Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Loftferðir

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. júlí 2023

E-1257/2023

Auður Lilja Davíðsdóttir, Ragnar Þór Jónsson, Bjarmi Þór Ragnarsson, Tómas Davíð Thomasson og Embla Marie Ragnarsdóttir (Ómar R. Valdimarsson lögmaður) gegn Finnair Plc (Gunnar Jónsson lögmaður)

Stefnendur höfðuðu mál gegn stefnda og kröfðust skaðabóta vegna seinkunar á flugi stefnda milli Svíþjóðar á Taílands. Fyrir lá að stefnendur keyptu flugferðina í gegnum vefsíðu og voru þá stödd hér á landi. Talið var að varnarþingsreglur heimiluðu ekki málshöfðun gegn stefnda hér á landi enda hefði stefndi ekki lögheimili, aðalskrifstofu eða útibú hér á landi, sbr. 1. mgr. 33. gr. Montreal-samningsins sem lögfestur var með lögum nr. 80/2022 um loftferðir skömmu áður en málið var höfðað. Málinu var því vísað frá dómi að kröfu stefnda.

Landsréttur birt 25. janúar 2019

280/2018

Wow air hf (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður, Bjarki Már Baxter lögmaður, 1. prófmál) gegn Elísabetu Mettu Ásgeirsdóttur (Björgvin Jónsson lögmaður) og Ágústi Frey Hallssyni (Gísli Tryggvason lögmaður, 1. prófmál)

E og Á kröfðust skaðabóta úr hendi W hf. þar sem seinkun hefði orðið á brottför flugs þeirra. Talið var að seinkun flugsins mætti rekja til erfiðra aðstæðna og veðurs í Keflavík um morguninn umræddan dag sem hefði orsakað keðjuáhrif seinkana. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að ákvæði 106. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir fæli í sér sakarlíkindareglu. Flytjandi bæri ábyrgð á tjóni, sem yrði af völdum tafa í flutningi, nema hann gæti sannað að allt, sem sanngjarnt gæti talist, hefði verið gert til að koma í veg fyrir að svo yrði eða að ógerlegt hefði verið að koma í veg fyrir slíkt. Fallist var á með W hf. að ekki yrði gerð sú krafa til félagsins við þær aðstæður sem uppi voru í málinu að það gerði ráðstafanir og leigði sérstaka flugvél til að fljúga með farþega og farangur umrætt sinn. Var W hf. því sýknað af kröfu E og Á.