Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 631/2001"

5 dómar fundust

Hæstiréttur birt 8. október 2009

39/2009

Íslenska ríkið (Sigurður Gísli Gíslason hrl) gegn Berghóli ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

B hóf að gera út skip til veiða á skötusel í maí 2000. Sjávarútvegsráðherra gaf út 16. ágúst 2001 reglugerð nr. 631/2001 um aflamark fyrir fiskveiðiárið 2001-2002. Reglugerðinni var ætlað að koma í stað reglugerðar, sem sett hafði verið 5. júní sama ár, en með nýju reglugerðinni var gerð sú breyting að takmörkun á veiðum tók til nýrra tegunda, keilu, löngu og skötusels, sem ekki höfðu áður verið bundnar ákvæðum um leyfilegan heildarafla. Í ákvæði til bráðabirgða var kveðið á um það að fiskiskipum, sem höfðu veiðileyfi með almennu aflamarki og veiðireynslu á tímabilinu 1. júní 1998 til 31. maí 2001, skyldi úthlutað aflahlutdeild í þessum tegundum á grundvelli veiðireynslu. B gerði athugasemdir við kvótasetninguna við sjávarútvegsráðherra og taldi að taka hefði átt tillit til þeirra sem hefðu hafið sérstaka sókn í skötusel og í því skyni fjárfest í tækjum og búnaði til veiðanna. Þar sem það var ekki gert taldi B að ekki væri lengur grundvöllur fyrir útgerðinni og lagði hann því skipinu. Höfðaði hann mál og krafðist bóta vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna þess að ekki hefði verið tekið tillit til aflareynslu á tímabilinu 1. júní til 16. ágúst 2001 við ákvörðun á aflahlutdeild hans í skötusel fyrir næsta fiskveiðiár. Í 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða kom fram að þegar takmarka ætti leyfðan heildarafla í fyrsta sinn á tegund sjávardýra sem ekki hefði áður verið háð slíkri takmörkun skyldi úthluta aflahlutdeild á grundvelli þriggja síðustu veiðitímabila. Talið var að ákvæði í reglugerð nr. 631/2001 um lok viðmiðunartímabils veiðireynslu svo löngu fyrir útgáfudag hennar væri andstætt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/1990 er leitt hefði til tjóns fyrir B vegna veiðireynslu sem hann hefði aflað sér á umræddu tímabili. Var viðurkennd skaðabótaskylda Í og var krafa B tekin til greina.

...ágúst 2001 reglugerð nr. 631/2001 um aflamark fyrir fiskveiðiárið 2001-2002. Reglugerðinni var ætlað að koma í stað reglugerðar, sem sett hafði verið 5. júní sama ár, en með...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. október 2008

E-7690/2007

Berghóll ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Sigurður Gísli Gíslason hdl)

Stefnandi krafðist skaðabóta vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna þess að ekki hafði verið notað rétt viðmiðunartímabil við úthlutun aflaheimilda í skötusel fiskveiðiárin 2001/2002 og 2002/2003. Fallist var á kröfuna og dæmt að íslenska ríkið skyldi greiða stefnanda skaðabætur.

...Þar var vísað til ákvæðis til bráðabirgða í reglugerð nr. 631/2001 um að fyrir upphaf fiskveiðiársins 1. september 2001 til 31. ágúst 2002 skuli þeim skipum, sem aflareynslu hafi...

Hæstiréttur birt 23. febrúar 2006

371/2005

Íslenska ríkið (Skarphéðinn Þórisson hrl, Anton Björn Markússon hdl) gegn Síldey ehf (Logi Guðbrandsson hrl, Hilmar Gunnlaugsson hdl)

X var ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa haft samræði við Y á meðan hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga. Í héraðsdómi, sem staðfestur var með vísan til forsendna hans, var talið sannað að X hefði haft samræði við Y gegn vilja hennar og þar með gerst brotlegur við 196. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var hann dæmdur í 18 mánaða fangelsi og til að greiða Y 800.000 krónur í miskabætur.

...750/2001 sem breytti reglugerð nr. 631/2001 var síðastgreinda tímamarkið fært til 1. desember 2001. Með reglugerð nr. 895/2001 sem breytti reglugerð nr. 631/2001 var nefnt tímamarkið...

Hæstiréttur birt 29. janúar 2004

226/2003

Útgerðarfélagið Rún sf (Garðar Garðarsson hrl) gegn Árna Jónssyni ehf (Jónatan Sveinsson hrl)

Með kaupsamningi 31. júlí 2001 keypti Á fiskibátinn R af Ú. Fyrir kaupin voru veiðar á keilu, löngu og skötusel frjálsar öllum, sem höfðu almennt veiðileyfi samkvæmt 4. gr. laga nr. 38/1990 og sættu veiðar á þessum fisktegundum ekki takmörkunum á leyfilegum heildarafla. Með reglugerð sem gefin var út tveimur vikum eftir kaupin varð breyting á þessu og skyldi aflahlutdeild á fyrrgreindum fisktegundum úthlutað í samræmi við veiðireynslu skips. Ú taldi að sér bæru umdeildar veiðiheimildir en Á hafnaði því og veitti ekki atbeina sinn til að þær yrðu fluttar af fiskibátnum R yfir á nýtt skip Ú. Með vísan til fyrri dóma Hæstaréttar í sambærilegum málum var fallist á að Ú hafi átt rétt á að fá í sinn hlut aflamark og aflahlutdeild þá sem ágreiningurinn snérist um. Þar sem Á hafði komið í veg fyrir að Ú gæti nýtt sér þessi réttindi átti Ú rétt á skaðabótum úr hendi Á og voru kröfur félagsins teknar til greina.

...Á þessu var gerð breyting með reglugerð nr. 631/2001 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2001/2002, sem gefin var út 16. ágúst 2001 eða rúmum tveimur vikum eftir gerð...

Hæstiréttur birt 27. nóvember 2003

217/2003

Pétursskip, útgerðarfélag ehf (Hákon Árnason hrl) gegn Tómasi Sæmundssyni (Garðar Garðarsson hrl)

Í kaupsamningi og afsali vegna sölu T á tilteknu fiskiskipi til P, var tekið fram að skipið væri selt án þar tilgreindra fiskveiðiréttinda. Samkvæmt reglugerð nr. 631/2001 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2000/2001, sem gefin var út þremur dögum eftir gerð samningsins var heildarafli á keilu, löngu og skötusel takmarkaður, en áður höfðu veiðar á þessum tegundum ekki sætt takmörkunum. Skyldi tekið mið af veiðireynslu fiskiskipa á árunum 1998 til 2001 við úthlutun veiðiheimilda á þessum tegundum. Ekkert var kveðið á um það í samningi T við P hvorum þessi réttur skyldi tilheyra. Með vísan til dóms Hæstaréttar 1996:126 var fallist á að T hafi átt rétt á að fá í sinn hlut aflamark og aflahlutdeild, sem ágreiningur þeirra snerist um. Matsgerð var lögð til grundvallar um tjón T, enda hafði P ekki hlutast til um að fá henni hnekkt með yfirmati og engum stoðum rennt undir andmæli við henni.

...Samkvæmt reglugerð nr. 631/2001 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2000/2001, sem gefin var út þremur dögum eftir gerð samningsins var heildarafli á keilu, löngu og skötusel takmarkaður, en...