Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Rekstrarleiga

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. febrúar 2020

E-1569/2019

Létt-Flotastjórnun ehf (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður) gegn Bílaleigunni Geysi ehf (Einar Brynjarsson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu leigu og tengdra gjalda á grundvelli rekstrarleigusamninga um 79 bifreiðar sem stefnandi hafði gert við þriðja aðila. Þótti ósannað að stefndi hefði tekist á hendur samningsskyldur á grundvelli framangreindra samninga, hvort heldur sem litið yrði svo á að stefndi hefði tekið við skyldum upphaflegs skuldara eða fallist á að bera óskipta ábyrgð með honum á kröfum stefnanda. Þá var einnig hafnað kröfum stefnanda um greiðslu skaðabóta á grundvelli reglna um skaðabótaskyldu utan samninga þar sem tjón, umfang þess og orsakatengsl við háttsemi stefnda voru ósönnuð. Að endingu var hafnað kröfu stefnanda um bætur á grundvelli óskráðra reglna um ólögmæta auðgun enda talið talið að sú málsástæða væri ekki studd viðhlítandi rökum.

Hæstiréttur birt 16. júní 2016

810/2015

Malbikunarstöðin Hlaðbær - Colas hf (Hlynur Halldórsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

MH hf. krafðist þess að viðurkennt yrði að rekstrarleigusamningar um gámahús sem félagið hafði gert við L hf. væru lánssamningar í skilningi VI. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu með ólögmætri gengistryggingu. Talið var að samningarnir væru leigusamningar og að þau sjónarmið sem Hæstiréttur hefði lagt til grundvallar um fjármögnunarleigusamninga ættu að breyttu breytanda einnig við um rekstrarleigu. Þá var hvorki talið að MH hf. hefði sýnt fram á að samningur L hf. og M ehf., seljanda gámahúsanna, um endurkaup M ehf. á húsunum að samningstíma loknum, né samningur M ehf. og MH hf. um kaup MH hf. á þeim að „leigutíma loknum“ gætu haft efnislega þýðingu við skýringu hinna umdeildu samninga. Samkvæmt þessu var ekki talið að ákvæði laga nr. 38/2001 girtu fyrir að heimilt hefði verið að semja um að leigugjaldið tæki mið af gengi erlendra gjaldmiðla. Var L hf. því sýknaður af kröfu MH hf.