júní 2016, að fjárhæð 50.000 krónur, en jafnframt var þá skilorðshluti dóms frá 7. júní 2013 dæmdur upp, þar sem ákærði var dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af voru þrír mánuðir bundnir skilorði til þriggja ára.

Brot ákærða samkvæmt 1. tölulið ákæru 21. apríl 2020 var framið degi áður en ákærði gekkst undir fyrrnefnda sektargreiðslu 27. júní 2016. Ber því nú að dæma honum hegningarauka við þau viðurlög, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með brotum samkvæmt 2., 3., 4. og 5. tölulið sömu ákæru hefur ákærði hins vegar rofið skilorð dóms Héraðsdóms Reykjaness 15. mars 2017. Ber því að taka þann dóm upp og ákveða ákærða refsingu í einu lagi, sbr. 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga.

Virða ber skýlausa játningu ákærða honum til refsimildunar, en einnig er til þess horft að ákærði hefur um langt skeið glímt við veikindi og býr nú á áfangaheimili Samhjálpar. Jafnframt ber að taka tillit til þess að verulegur dráttur hefur orðið á útgáfu ákæru vegna brots ákærða samkvæmt 1. tölulið fyrri ákærunnar, og er sá dráttur með öllu óútskýrður. Með vísan til alls ofanritaðs ákveðst hæfileg refsing ákærða fangelsi í átta mánuði, en rétt þykir þó í ljósi aðstæðna að skilorðsbinda fimm mánuði af refsivist hans, svo sem nánar greinir í dómsorði. Þá verður í samræmi við tilvitnuð ákvæði í ákæru orðið við kröfu ákæruvaldsins um upptöku þeirra muna sem þar greinir.

Eins og áður greinir krefst Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins þess að ákærði greiði versluninni skaðabætur, samtals að fjárhæð 12.077 krónur, auk vaxta og dráttarvaxta. Hefur ákærði fallist á þá kröfu og verður hann því dæmdur til greiðslu hennar, auk hæfilegs málskostnaðar, allt eins og nánar greinir í dómsorði.

Í samræmi við úrslit málsins og með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði loks dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar, en þar er um að ræða sakarkostnað lögreglu, 86.815 krónur, auk þóknunar til skipaðs verjanda ákærða, Vilhjálms Hans Vilhjálmssonar lögmanns, sem ákveðst 458.800 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ingimundur Einarsson héraðsdómari kvað upp dóminn.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Davíð Nikulásson, sæti fangelsi í átta mánuði, en fresta skal fullnustu fimm mánaða af refsivist hans og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja, haldi hann almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Upptækt skal gert í ríkissjóð riffil- og haglaskot, 71 byssukúla, 4 sverð, 2 axir, loftskammbyssa, rafstuðsbyssa, 7 hnífar og 2 fjaðrahnífar.

Ákærði greiði alls 545.615 krónur í sakarkostnað, þar af 458.800 krónur í þóknun til skipaðs verjanda síns, Vilhjálms Hans Vilhjálmssonar lögmanns.

Ákærði greiði Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins 12.077 krónur, ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 5.339 krónum frá 13. mars 2019 til 21. júní sama ár, en dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Einnig greiði hann vexti samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 af 3.940 krónum frá 16. maí 2019 til 14. september sama ár, en dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Loks greiði hann vexti samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 af 2.798 krónum frá 17. maí 2019 til 14. september sama ár, en dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Ákærði greiði enn fremur Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins 60.000 krónur í málskostnað.

Ingimundur Einarsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 9/1940 Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til að banna að veita upplýsingar um ferðir skipa 244. gr.
Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 19. gr.41. gr.57. gr.60. gr.77. gr.78. gr.233. gr.244. gr.245. gr.1. mgr. 257. gr.
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni 2. gr.5. gr.6. gr.
Lög nr. 90/1996 Lögreglulög 19. gr.41. gr.
Lög nr. 16/1998 Vopnalög 1. mgr. 2. gr.1. mgr. 12. gr.23. gr.1. mgr. 30. gr.2. mgr. 30. gr.1. mgr. 36. gr.1. mgr. 37. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 6. gr.1. mgr. 8. gr.9. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 169. gr.4. mgr. 183. gr.1. mgr. 235. gr.