Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1133/2007"

20 dómar fundust

Hæstiréttur birt 18. maí 2017

596/2016

HS 12 ehf (Gestur Jónsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

H ehf. krafðist þess að viðurkennt yrði að ákvæði um verðtryggingu leigugrunns í þremur tilgreindum fjármögnunarleigusamningum um fasteignir, sem félagið hafði gert við L hf., væru óskuldbindandi fyrir sig. Byggði H ehf. á því að umræddir samningar væru í raun lánssamningar sem klæddir hefðu verið í búning leigusamninga. Með hinum áfrýjaða dómi var kröfum H ehf. hafnað, þ.á m. kröfu hans um að ógilda bæri ákvæði samninganna með vísan til 36. gr. laga nr. 7/1936. Þá var gagnkrafa L hf. um greiðslur eftirstöðva samkvæmt samningunum tekin til greina. Hæstiréttur vísaði til þess að rétturinn hefði margítrekað fjallað um samninga með hliðstæðum skilmálum og þeim sem til umfjöllunar voru í málinu og komist að þeirri niðurstöðu að þeir væru leigusamningar en ekki lánssamningar. Breytti engu í því tilliti þótt fram kæmi í tilboði L hf. um fjármögnun að söluverð á grunnleigutíma væri 1% af upphaflegum leigugrunni, enda væri þess hvorki getið í fjármögnunarleigusamningum aðila að H ehf. myndi eignast hið leigða í lok lánstíma né að hann ætti rétt á að leysa það til sín gegn tiltekinni greiðslu. Var hinn áfrýjaði dómur að öðru leyti staðfestur með vísan til forsendna.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. nóvember 2016

E-1163/2016

Reynir Georgsson (Lárus Sigurður Lárusson hdl) gegn Lýsingu hf (Gunnhildur Erla Kristjánsdóttir hdl)
Málaflokkur: Leiguréttur

Ágreiningur var um hvort hvort samningur væri lánssamningur eða fjármögnunarleigusamningur. Með vísan til fordæma Hæstaréttar var talið að um fjármögnunarleigusamning væri að ræða.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007 meðal annars að því er varði alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS...

Hæstiréttur birt 16. júní 2016

810/2015

Malbikunarstöðin Hlaðbær - Colas hf (Hlynur Halldórsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

MH hf. krafðist þess að viðurkennt yrði að rekstrarleigusamningar um gámahús sem félagið hafði gert við L hf. væru lánssamningar í skilningi VI. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu með ólögmætri gengistryggingu. Talið var að samningarnir væru leigusamningar og að þau sjónarmið sem Hæstiréttur hefði lagt til grundvallar um fjármögnunarleigusamninga ættu að breyttu breytanda einnig við um rekstrarleigu. Þá var hvorki talið að MH hf. hefði sýnt fram á að samningur L hf. og M ehf., seljanda gámahúsanna, um endurkaup M ehf. á húsunum að samningstíma loknum, né samningur M ehf. og MH hf. um kaup MH hf. á þeim að „leigutíma loknum“ gætu haft efnislega þýðingu við skýringu hinna umdeildu samninga. Samkvæmt þessu var ekki talið að ákvæði laga nr. 38/2001 girtu fyrir að heimilt hefði verið að semja um að leigugjaldið tæki mið af gengi erlendra gjaldmiðla. Var L hf. því sýknaður af kröfu MH hf.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. maí 2016

E-2614/2014

HS 12 ehf (Gestur Jónsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

Fjármögnunarleiga. Fasteign. Gengistrygging. Uppgjör.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS...

Hæstiréttur birt 10. mars 2016

468/2015

Bernhard ehf (Björn Þorri Viktorsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

B ehf. krafðist þess að viðurkennt yrði að þrír tilgreindir fjármögnunarleigusamningar sem félagið hafði gert við L hf. væru að efni til lánssamningar og að ákvæði þeirra um tengingu greiðslna við gengi tiltekinna erlendra gjaldmiðla væru ólögmæt og óskuldbindandi fyrir hann. Í dómi Hæstaréttar kom fram að hvorki yrði ráðið af samningum aðila að eignarréttur yfir hinu leigða skyldi flytjast yfir til B ehf. við lok frumleigutíma né að B ehf. ætti fyrirvaralausan rétt til að kaupa hið leigða í lok frumleigutíma, án þess að til kæmi sérstakt samþykki L hf. Breyttu áform aðila og umræður í aðdraganda samninganna engu þar um. Var því talið með vísan til heiti samninganna, orðalags þeirra og dómafordæma Hæstaréttar að um fjármögnunarleigusamninga væri að ræða. Girtu ákvæði laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu því ekki fyrir að aðilum hefði verið heimilt að semja um að greiðslur samkvæmt samningunum tækju mið af gengi erlendra gjaldmiðla.Var L hf. því sýknaður af kröfu B ehf.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS...

Hæstiréttur birt 18. febrúar 2016

560/2015

Hagvagnar hf (Benedikt Ólafsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

H hf. krafðist þess að viðurkennt yrði að óheimilt hefði verið að binda greiðslur á skuld hans við L hf. samkvæmt fjármögnunarleigusamningi aðila frá árinu 2007 við gengi erlendra gjaldmiðla. H hf. krafði L hf. jafnframt um endurgreiðslu fjár sem félagið taldi sig hafa ofgreitt af samningnum. Var ekki talið að H hf. hefði sannað gegn andmælum L hf. að í öndverðu hefði verið samið um að H hf. yrði í lok leigutíma eigandi þeirra þriggja strætisvagna sem samningurinn tók til eða ætti rétt á því að leysa þá til sín gegn greiðslu. Gætu slík áform aðila í aðdraganda þess að samningurinn var gerður ekki leitt til þeirrar niðurstöðu, enda hefði þá legið beint við að hann tæki mið af þeim. Þar sem samningurinn hefði verið um fjármögnunarleigu var ekki talið að ákvæði VI. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu girtu fyrir að heimilt hefði verið að semja um að leigugjaldið tæki mið af gengi erlendra gjaldmiðla. Þótt það kynni að hafa breytt eðli réttarsambands aðila að L hf. afsalaði á árinu 2010 strætisvögnunum til H hf., gæti það atriði ekki leitt til þess að fallist yrði á þá málsástæðu H hf. að frá öndverðu hefði samningur aðila verið um lán en ekki fjármögnunarleigu, enda væri af hans hálfu ekki byggt á slíkri síðar tilkominni efnisbreytingu réttarsambandsins. Þá var talið að hugtakanotkun í samningi aðila um tímabundna greiðsluraðabreytingu gæti engu breytt um þessa niðurstöðu. Var L hf. því sýknaður af kröfum H hf.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS...

Hæstiréttur birt 18. febrúar 2016

383/2015

Búlandshöfði ehf (Einar Hugi Bjarnason hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

B ehf. krafðist þess að viðurkennt yrði að fjármögnunarleigusamningur hans og L hf. væri að efni til lánssamningur og að ákvæði hans um tengingu greiðslna við gengi nánar tiltekinna erlendra gjaldmiðla væri ólögmætt og óskuldbindandi fyrir hann. Hélt B ehf. því fram að aðilar hefðu samið sérstaklega um það í upphafi að B ehf. myndi eignast hið leigða í lok lánstíma gegn tiltekinni greiðslu. Því til stuðnings vísaði B ehf. meðal annars til tölvubréfs frá fyrrum starfsmanni L hf. þar sem fram kom tiltekið lokagjald og yfirlýsingar L ehf. um fjármögnun til þriðja manns, en þar kæmi fram að B ehf. yrði afsalshafi að samningnum uppgreiddum. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þess hefði hvorki verið getið í samningnum að B ehf. myndi eignast hið leigða í lok lánstíma né að hann ætti rétt á að leysa það til sín gegn tiltekinni greiðslu. Hefði B ehf. ekki sannað gegn andmælum L hf. að um slíkt hefði verið samið. Í því tilliti gætu engu breytt slík áform aðila í aðdraganda þess að samningurinn var gerður. Þar sem samningurinn væri um fjármögnunarleigu var ekki talið að ákvæði laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu girtu fyrir að heimilt hefði verið að semja um að leigugjaldið tæki mið af gengi erlendra gjaldmiðla. Var L ehf. því sýknaður af kröfu B ehf.

...3/2006 hafi ráðherra sett reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS 17 staðallinn fjalli um leigusamninga. Í 4. gr...

Hæstiréttur birt 4. febrúar 2016

757/2015

Leiguvélar ehf (Anton Björn Markússon hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

Máli L ehf. gegn L hf. var vísað frá Hæstarétti þar sem L ehf. afhenti ekki skilríki fyrir málskostnaðartryggingu innan þess frests sem félagið hafði til þess að setja hana.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS...

Hæstiréttur birt 14. janúar 2016

324/2015

Lýsi hf (Stefán A. Svensson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. október 2015

E-363/2014

Malbikunarstöðin Hlaðbær-Colas hf (Hlynur Halldórsson hrl) gegn Lýsingu hf. (Ólafur Hvanndal Ólafsson hdl) og gagnsök
Lykilorð: Lánssamningur. Samningur.

Rekstrarleiga. Gengistrygging.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. september 2015

E-11/2014

Leiguvélar ehf (Gunnlaugur Úlfsson hdl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)
Málaflokkur: Leiguréttur

Fjármögnunarleiga. Gengistrygging.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. september 2015

E-1601/2013

Háfell ehf (Daníel Isebarn Ágústsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)
Málaflokkur: Leiguréttur

Fjármögnunarleiga. Gengistrygging.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júlí 2015

E-9/2014

Hagvagnar hf (Benedikt Ólafsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)
Málaflokkur: Leiguréttur

Fjármögnunarleiga. Gengistrygging.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. apríl 2015

E-1754/2013

Bernhard ehf (Björn Þorri Viktorsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)
Málaflokkur: Leiguréttur

Fjármögnunarleiga. Gengistrygging.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. mars 2015

E-1962/2013

Lýsi hf (Finnur Magnússon hdl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)
Málaflokkur: Leiguréttur

Fjármögnunarleiga. Gengistrygging.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. mars 2015

E-1465/2013

Búlandshöfði ehf (Einar Hugi Bjarnason hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

Stefndi sýknaður af viðurkenningarkröfu stefnanda um að samningur aðila væri lánssamningur.

...3/2006 hafi ráðherra sett reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði m.a. alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. IAS 17 staðallinn fjalli um leigusamninga. Í 4. gr...

Hæstiréttur birt 3. apríl 2014

717/2013

Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf (Þorsteinn Einarsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

Ö ehf. krafðist þess að viðurkennt yrði að fjármögnunarleigusamningur sem fyrirtækið hafði gert við L hf. væri að efni til lánssamningur og að ákvæði hans um tengingu greiðslna við gengi nánar tiltekinna erlendra gjaldmiðla væri ólögmætt og óskuldbindandi fyrir sig. Í niðurstöðu Hæstaréttar var að efni til fallist á niðurstöðu héraðsdóms um að hafna fimm af sex málsástæðum Ö ehf. Þá var hafnað þeirri málsástæðu Ö hf. að í upphafi viðskipta hefði verið samið um að félagið eignaðist bifreið þá er samningurinn laut að gegn fyrirfram ákveðinni greiðslu í lok samningstíma. Ekki var talið skipta máli að í samningi Ö ehf. og L hf. hefði verið vísað til samnings Ö ehf. við seljanda bifreiðarinnar um möguleg endurkaup þess síðarnefnda. Þótti Ö ehf. ekki hafa sýnt fram á að ákvæði í tilboði L til Ö ehf. um greiðslu lokagjalds hefði tekið til samnings þess er málið laut að. Þá varð kynningarefni L hf. um fjármögnunarleigusamninga ekki skýrt svo að það hefði veitt viðskiptamanni fyrirvaralausan kauprétt að leigutíma loknum, án þess að til kæmi sérstakt samþykki L hf. Ekki réði úrslitum þótt óumdeilt væri að Ö ehf. hefði alltaf keypt þær vélar eða tæki sem hann hafði gert fjármögnunarleigusamninga um á tilteknu tímabili. Þótti Ö ehf. ekki hafa sannað að samið hefði verið um í upphafi viðskipta að fyrirtækið yrði að loknum grunnleigutíma samningsins og gegn greiðslu lokagjalds eigandi bifreiðarinnar sem samningurinn tók til. Var því niðurstaða héraðsdóms um sýknu L hf. staðfest.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007, sem varði meðal annars alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. Í 4. gr...

Hæstiréttur birt 13. mars 2014

638/2013

Suðurverk hf (Þorsteinn Einarsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

S hf. krafðist þess að viðurkennt yrði að þrír fjármögnunarleigusamningar sem hann hafði gert við L hf. væru að efni til lánssamningar og að ákvæði þeirra um tengingu greiðslna við gengi nánar tiltekinna erlendra gjaldmiðla væru ólögmæt og óskuldbindandi fyrir sig. Í niðurstöðu Hæstaréttar var að efni til fallist á niðurstöðu héraðsdóms um að hafna fimm af sex málsástæðum S hf. Að því er varðaði þá málsástæðu S hf. að um hefði verið samið í upphafi viðskipta að félagið eignaðist vélar og tæki gegn fyrirfram ákveðinni greiðslu í lok samningstíma vísaði Hæstiréttur til þess að kynningarefni L hf. um fjármögnunarleigusamninga yrði ekki skýrt svo að það hefði veitt viðskiptamanni fyrirvaralausan kauprétt að leigutíma loknum, án þess að til kæmi sérstakt samþykki L hf. Þá réði það ekki úrslitum þótt óumdeilt væri að S hf. hefði alltaf keypt þær vélar eða tæki sem hann hafði gert fjármögnunarleigusamninga um á tilteknu tímabili. Þótti S hf. ekki hafa sannað að samið hefði verið um í upphafi viðskipta að hann yrði að loknum grunnleigutíma samninganna þriggja og gegn greiðslu lokagjalds eigandi þeirra véla og tækja sem samningarnir tóku til. Var því niðurstaða héraðsdóms um sýknu L hf. staðfest.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskilastaðla, þ. á m. reglugerð nr. 1133/2007 að því er varði meðal annars alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 17 um leigusamninga. Stefndi...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. október 2013

E-3285/2012

Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf (Þorsteinn Einarsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)
Málaflokkur: Leiguréttur

Því var hafnað að fjármögnunarleigusamningur, sem stefnandi hafði gert við stefnda, væri samkvæmt efni sínu lánssamningur en ekki leigusamningur. Í samræmi við þá niðurstöðu var ekki talið að gengistryggingarákvæði samningsins bryti í bága við ákvæði laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

...3/2006 hafi ráðherra sett fjölda reglugerða um alþjóðlega reikningsskila­staðla, þar á meðal reglugerð nr. 1133/2007, sem varði meðal annars alþjóðlegan reiknings­skila­staðal IAS 17 um leigusamninga...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. september 2013

E-3286/2012

Suðurverk hf (Þorsteinn Einarsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

Því var hafnað að þrír fjármögnunarleigusamningar, sem stefnandi hafði gert við stefnda, væru samkvæmt efni sínu lánssamningar en ekki leigusamningar. Í samræmi við þá niðurstöðu var ekki talið að gengistryggingarákvæði samninganna brytu á bága við ákvæði laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.