Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

8 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 11. gr. laga nr. 99/2004 — Lög um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. júní 2017

E-2662/2016

Bergur Sigurðsson (Sævar Þór Jónsson hdl) gegn Ragnheiði og Margréti Ólafsdóttur (Þórhallur Bergmann hdl) og Þórarni og Jónssyni (Ingvar Sveinbjörnsson hrl)

Kaupandi fasteignar krafðist skaðabóta úr hendi seljanda vegna þess að við sölu eignarinnar var hluti innri veggja og lofts klætt með asbesti. Sýkna vegna fyrningar.

Hæstiréttur birt 18. september 2014

56/2014

Heimiliskaup ehf (Jóhannes Sigurðsson hrl) gegn Ernu Valsdóttur og Tryggingamiðstöðinni hf (Hjörleifur Kvaran hrl)

H ehf. keypti fasteign fyrir milligöngu fasteignasalans E. Hélt H ehf. því fram að E hefði með saknæmum og ólögmætum hætti valdið félaginu tjóni með því að hafa auglýst og kynnt fasteignina á þann hátt að unnt væri að reka hótelstarfsemi í húsnæðinu, án þess að afla staðfestingar á því að fyrir hendi væru leyfi fyrir slíkum rekstri eða kanna hvort skilyrði til slíkrar starfsemi væru uppfyllt. Í dómi Hæstaréttar kom fram að fallast mætti á það með H ehf. að af lestri söluyfirlits fasteignarinnar hefði mátt ætla að á henni væri rekið hótel. Söluyfirlitið hefði þannig ekki gefið rétta mynd af eiginleikum eignarinnar og brotið gegn 1. mgr. 11. gr. laga nr. 99/2004 um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa. Þá hefði þessi ónákvæma lýsing á eiginleikum hins selda verið í andstöðu við 15. gr. sömu laga, þar sem fram komi að fasteignasali skuli í hvívetna leysa af hendi störf sín svo sem góðar viðskiptavenjur bjóði og liðsinna báðum aðilum og gæta réttra hagsmuna þeirra. Á hinn bóginn var tekið fram að fyrirsvarsmenn H ehf. hefðu skoðað eignina fyrir kaupin og verið ljóst að hótelrekstur hefði ekki verið á eigninni á þeim tíma. Hefði þetta gefið félaginu tilefni til að kanna hvort leyfi til hótelrekstrar lægi fyrir ef það var forsenda kaupanna, sbr. 38. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup. Þá yrði að líta til þess að hvorki í kauptilboði H ehf. og gagntilboði seljandans né kaupsamningi og afsali hefði verið getið hótelrekstrar í húsnæðinu eða áskilið að leyfi til slíks rekstrar væri til að dreifa. Var í ljósi þessa ekki talið í ljós leitt að grundvöllur ákvörðunar H ehf. um kaup eignarinnar hafi verið að fyrir lægi leyfi til rekstrar hótels, sbr. 1. gr. 11. gr. laganna. Var E og T hf. því sýknað af kröfu H ehf.

Hæstiréttur birt 15. maí 2008

471/2007

Hilmar K. Viktorsson Steingrímur Viktorsson og Viktor J. Jacobsen (Grétar Haraldsson hrl) gegn Sunnu Jónu Guðnadóttur (Halldór Þorsteinn Birgisson hrl)
Lykilorð: Fasteignakaup. Galli. Afsláttur.

SJG keypti íbúð að Nesvegi í Reykjavík af H, SV og V með kaupsamningi 15. október 2004. Taldi SJG eignina haldna galla þar sem stállagnir í veggjum, skólp-, neysluvatns- og hitalagnir íbúðarinnar væru ónýtar, útveggur hennar morkinn auk þess sem upplýsingar um aldur íbúðarinnar hefðu ekki verið réttar. Krafðist SJG skaðabóta eða afsláttar úr hendi H, SV og V. Í niðurstöðu Hæstaréttar var fallist á það með héraðsdómi að fasteignin hefði verið haldin göllum og var SJG því dæmdur afsláttur af kaupverði íbúðarinnar sem ákveðinn var 8% af kaupverði. Svaraði sá afsláttur til ætlaðrar verðmætisrýrnunar á fasteigninni vegna gallanna að frádreginni verðmætisaukningu vegna endurnýjunar umræddra hluta en H, SV og V höfðu hvorki með yfirmatsgerð né á annan hátt lagt grundvöll að því að þessari niðurstöðu yrði hnekkt fyrir Hæstarétti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. mars 2007

E-6005/2006

Kaupangur eignarhaldsfélag ehf (Magnús Guðlaugsson hrl) gegn Stórhúsum ehf, Agnari Agnarssyni, Þórunni Þórðardóttur og Verði Íslandstryggingu hf. til réttargæslu

Stefnandi krafði stefndu um greiðslu skaðabóta á þeim grunni að þau, sem fasteignasalar, hafi gert mistök við sölu fasteigna stefnanda sem leitt hafi til þess að hann hafi orðið fyrir tjóni. Voru stefndu sýknuð af kröfum stefnanda.