Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 264/1971"

5 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. nóvember 2014

E-1486/2013

Elís Pétur Elísson (Árni Pálsson hrl) gegn Gunnari Tryggva Þórólfssyni og Guðbjörgu Ósk Hjartardóttur (Gróa Björg Baldvinsdóttir hdl)

Fasteignakaup

...7 í matsgerð kveður stefnandi augljóslega byggjast á þeirri röngu forsendu að miða beri við reglugerð nr. 264/1971 varðandi þar umræddar raflagnir. Þegar að því athuguðu hafi niðurstaða matsmanns...

Héraðsdómur Austurlands birt 4. júlí 2013

E-120/2011

Dynhvammur ehf (Jón Jónsson hrl) gegn Sigrúnu Guðjónsdóttur og Sævari Eiríki Jónssyni (Þórður Már Jónsson hdl) og Réttvísi ehf. og Gísla Marinó Auðbergssyni (Björn Lárus Bergsson hrl) og til réttargæslu Sveinbirni Sveinssyni

Seljendur og fasteignasali/sala sýknuð af öllum kröfum kaupanda bjálkahúss þar sem ósannað þótti að fasteignin væri haldin göllum í skilningi laga um fasteignakaup sem stefndu bæru ábyrgð á.

...spurningu matsbeiðanda um ástand rafmagnskerfis í húsinu kemur fram í matsgerð að plaststrengir í skriðrými, sem að hluta til séu í kapalrennum, séu fullnægjandi og í samræmi við reglugerð nr...

Hæstiréttur birt 8. desember 2011

227/2011

Ásmundur, S. Jónsson, Sæmundur, Þ. Einarsson og Rafbrú sf (Hákon Árnason hrl) gegn Sigríði Katrínu Þorbjörnsdóttur (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)

SÞ höfðaði mál gegn Á, SE og R sf. til heimtu skaðabóta vegna tjóns sem hún kvaðst hafa orðið fyrir þegar rafstraumur fór um hana þegar hún baðaði sig á heimili sínu. Á hafði verið rafvirkjameistari við byggingu hússins og hefði sameignarfélag hans og SE, R sf., séð um raflagnir í það. Fyrir lá að rafmagnsleiðslur höfðu verið ranglega tengdar í íbúð SÞ en að mati dómkvaddra sérfræðinga gátu þau mistök ein og sér ekki orsakað slys eins og það sem SÞ kvaðst hafa orðið fyrir nema hlutur, sem tengdur hefði verið rafkerfi íbúðarinnar, hefði komist í snertingu við baðvatnið. Þar sem SÞ hafði neitað því að slíkt hefði gerst var talið ósannað að röng tenging rafmagnsleiðsla hefði orsakað slysið. Kröfum SÞ var því hafnað. Í dómi Hæstaréttar var tekið fram að í samræmi við 2. mgr. 111. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála hefði héraðsdómi verið óheimilt að byggja niðurstöðu sína SÞ í vil á því að jarðtaug frá vatnslási í baðkari hefði ekki verið tengd ranglega á þann hátt sem hún hélt fram, heldur á annan hátt.

...177/1992 segir að raflagnir skuli vera í samræmi við reglugerðir Rafmagnseftirlits ríkisins, nánar tiltekið sé það reglugerð nr. 264/1971 um raforkuvirki. Í grein 203 m reglugerðar nr. 264...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. febrúar 2010

E-7281/2006

Sigríður K Þorbjörnsdóttir (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) gegn Ásmundi S. Jónssyni (Hákon Árnason hrl), Sæmundi Einarssyni og Rafbrú sf. og Húsagerðinni hf. (Björn Lárus Bergsson hrl), Reykjanesbæ (Guðmundur Pétursson hrl) og Vátryggingafélagi og Íslands hf. (Ólafur Lúther Einarsson hdl)

Stefnanda voru dæmdar örorku- og miskabætur vegna líkamstjóns af völdum rafmagnsslyss.

...177/1992 segir að raflagnir skuli vera í samræmi við reglugerðir Rafmagnseftirlits ríkisins, nánar tiltekið sé það reglugerð nr. 264/1971 um raforkuvirki. Í grein 203 m reglugerðar nr. 264...

Hæstiréttur birt 21. febrúar 2002

304/2001

Hitaveita Suðurnesja hf (Hákon Árnason hrl) gegn Bjarna E. Ísleifssyni (Friðjón Örn Friðjónsson hrl)

B varð fyrir fyrir alvarlegu slysi í starfi sínu hjá H hf. Lenti vinstri fótur hans í viftuspaða með þeim afleiðingum að nokkru síðar þurfti að aflima hann neðan við hné. Var B metin 50% varanleg örorka og 40% varanlegur miski vegna slyssins. Deilt var um hvort skilyrði væru til að fella skaðabótaskyldu á H hf. vegna tjóns B. Í ljós var leitt að gangsetningarbúnaði umræddrar vélar var áfátt og mátti rekja slysið til þess að hluta. Ábyrgð á þessu var felld á H hf. Jafnframt var félagið látið bera ábyrgð á breytingu sem framkvæmd hafði verið án þess að mæta jafnframt aukinni hættu sem þessu fylgdi. Við úrlausn málsins var ekki framhjá því litið að B hafði með háttsemi sinni í umrætt sinn brotið gegn fyrirmælum og öryggisreglu og var ekki talinn hafa getað treyst því að straumur væri aftengdur, svo sem hann kvaðst hafa gert, án þess að ganga beinlínis úr skugga um það. Þótti samkvæmt þessu hæfilegt að B bæri sjálfur þriðjung tjóns síns en H hf. tvo þriðju hluta þess. Til grundvallar tjóni var miðað við meðaltekjur vélfræðinga á sjó og í landi.

...Engin úttekt hafi verið gerð á rafkerfinu í kjölfar þessarar umfangsmiklu framkvæmda, en samkvæmt reglugerð nr. 264/1971, grein 1.2.1. um raforkuvirki sbr. einnig reglugerð nr. 285/1998...