Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 574/2005"
8 dómar fundust
Mál þetta varðar kröfur stefnenda um staðalaðar skaðabætur vegna tafa sem urðu á flugi hjá stefnda 26. febrúar 2022. Stefndi greiddi stefnendum höfuðstól krafna þeirra ásamt umkröfðum skaðabótavöxtum 24. janúar 2024 og laut meginágreiningur málsaðila að því hvort stefnendur ættu rétt á dráttarvöxtum af kröfum sínum frá 4. apríl 2022 til greiðsludags. Niðurstaða dómsins var í aðalatriðum sú að efndir krafna stefnenda hefðu ekki farið fram vegna atvika sem þau vörðuðu og þar með að um viðtökudrátt af þeirra hálfu hefði verið að ræða allt þar til umboð til lögmanns þeirra til að taka við greiðslu fyrir þeirra hönd voru lögð fram í þinghaldi í málinu 15. janúar 2024. Þegar af þeirri ástæðu yrði stefnda ekki gert að greiða dráttarvexti af kröfum stefnenda, sbr. 7. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Stefndi hafði þannig þegar að hluta leyst af hendi þær skyldur sem hann var krafinn um í málinu og ekki fallist á kröfur stefnenda að öðru leyti og var stefndi því sýknaður.
...aflýst eða mikil seinkun verður, sem var upphaflega innleidd hér á landi með reglugerð nr. 574/2005, og er ágreiningslaust að til bótaskyldu stefnda á grundvelli hennar stofnaðist umræddan dag...
Stefnandi átti rétt á bótum úr hendi stefnda vegna aflýsingar flugs og var höfuðstóll kröfunnar greiddur sama dag og málið var þingfest. Aðila greindi á um hvort krafan skyldi bera vexti og dráttarvexti. Fallist var á að um væri að ræða skaðabótakröfu sem bæri vexti í samræmi við 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, sem og að krafan skyldi bera dráttarvexti frá því að mánuður var liðinn frá því að kröfubréf var sent, sbr. 9. gr. laganna. Stefnda var gert að greiða aðalkröfu stefnanda með þeim hætti sem hún var endanlega sett fram að virtri greiðslu stefnda.
...aflýst eða mikil seinkun verður, sem var upphaflega innleidd hér á landi með reglugerð nr. 574/2005. Aðila greinir aftur á móti á um það hvort greiða beri vexti og...
E og Á kröfðust skaðabóta úr hendi W hf. þar sem seinkun hefði orðið á brottför flugs þeirra. Talið var að seinkun flugsins mætti rekja til erfiðra aðstæðna og veðurs í Keflavík um morguninn umræddan dag sem hefði orsakað keðjuáhrif seinkana. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að ákvæði 106. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir fæli í sér sakarlíkindareglu. Flytjandi bæri ábyrgð á tjóni, sem yrði af völdum tafa í flutningi, nema hann gæti sannað að allt, sem sanngjarnt gæti talist, hefði verið gert til að koma í veg fyrir að svo yrði eða að ógerlegt hefði verið að koma í veg fyrir slíkt. Fallist var á með W hf. að ekki yrði gerð sú krafa til félagsins við þær aðstæður sem uppi voru í málinu að það gerði ráðstafanir og leigði sérstaka flugvél til að fljúga með farþega og farangur umrætt sinn. Var W hf. því sýknað af kröfu E og Á.
...261/2004 sem upphaflega var innleidd með reglugerð nr. 574/2005. Samkvæmt 6. gr. reglugerðar nr. 1048/2012 getur farþegi sem verður fyrir seinkun og kemur á ákvörðunarstað a.m...
Stefndi dæmdur til greiðslu bóta vegna tafa á flugi.
...261/2004 sem upphaflega var innleidd með reglugerð nr. 574/2005. Samkvæmt 6. gr. reglugerðar nr. 1048/2012 getur farþegi sem verður fyrir seinkun og kemur á ákvörðunarstað a.m...
Sýknað var af kröfu stefnanda um ógildingu á ákvörðun Flugmálastjórnar þess efnis að stefnanda bæri að greiða flugfarþega bætur vegna aflýsingar á flugi.
...Reglugerðin öðlaðist gildi hér á landi með þágildandi reglugerð nr. 574/2005, en samkvæmt 2. gr. síðarnefndu reglugerðarinnar bar Flugmálastjórn ábyrgð á framkvæmd reglugerðarinnar. Í forsendum og niðurstöðu ákvörðunarinnar segir...
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli I hf. gegn F og S var vísað frá dómi. I hf. hafði krafðist ógildingar ákvörðunar F þar sem I hf. hafði verið gert að greiða S bætur. Úrskurður héraðsdóms var reistur á þeirri ástæðu að I hf. hefði skort lögvarða hagsmuni af málsókn sinni þar sem fyrirtækið hafði þegar greitt S umræddar bætur. Í dómi Hæstaréttar kom fram að I hf. hefði gert fyrirvara við greiðslu bótanna og að gengnum dómi um kröfu sína kynni hann þess vegna að geta gert frekari kröfur. Úrskurður héraðsdóms var því felldur úr gildi.
...261/2004 um sameiginlegar reglur um skaðabætur o.fl., sem innleidd var í íslensk lög með reglugerð nr. 574/2005 samkvæmt heimild í 3. mgr. 126. gr. laga nr. 60...
Frávísun.
...261/2004 um sameiginlegar reglur um skaðabætur o.fl., sem innleidd var í íslensk lög með reglugerð nr. 574/2005 samkvæmt heimild í 3. mgr. 126. gr. laga nr. 60...
Ágreiningur var um skaðabótaábyrgð stefnda á tjóni sem stefnandi varð fyrir er dráttarvagn lenti á flugvél sem stefnandi hafði á leigu. Stefndi var dæmdur til að greiða stefnanda skaðabætur vegna afnotamissis vélarinnar.
...Stefnanda hafi verið skylt samkvæmt reglugerð nr. 574/2005 að útvega farþegum, sem áttu pantað flug með stefnanda umræddan dag, veitingar í kaffiteríu Keflavíkurflugvallar á seinkunartímabilinu. Enn fremur krefst stefnandi...