Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1240/2021"
4 dómar fundust
Íslenska ríkið sýknað af kröfu einstaklings sem krafðist miskabóta þar sem honum hafi með ólögmætum hætti verið haldið í sóttkví vegna gruns um að hann væri smitaður af SARS-CoV-2 veirunni (COVID-19) í nóvember 2021.
...Á þeim tíma var í gildi reglugerð nr. 1240/2021 um sóttkví og einangrun og sóttvarna- ráðstafanir á landamærum Íslands vegna COVID-19. Reglugerðin átti sér stoð í ákvæðum sóttvarnalaga...
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var ákvörðun S um að A skyldi sæta nánar tilgreindri sóttkví. Í úrskurði Landsréttar kom meðal annars fram að ákvörðun S fullnægði kröfu stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu um lagaheimild fyrir þeirri skerðingu sem í henni fælist. Gefa yrði S og öðrum stjórnvöldum nokkurt svigrúm til að meta nauðsyn aðgerða á hverjum tíma í ljósi upplýsinga um stöðu COVID-19 smitsjúkdómsins. Yrði hvorki talið að með ákvörðuninni hefði verið brotið gegn meginreglum stjórnsýsluréttar, stjórnarskrárvörðum réttindum A né öðrum reglum sem hann vísaði til í málatilbúnaði sínum. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.
...Samkvæmt því er ótvírætt að varnaraðila var kunnugt um þær reglur sem giltu um sóttkví samkvæmt sóttvarnalögum og reglugerð nr. 1240/2021 er sóknaraðili tók umrædda ákvörðun 31. desember síðastliðinn...
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var ákvörðun S um að A skyldi sæta nánar tilgreindri sóttkví. Í úrskurði Landsréttar kom fram að A skorti lögvarða hagsmuni af því að Landsréttur leysti úr kröfu hennar og var málinu því vísað frá réttinum án kröfu.
...Með sóttvarnalögum og reglugerð nr. 1240/2021 sé verið að bregðast við yfirvofandi hættu af nýrri bylgju COVID-19 faraldursins og þannig vernda lýðheilsu. Þau afbrigði sem hafi greinst nýlega...
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var ákvörðun S um að A skyldi sæta nánar tilgreindri sóttkví. Í úrskurði Landsréttar kom meðal annars fram að ekki yrði litið svo á að A hefði með framangreindri ákvörðun S verið gert að sæta sóttkví lengur en 15 daga sem brjóti gegn ákvæðum 11. mgr. 4. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997. Í aðdraganda töku ákvörðunar S hefði þess verið freistað að ná samstarfi við A um sóttkví. Játa yrði löggjafanum og stjórnvöldum nokkurt svigrúm við mat á nauðsyn aðgerða í ljósi upplýsinga um stöðu COVID-19 smitsjúkdómsins á hverjum tíma. Yrði hvorki talið að með ákvörðuninni hefði verið brotið gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga eða öðrum meginreglum stjórnsýsluréttarins né gegn stjórnarskrárvörðum réttindum A. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.
...Á grundvelli laganna hefur verið sett framangreind reglugerð nr. 1240/2021 um nánari framkvæmd slíkra aðgerða, meðal annars sóttkvíar. Er efni 4. gr. reglugerðarinnar, sem fjallar um skyldu til að...