Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 5/2021"

3 dómar fundust

Landsréttur birt 12. maí 2023

74/2022

Austurátt ehf (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

A höfðaði mál til viðurkenningar á bótaskyldu Í vegna fjártjóns sem A taldi sig hafa orðið fyrir er A var gert að loka skemmtistað sínum vegna sóttvarnaraðgerða stjórnvalda. Byggði krafa A meðal annars á því að Í hafi skort lagaheimild til þess gera A skylt með stjórnvaldsfyrirmælum að loka skemmtistað sínum, að um óheimilt framsal lagasetningarvalds hefði verið að ræða auk þess sem A taldi að meðalhófs og jafnræðis hefði ekki verið gætt. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest sú niðurstaða að umdeildar sóttvarnaraðgerðir Í ættu sér næga lagastoð í 2. mgr. 12. gr. sóttvarnarlaga nr. 19/1997 sem hefði ekki að geyma tæmandi talningu sóttvarnaraðgerða sem heimilt væri að grípa til. Þá taldi dómurinn að ráðherra hefði ekki verið framselt vald umfram heimildir 75. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944 með því að honum var veitt heimild til þess að kveða á um lokun tiltekinna tegunda fyrirtækja, enda hefði löggjafinn í meginatriðum mælt fyrir um þá tegund skerðingar á atvinnufrelsi sem reyndi á í málinu. Jafnframt var talið að aðgerðir Í hefðu hvorki gengið lengra en nauðsynlegt var né brotið gegn jafnræðisreglu. Meðal annars var horft til þess að Í hefði borið stjórnskipuleg skylda til þess að gera ráðstafnir til að vernda líf og heilsu almennings með vísan til þess hversu útbreidd smit voru í samfélaginu á því tímabili sem A var gert að loka skemmtistað sínum. Þá var litið til þess að A hefði þegið lokunar- og tekjufallsstyrki, auk þess að hafa nýtt sér svokallaða hlutabótaleið vegna umræddra sóttvarnaraðgerða. Yrði A að bera hallann af sönnunarskorti um áhrif þessara úrræða á rekstur hans, sbr. 1. mgr. 68. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Var Í því sýknað af kröfum A.

...Með reglugerð nr. 5/2021 ákvað heilbrigðisráðherra frekari tilslakanir frá 13. janúar 2021 sem ætlað var að gilda til 17. febrúar 2021. Meðal þess sem þar var ákveðið var að...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. janúar 2022

E-903/2021

Austurátt ehf (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Hafnað var kröfu stefnanda um að viðurkennd yrði bótaskylda íslenska ríkisins vegna sóttvarnaraðgerða.

...Með reglugerð nr. 5/2021 ákvað heilbrigðisráðherra frekari tilslakanir frá 13. janúar 2021 sem ætlað var að gilda til 17. febrúar 2021. Meðal þess sem þar var ákveðið var að...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. október 2021

E-2407/2021

A og B (Þórður Már Jónsson lögmaður) gegn Rekstrarfélagi Kringlunnar og Reitum - verslun ehf (Kristinn Hallgrímsson lögmaður)

Málinu var vísað frá dómi þar sem ekki voru fyrir hendi lögvarðir hagsmunir fyrir stefnendur af úrlausn þess.

...Þær ólögmætu aðgerðir sem stefndu hafi beitt stefnendur brjóti gegn þeim réttindum sem þeim séu skýrlega tryggð samkvæmt reglugerð nr. 5/2021 og sóttvarnalögum. Auk þess leggi 65. gr. stjórnarskrárinnar...