Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 403/2008"
4 dómar fundust
K höfðaði mál á hendur F ehf. og krafðist greiðslu kjarasamningsbundinna veikindalauna í 13 mánuði úr hendi F ehf. og viðurkenningar á því að hann skyldi njóta almennra frímiðaréttinda hjá F ehf. í tíu ár. Landsréttur vísaði til þess að K hefði verið í tímabundnu leyfi frá störfum F ehf. en að störfum hjá N þegar hann veiktist alvarlega svo að leiddi til missis starfsréttinda hans. Þá hafi K fengið óskert veikindalaun í 13 mánuði frá N. Því taldi Landsréttur að veikindaréttindi K gagnvart F ehf. hefðu ekki orðið virk á ný enda hafi legið fyrir að K myndi ekki geta komið aftur til starfa þar sem hann hefði misst starfsréttindi sín. Það sama ætti við um starfskjör K að öðru leyti, svo sem frímiðaréttindi.
...60/1998 um loftferðir og settra reglugerða samkvæmt þeim, einkum þágildandi reglugerð nr. 403/2008 um heilbrigðiskröfur flugliða og reglugerð nr. 400/2008 um skírteini útgefin af Flugmálastjórn Íslands. Varðandi...
Ágreiningur um veikindalaunarétt o.fl.
...60/1998 um loftferðir og settra reglugerða samkvæmt þeim, einkum þágildandi reglugerð nr. 403/2008 um heilbrigðiskröfur flugliða og reglugerð nr. 400/2008 um skírteini útgefin af Flugmálastjórn...
Með dómi frá 13. febrúar 2014 í máli nr. 604/2013 komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að I ehf. væri skaðabótaskylt gagnvart H vegna ólögmætrar riftunar á ráðningarsamningi milli þeirra, sem átt hafði sér stað 30. september 2010. H höfðaði í kjölfarið mál og krafðist skaðabóta er námu annars vegar jafngildi fullra launa í veikindaforföllum á ákveðnu tímabili og hins vegar jafngildi óskertrar tryggingarfjárhæðar samkvæmt svokallaðri skírteinistryggingu flugmanna. H lést á árinu 2016. M fékk leyfi til setu í óskiptu búi í kjölfarið og tók við aðild að málinu. Taldi Hæstiréttur að M ætti rétt til bóta vegna tilkalls H til launa í veikindaforföllum. Var m.a. vísað til þess að H hefði afhent vottorð 29. september 2010 og yrði að leggja vottorðið til grundvallar um upphaf forfalla þótt ákvæði væri í kjarasamningi um að staðfesta þyrfti forföll flugmanns til að greiðsluskylda vinnuveitanda stofnaðist. Þá gæti I ehf. ekki með afturvirkum hætti endurskoðað grundvöll þess hvernig staðið hefði verið að því að binda enda á ráðningarsambandið við H og yrði I ehf. að bera af því allar afleiðingar að slíkt hefði verið gert með ólögmætum hætti. Að því er varðaði kröfu um greiðslu bóta í skjóli skírteinistryggingar flugmanna taldi Hæstiréttur að bótaskylda yrði að ráðast af skýringu á ákvæðum kjarasamnings þar sem vátryggingaskilmálar þeirrar tryggingar sem I ehf. hafði tekið settu strangari skilyrði fyrir greiðslu óskertrar skírteinistryggingar en mælt hefði verið fyrir um í kjarasamningnum. Þá var talið að þar sem I ehf. hefði rofið ráðningarsamband sitt við H með ólögmætum hætti yrði I ehf. að bera hallann af því að ekki lægju fyrir fullkomnar upplýsingar um heilsufar H á tilteknu tímabili. Hefði I ehf. ekki fært neitt fram sem hnekkti því að á tímabilinu frá 29. september 2010 til dauðadags hefði heilsufar H verið með þeim hætti að honum hefði ekki verið unnt að öðlast á ný réttindi sín sem atvinnuflugmaður og að hann hefði því misst varanlega flugskírteini sitt í skilningi kjarasamningsins frá og með haustinu 2010. Ætti M því jafnframt rétt á bótum á þeim grundvelli.
...Þær reglur komi fram í fylgiskjali I með reglugerð nr. 403/2008 um heilbrigðiskröfur flugliða, og segi þar, í 4. viðauka við kafla B, að efnaskipta- og innkirtlavanvirkni valdi vanhæfi...
Stefnandi var flugstjóri hjá Icelandair. Var honum sagt upp störfum með ólögmætum hætti. Höfðaði hann mál á hendur flugfélaginu til greiðslu skaðabóta. Voru honum dæmdar skaðabætur sem jafngildi launa í veikindaforföllum og jafngildi skírteinistryggingar flugmanna.
...Þær reglur komi fram í fylgiskjali I með reglugerð nr. 403/2008 um heilbrigðiskröfur flugliða, og segi þar, í 4. viðauka við kafla B, að efnaskipta- og innkirtlavanvirkni valdi vanhæfi...