Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 10. gr. laga nr. 99/2004 — Lög um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa
Fasteignasalan A ehf. og Á ehf. gerðu með sér samning um einkasölu A ehf. á fasteigninni Álftamýri 1-5 í febrúar 2015 en fasteignin var eina eign Á ehf. Í ársbyrjun 2016 keypti R IX ehf. alla hluti í Á ehf. fyrir 680.000.000 króna án milligöngu fasteignasölunnar og greindi A ehf. og R IX ehf. í kjölfarið á um rétt A ehf. til sölulauna vegna sölunnar. Í maí 2017 tók RS ehf. svo við réttindum og skyldum R IX ehf. vegna fasteignarinnar. Landsréttur hafnaði kröfu A ehf. um ómerkingu héraðsdóms á grundvelli þess málatilbúnaðar að hinn áfrýjaði dómur kvæði á um réttindi til handa aðila sem ekki hefði verið til að lögum þegar dómurinn hefði verið kveðinn upp. Þótt R IX ehf. hefði vanrækt að upplýsa dómara málsins og gagnaðila um að nýr aðili hefði tekið yfir þá hagsmuni sem deilt væri um í málinu og formleg aðilaskipti hefðu af þeim sökum ekki orðið í málinu í héraði varnarmegin, gæti það eins og ástatt væri ekki varðað ómerkingu héraðsdóms, sbr. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Að því er varðaði ágreining málsaðila um söluþóknun var með vísan til samskipta aðila ráðið að söluumboð A ehf. hefði hvort tveggja náð til þess að selja fasteignina Álftamýri 1-5 og félagið Á ehf., þrátt fyrir að í umboðinu væri aðeins rætt um sölu á fasteigninni. Taldi Landsréttur að það stæði RS ehf. nær að sanna að áhugi félagsins á að eignast fasteignina hefði vaknað, óháð kynningu starfsmanns A ehf. á fasteigninni og að hann hefði ekki átt þátt í að viðskiptin komust á. RS ehf. hefði ekki lánast sönnun um það. Á hinn bóginn var ekki talið að A ehf. ætti kröfu til óskertrar 1,5% þóknunar af söluverði fasteignarinnar úr hendi RS ehf., eins og kveðið hafði verið á um í söluumboðinu, heldur taldi rétturinn í ljósi atvika, þar á meðal þeirrar vinnu sem A ehf. hefði innt af hendi í söluferlinu, A ehf. eiga kröfu til um helmings þeirrar þóknunar.
R ehf. höfðaði mál á hendur H og Á og krafðist aðallega riftunar á kaupsamningi um fasteign vegna ýmissa galla sem félagið taldi vera á eigninni, en til vara skaðabóta. Héraðsdómur hafnaði riftunarkröfu R ehf. en féllst á að félagið ætti rétt á skaðabótum sökum þess að brunahurð og snjógrind hefðu ekki staðist kröfur byggingarreglugerðar og vegna þess að lagning rafmagns í bílskúr hefði ekki verið í samræmi við kaupsamning. Þar sem R ehf. hafði haldið eftir kaupsamningsgreiðslu sem nam hærri fjárhæð heldur en skaðabætur félagsins vegna gallanna, sýknaði héraðsdómur H og Á af kröfum þess á grundvelli skuldajafnaðar. Fyrir Hæstarétti var aðeins deilt um skaðabótakröfu R ehf. Staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu héraðsdóms um rétt R ehf. til bóta vegna brunahurðarinnar og raflagnanna í bílskúrnum, en sýknaði H og Á af kröfu félagsins vegna snjógrindarinnar. Þá taldi Hæstiréttur að H og Á bæru ábyrgð á því gagnvart R ehf. að gerð hefðu verið mistök við gerð söluyfirlits fasteignarinnar, þar sem tilgreint var að til staðar væri snjóbræðslukerfi þótt svo hefði ekki verið, og því ætti félagið einnig rétt á bótum vegna þess. Að lokum vísaði Hæstiréttur til þess að þótt H og Á hefðu ekki gagnáfrýjað héraðsdómi fyrir sitt leyti heldur krafist staðfestingar hans, væri þeim engu að síður heimilt að krefjast þess að skaðabótakröfu R ehf. yrði hafnað, þar á meðal vegna þeirra liða sem dæmdir hefðu verið í héraði, enda fælist ekki í því krafa um breytingu á dómsorði héraðsdóms heldur að forsendum fyrir niðurstöðunni yrði breytt. Voru H og Á því dæmd til að greiða R ehf. skaðabætur vegna nefndra galla, en að frádreginni þeirri fjárhæð sem R ehf. hafði haldið eftir.
Stefndu, sveitarfélag og fasteignasali sýknuð af kröfum stefnanda vegna galla á fasteign en byggingarstjóri, iðnmeistari svo og seljandi dæmdir til greiðslu skaðabóta.
D Ó M U R og Héraðsdóms Reykjaness fimmtudaginn 28. maí 2009 í máli nr. E-2947/2008: og Jónína Eggertsdóttir (
Ingunn Agnes Kro hdl) og
Bergþóra Eiríksdóttir (
Ívar Pálsson hdl)
gegn
Einari Gunnari Jakobssyni, Báru Hannesdóttur og Pálmeyju Kristjánsdóttur (
Margrét Gunnlaugsdóttir hdl)
Krafa kaupenda fasteignar um bætur vegna galla á fasteigninni að mestu tekin til greina.