Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1111/2020"

3 dómar fundust

Landsréttur birt 6. október 2023

293/2022

A (Flóki Ásgeirsson lögmaður) gegn Landspítalanum og íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

A höfðaði mál gegn L og Í þar sem hann krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður heilbrigðisráðuneytisins þar sem staðfest var gjaldtaka á hendur A vegna notkunar hans á CPAP-öndunarvél. Jafnframt krafðist A þess að L og Í yrði sameiginlega gert að endurgreiða honum oftekin gjöld vegna notkunarinnar. Ágreiningur aðila snerist um lögmæti gjaldtökunnar en A taldi að um væri að ræða þjónustugjald og að ekki væri fullnægjandi lagagrundvöllur fyrir gjaldtökunni. L og Í héldu því hins vegar fram að um væri að ræða styrk fremur en þjónustugjald. Í dómi Landsréttar kom fram að ákvæði 1. mgr. 26. gr. laga nr. 112/2018 um sjúkra-tryggingar, sem mælir fyrir um þátttöku Sjúkratrygginga í kostnaði við öflun og notkun hjálpartækja, yrði ekki túlkað öðruvísi en svo að um væri að ræða greiðslu-þátttöku Sjúkratrygginga með þeim sem notuðu hjálpartæki á borð við öndunarvélar. Ekki hafi staðið til af hálfu löggjafans að ríkið bæri allan kostnað við öflun og notkun hjálpartækja, enda sé sérstaklega tekið fram í þágildandi reglugerð nr. 1155/2013, að öndunarvélar séu greiddar að fullu en skiptanlegir fylgihlutir og rekstrarvörur fyrir vélarnar ásamt þjónustu séu greiddir að fullu nema fyrir notendur CPAP-öndunarvéla. Notkun A á CPAP- öndunarvél hafi því verið niðurgreidd af Sjúkratryggingum að öðru leyti en því að styrkurinn tók ekki til mánaðarlegs meðalkostnaðar vegna skiptanlegra fylgihluta, rekstrarvöru og þjónustu við vélina umfram 440 krónur sem A bar að greiða í þessu tilviki. Þar sem ekki var um að ræða að L innheimti gjald fyrir veitta þjónustu sem lagaheimild þurfti fyrir voru L og Í sýknuð af kröfum A.

...Í reglugerð nr. 1111/2020, um heilbrigðisumdæmi og hlutverk, starfsemi og þjónustu heilsugæslustöðva, heilbrigðisstofnana og sjúkrahúsa, sé nánar kveðið á um hlutverk og starfsemi Landspítala og þá heilbrigðisþjónustu sem þar...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. maí 2023

E-2473/2022

A (Steingrímur Þormóðsson lögmaður) gegn Sjúkratryggingum Íslands (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

Stefnandi krafðist bóta úr hendi stefnda á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu vegna afleiðinga aðgerðar sem stefnandi gekkst undir í kjölfar slyss. Eftir að málið var höfðað greiddi stefndi stefnanda stærstan hluta hinnar upphaflegu dómkröfu og studdist við ákvörðun bótafjárhæðar við matsgerð sem stefnandi aflaði. Eftir stóð þó ágreiningur um þjáningabætur vegna 43 daga. Dómurinn taldi að ætla yrði að þótt ekkert hefði farið úrskeiðis í aðgerðinni hefði stefnandi engu að síður liðið þjáningar í skilningi 1. mgr. 3. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 vegna slyssins á umræddu tímabili. Sjúklingatryggingaratburðurinn var því ekki talinn meginorsök þjáninga stefnanda á tímabilinu. Stefndi var því sýknaður af kröfu stefnanda.

...40/2007 um heilbrigðisþjónustu og reglugerð nr. 1111/2020, sem kaupi ekki tryggingar samkvæmt lögum nr. 111/2000 hjá vátryggingafélögum og því hafi stefnanda borið að beina kröfum sínum að...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. febrúar 2022

E-3540/2021

A (Arnar Heimir Lárusson lögmaður) gegn Landspítala og íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Hafnað var kröfu einstaklings um endurgreiðslu gjalds fyrir notkun hjálpartækis. Talið var að viðunandi lagaheimild væri fyrir gjaldinu og að greinarmunur á gjaldtökunni og gjaldtöku fyrir önnur hjálpartæki byggðist á málefnalegum sjónarmiðum.

...Í reglugerð nr. 1111/2020, um heilbrigðisumdæmi og hlutverk, starfsemi og þjónustu heilsugæslu- stöðva, heilbrigðisstofnana og sjúkrahúsa, sé nánar kveðið á um hlutverk og starfsemi Landspítala og þá heilbrigðisþjónustu sem...