Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 510/2010"

4 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. mars 2026 kl. 16:23

E-2753/2025

Sjúkratryggingar Íslands (Heimir Örn Herbertsson lögmaður) gegn Intuens Segulómun ehf. (Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður), Íslenskri myndgreiningu ehf. (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður), Læknisfræðilegri myndgreiningu ehf. (Ragnar Þórður Jónasson lögmaður) og Myndgreiningarrannsóknarstöð Hjartaverndar ehf. (Hólmfríður Björk Sigurðardóttir lögmaður)

Úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli nr. 47/2023, sem var kveðinn upp 1. nóvember 2024 var ógiltur þar sem ekki var talið að stefnandi hefði brotið gegn lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup með kaupum á læknifræðilegum myndgreiningum á grundvelli ótímabundinna samninga sem gerðir voru áður en lögin tóku gildi.

...einnig reglugerð nr. 510/2010. 33. Stefndi veki ennfremur athygli á því að í 1. mgr. 1. gr. samnings stefnanda og stefnda Myndgreiningarrannsóknarstöðvar Hjartaverndar ehf. sé meðal annars tiltekið að...

Landsréttur birt 26. mars 2021

16/2020

Klíníkin Ármúla ehf (Gestur Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Í máli þessu gerði K ehf. fjárkröfu á hendur Í vegna þess að SÍ hafði synjað um greiðslu reikninga vegna nánar tilgreindra læknisverka svæfingarlæknanna M og F á tímabilinu 20. september 2017 til 19. júní 2018. SÍ höfnuðu greiðslu á þeim grundvelli að svæfingarlæknarnir væru ekki aðilar að rammasamningi milli SÍ og sérgreinalækna. Áður en umrædd læknisverk voru innt af hendi hafði M og F verið synjað um aðild að rammasamningnum á grundvelli fyrirmæla heilbrigðisráðherra til SÍ um að stöðva skráningu nýrra lækna vegna fjárhagsstöðu á fjárlagaliðum SÍ. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 18. september 2018 var felld úr gildi ákvörðun SÍ um að hafna umsókn nafngreinds læknis um aðild að rammasamningnum. Í kjölfarið voru umsóknir M og F teknar til umfjöllunar á ný hjá SÍ og þeim veitt aðild að rammasamningnum. Að því er formhlið málsins varðaði kom fram í dómi Landsréttar að K ehf. hefði sýnt nægilega fram á að félagið hefði haft heimild til að gera reikningana í eigin nafni á grundvelli rammasamningsins og væri því réttur aðili máls þessa. K ehf. byggði á því að greiðslusynjun SÍ hefði grundvallast á saknæmri og ólögmætri stjórnvaldsákvörðun. Um það atriði kom fram í dómi Landsréttar að ekkert lægi fyrir í málinu um að mat ráðherra á stöðu fjárlagaliða SÍ sem lá til grundvallar fyrrnefndum fyrirmælum hefði verið rangt eða ómálefnalegt. Ráðherra hefði við þær aðstæður sem uppi voru verið rétt að neyta umsjónar- og eftirlitsheimilda sinna með því að rekstur rammasamningsins héldist innan ramma fjárlaga og leita leiða til að lækka útgjöld vegna hans. Yrði það hvorki metið ráðherra til sakar að hafa gert það né metið starfsmönnum SÍ til sakar að hafa fylgt fyrirmælum ráðherra. Samkvæmt því væri skilyrðinu um saknæmi ekki fullnægt í málinu og skaðabótakröfu því hafnað. K ehf. byggði einnig á því að líta bæri á þá stjórnvaldsákvörðun að synja M og F um aðild að rammasamningi sem ógilda frá upphafi. Hefði SÍ því borið að greiða reikningana. Í dómi Landsréttar kom fram að samkvæmt rammasamningnum og lögum nr. 112/2008 um sjúkratryggingar hefði borið að framkvæma margþætt mat á umsóknum M og F sem gat meðal annars tekið mið af þeim fjárveitingum sem til ráðstöfunar voru. Væri því alls óvíst hvort þeir hefðu fengið aðild að samningum að undangengnu mati á umsóknum þeirra. Var því ekki fallist á kröfu K ehf. um greiðslu reikninga vegna læknisverka þeirra. Loks var ekki talið að áfrýjandi hefði fært haldbær rök að því að ólögfestar reglur um óréttmæta auðgun ættu við í málinu. Var Í því sýknað af fjárkröfu K ehf.

...laganna hefur jafnframt verið sett reglugerð nr. 510/2010 um samninga um heilbrigðisþjónustu sem veitt er utan heilbrigðisstofnana sem ríkið rekur. Þar segir meðal annars í 2. mgr. 4. gr...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. desember 2019

E-957/2019

Klíníkin Ármúla ehf (Gestur Jónsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Hafnað var kröfu stefnanda um greiðslu skaðabóta vegna þeirrar ákvörðunar Sjúkratrygginga Íslands um að synja tveimur sérgreinalæknum, sem störfuðu á vegum stefnanda á árinu 2017, um aðild að rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands og sérgreinalækna.

...sjúkratryggingalaga og reglugerð nr. 510/2010, sem og 28. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu. Þá voru í rammasamningnum fyrirvarar um fjárheimildir. Var rekstur SÍ vegna rammasamningsins kominn verulega...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. september 2018

E-3567/2017

Alma Gunnarsdóttir (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Fallist á kröfu stefnanda um að fella úr gildi ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja stefnanda um aðild að rammasamningi sérgreinalækna.

...2. gr. og 1.–6. mgr. 40. gr. laga nr. 112/2008, sbr. reglugerð nr. 510/2010. Þá voru fyrirmælin auk þess andstæð því sem til var ætlast sam­kvæmt...