Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 68/1996"

4 dómar fundust

Hæstiréttur birt 8. desember 2011

134/2011

Sjúkrahúsið á Akureyri (Einar Karl Hallvarðsson hrl, Soffía Jónsdóttir hdl) gegn Guðna Arinbjarnar (Karl Axelsson hrl)

Sjúkrahúsið SA höfðaði mál gegn lækninum G til endurkröfu skaðabóta sem SA hafði greitt A vegna tjóns sem A taldi sig hafa orðið fyrir í skurðaðgerð sem G framkvæmdi hjá SA. Aðgerðin hafði verið framkvæmd sem svokallað ferliverk en G hafði gert samkomulag við SA um að hann ynni slík verk á sjúkrahúsinu á grundvelli samkomulags SA við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Með vísan til samkomulags aðila og hvernig staðið var að uppgjöri og greiðslum vegna ferliverkanna var talið að G hefði framkvæmt þau sem verktaki en ekki starfsmaður SA. Af þessum sökum var ekki unnt að líta svo á að SA hefði borið vinnuveitandaábyrgð á ferliverkum G og gat 23. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 því ekki tekið til réttar SA til að krefja G um endurgreiðslu þeirra skaðabóta sem deilt var um. Í samkomulagi aðila var kveðið á um að SA bæri ábyrgð gagnvart sjúklingum á tjóni sem kynni að hljótast af aðgerðum sem það tók til. Sérstaklega var tekið fram að þetta rýrði ekki endurkröfurétt SA. Gögn málsins báru með sér að G hefði að minnsta kosti að einhverju leyti verið kunnugt um kröfu A og að hann hefði ekki gert athugasemd við meðferð SA á kröfu A. Af hálfu G var því ekki borið við að SA hefði greitt A bætur umfram það sem skylda stóð til og af gögnum málsins var ljóst að G hefði verið kunnug ráðagerð SA um að beina endurkröfu að sér vegna greiðslu skaðabótanna. Í ljósi þessa var G gert að endurgreiða SA þá fjárhæð sem sjúkrahúsið hafði greitt A ásamt dráttarvöxtum.

...117/1993 eða samkvæmt reglugerðarákvæðum um breytingu á því gjaldi, nú reglugerð nr. 68/1996. 3.gr. Læknir, sem starfar skv. samkomulagi þessu að ferliverkum, skal fá greitt sem verktaki...

Héraðsdómur Reykjaness birt 7. desember 2010

E-3302/2009

Sjúkrahúsið á Akureyri (Arnbjörg Sigurðardóttir hdl) gegn Guðna Arinbjarnar (Ásgerður Ragnarsdóttir hdl)
Lykilorð: Endurkrafa.

Hafnað var endurkröfu sjúkrahúss á hendur lækni vegna meintra mistaka hans þar sem talið var að hann hefði ekki verið sjálfstæður verktaki heldur venjulegur launamaður. Þá var kröfunni einnig hafnað á þeirri forsendu að stefnandi hefði fyrirgert rétti sínum vegna tómlætis á því að halda kröfunni fram.

...117/1993 eða samkvæmt reglugerðarákvæðum um breytingu á því gjaldi, nú reglugerð nr. 68/1996. 3.gr. Læknir, sem starfar skv. samkomulagi þessu að ferliverkum, skal fá greitt sem verktaki...

Hæstiréttur birt 11. desember 2003

319/2003

Tryggingastofnun ríkisins (Jón Steinar Gunnlaugsson hrl) gegn Íslenska bæklunarlæknafélaginu (Ragnar Halldór Hall hrl)

Í samningi milli T og félagsmanna Í um greiðslu T á hluta almannatrygginga í lækniskostnaði vegna meðferðar sjúklinga hjá félagsmönnum Í var meðal annars kveðið á um afslátt, sem færi hækkandi eftir því sem læknisverk yrðu fleiri á hverju ári. Í nóvember 2002 tjáðu nokkrir félagsmenn Í sjúklingum sínum að þeim stæði ekki til boða á því ári að fá þjónustu með greiðsluþátttöku T en jafnframt að þjónustan stæði til boða ef sjúklingarnir greiddu að fullu fyrir hana sjálfir. Í málinu krafðist Í viðurkenningar á því að félagsmönnum þess væri þetta heimilt og vísaði meðal annars til 2. mgr. 5. gr. fyrrgreinds samnings, sem kvað á um að lækni væri heimilt að taka sjúkratryggðan einstakling til meðferðar án greiðsluafskipta T ef sjúklingur óskaði þess. Talið var að í ljósi 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar yrði að líta svo á að félagsmenn Í hefðu óskert frelsi til að ráða verkum sínum, innan þeirra marka sem því frelsi kynni að vera sett með samningum þeirra eða lögum. Í lögum 117/1993 væri hvergi mælt fyrir um bann við því að leysa af hendi læknisverk fyrir annað endurgjald en greini í fyrrnefndum samningi við T og ekki sé kveðið á um að lækni, sem bundinn sé af samningnum sé skylt að sinna hverjum þeim sjúklingi sem til hans leiti. Engin skilyrði komi fram í 2. mgr. 5. gr. samningsins önnur en þau að sjúklingur óski sjálfur eftir þjónustu án greiðsluþátttöku T og þótti forsaga ákvæðisins ekki gefa tilefni til ályktana um að heimildin, sem þar komi fram sé bundin frekari skilyrðum en berum orðum greini. Félagsmönnum Í sé hvorki eftir nefndum samningi né einstaklingsbundnum samningum sínum við T skylt að leysa af hendi sérhvert læknisverk á sérfræðisviði sínu, sem leitað sé til þeirra um, eða slík verk allt að tilteknu magni. Þeir hafi því ekki með samningssambandi sínu við T afsalað sér rétti til að velja eftir sínum eigin forsendum hvaða verkum þeir sinni, þar á meðal hvort þeir taki að sér verk með tilliti til fjárhagslegra ástæðna. Voru kröfur Í því teknar til greina.

...117/1993 og/eða samkvæmt reglugerðarákvæðum um breytingu á því gjaldi, nú reglugerð nr. 68/1996. Þeim hluta greiðslu, sem TR skal greiða, skal læknir aldrei veita viðtöku úr hendi...

Hæstiréttur birt 10. apríl 2003

122/2003

Félag íslenskra bæklunarlækna (Ragnar Halldór Hall hrl) gegn Tryggingastofnun ríkisins (Jón Steinar Gunnlaugsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms, þar sem máli F á hendur T var vísað frá dómi. Samkvæmt hljóðan aðalkröfu F leitaði hann dóms um viðurkenningu á heimild félagsmanna sinna, sem stóðu í nánar tilgreindu samningssambandi við T, til að leysa af hendi tiltekin læknisverk fyrir sjúkratryggða menn að ósk þeirra sjálfra gegn öðru endurgjaldi úr hendi þeirra en því, sem ákveðið var í samningi læknanna við T. Talið var að yrði krafan tekin til greina yrði viðurkenningin mun víðtækari en séð yrði af aðdraganda málsóknarinnar eða málatilbúnaði F að öðru leyti að væri ætlun hans að afla dóms um. Væri krafan því svo óákveðin og vanreifuð að ófært væri að fella efnisdóm á hana. Til vara krafðist F þess að viðurkennt yrði með dómi að þeir félagsmenn hans, sem bundnir voru af samningum við T, hafi ekki brotið gegn honum með því að verða á nánar tilgreindu tímabili „við óskum sjúkratryggðra sjúklinga um að taka þá til læknismeðferðar án greiðsluafskipta sjúkratrygginga.“ T hafði ekki vefengt að félagsmönnum F væri frjálst við tilteknar aðstæður að taka að öllu leyti við þóknun fyrir læknismeðferð úr hendi sjúkratryggðs. Varakrafa F var þó ekki bundin við tilvik, sem féllu þar fyrir utan. Þótt krafan væri bundin við ákveðnar gerðir félagsmanna F á tilteknu tímabili, varðaði hún hvorki nánar ákveðin tilvik né aðstæður. Var hún því svo óákveðin og vanreifuð að efnisdómur varð ekki felldur á hana. Þótt hvorki væri efni til að fallast á með T að dómkröfur F væru andstæðar ákvæði 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 né að hann brysti heimild samkvæmt 3. mgr. sömu lagagreinar til málshöfðunar, voru af þessum ástæðum þeir annmarkar á málinu að vísa bar því sjálfkrafa frá héraðsdómi. Lækni er heimilt að taka sjúkratryggðan einstakling til meðferðar án greiðslu­afskipta sjúkratrygginga ef sjúkratryggður óskar þess.” Með bréfi stefnda til læknisins dagsettu 25. nóvember sama ár var frá því greint að stefnda hefðu borist kvartanir frá sjúklingum sem skýrðu svo frá að þeim hefði verið boðið viðtal hjá lækninum gegn því að greiða kr. 7.000, ella yrðu þeir að bíða fram á næsta ár. Var í bréfinu minnt á riftunarákvæði 9. gr. samningsins og upp­sagn­ar­ákvæði 11. gr. Þá segir svo í bréfinu: „Það er alveg ljóst að læknir, sem starfar skv. samningi LR f.h. bæklunarlækna og TR um bæklunarlækningar utan sjúkrahúsa, hefur ekki nokkra heimild til að láta sjúkratryggða sjúklinga greiða hærra gjald en til­tekið er í reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, nema hinir sjúkratryggðu óski þess sérstaklega sjálfir. Það eru fyrst og fremst sjúkl­ingar sem af persónulegum ástæðum kæra sig ekki um að nöfn þeirra komi fram á reikn­ingum til TR, sem þess óska. Tryggingastofnun lítur því svo á að með framan­greindri gjaldtöku hafir þú brotið 5. gr. samnningsins.” Var lækninum tilkynnt að ákveðið hefði verið að vísa málinu til samráðsnefndar aðila í samræmi við heimild í 3. mgr. 9. gr. samningsins.

...117/1993 og/eða samkvæmt reglugerðarákvæðum um breytingu á því gjaldi, nú reglugerð nr. 68/1996. Þeim hluta greiðslu, sem TR skal greiða, skal læknir aldrei veita viðtöku úr hendi...