Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

9 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 50. gr. laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga

Hæstiréttur birt 17. desember 2013

445/2013

Okoro Osahon (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

O, nígerískur ríkisborgari, krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður innanríkisráðuneytisins og felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar þar sem ákveðið var að umsókn hans um hæli á Íslandi yrði ekki tekin til meðferðar hér á landi og að hann skyldi endursendur til Ítalíu. Var ákvörðunin reist á d-lið 1. mgr. 46. gr. a. og a-lið 1. mgr. 32. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Í málinu lá fyrir að Ítalía hafði samþykkt að O yrði á grundvelli e-liðar 1. mgr. 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar fluttur aftur þangað, en O hafði áður sótt um hæli þar í landi en verið synjað. Byggði O umsókn sína um hæli hér á landi á atburðum sem hann kvað að hefðu átt sér stað í kjölfar þess að hann snéri aftur til Nígeríu frá Ítalíu. Í dómi Hæstaréttar sagði m.a. að líta yrði svo á að hælisumsókn O á Ítalíu og umsókn hans um hæli hér á landi væru eitt og sama málið. Var talið ljóst að fyrir hendi hefðu verið raunhæf úrræði fyrir O að leita réttar síns við meðferð málsins á Ítalíu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og að ekki hefði verið sýnt fram á að ítölsk yfirvöld myndu ekki veita O þá vernd sem áskilin væri í skuldbindingum þeirra á sviði mannréttinda, þar á meðal reglunni um að mönnum skuli ekki vísað brott þangað sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu. Þá taldi Hæstiréttur að þrátt fyrir að nokkrir ágallar væru á málsmeðferð og skilyrðum til móttöku hælisleitenda á Ítalíu yrði ekki talið að á Ítalíu væri fyrir hendi kerfisbundinn galli sem leiddi til þess að O stæði frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð þar í landi, yrði hann fluttur þangað. Stæði 45. gr. laga nr. 96/2002 því ekki í vegi að íslenskum stjórnvöldum væri með vísan til 46. gr. a. laganna heimilt að synja að taka umsókn O um hæli til efnismeðferðar. Þá var ekki fallist á með O að túlka bæri íslenska þýðingu Dyflinnarreglugerðarinnar með öðrum hætti en þá ensku að því er varðaði frest til flutnings hans til Ítalíu, en málsástæða hans um að ekki væri um að ræða „sjálfstæðan rétt til frestunar“ þegar ákvörðun væri tekin um málskot heldur yrði ráðherra að fresta réttaráhrifum í slíkum tilvikum, var talin of seint fram komin og kom hún því ekki til skoðunar fyrir Hæstarétti, sbr. 2. mgr. 163. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Loks var hvorki talið að rannsókn málsins hefði verið ófullnægjandi né að íslenskum stjórnvöldum hefði borið að taka til skoðunar hvort O uppfyllti skilyrði um veitingu dvalarleyfis af mannúðarástæðum. Var Í því sýknað af kröfu O.

Hæstiréttur birt 14. október 2010

615/2009

Mehdi Kavyanpoor (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl)
Lykilorð: Útlendingur. Stjórnsýsla.
Málaflokkur: Útlendingamál

Með ákvörðun útlendingaeftirlitsins í apríl 2007, sem staðfest var með úrskurði dóms- og kirkjumálaráðuneytisins í október 2008, var M, írönskum ríkisborgara, synjað um hæli hér á landi sem flóttamanni og jafnframt að honum yrði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum. M höfðaði mál gegn íslenska ríkinu og krafðist ógildingar á fyrrgreindum ákvörðunum m.a. á þeim grundvelli að útlendingastofnun hafi, með því að túlka 12. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga of þröngt, staðið í vegi fyrir því að veitt yrði dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Þá bar M við form- og efnisgöllum við málsmeðferðina. Talið var að ákvörðun útlendingastofnunar og úrskurður ráðuneytisins hafi verið reist á málefnalegum sjónarmiðum og stjórnvöld við þær ákvarðanir beitt þeim sjónarmiðum sem skylt var að beita samkvæmt 1. mgr. 44.gr., 45. gr. og 12. gr. laga nr. 96/2002. Ákvarðanirnar væru þannig hvorki haldnar form- né efnisannmörkum og íslenska ríkið sýknað af kröfu M í málinu.

Hæstiréttur birt 12. mars 2009

353/2008

Íslenska ríkið og Útlendingastofnun (Sigurður Gísli Gíslason hrl) gegn Amadou Shernu Daillo (Ragnar Aðalsteinsson hrl)
Málaflokkur: Útlendingamál

A óskaði hælis á Íslandi og tók Ú í framhaldi af því málið til meðferðar. Óskaði Ú meðal annars upplýsinga frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna um aðstæður í heimalandi A, en tók ákvörðun um að synja umsókn A áður en svar barst. A kærði ákvörðunina til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, sem staðfesti hana. Talið var að bætt hafi verið að nokkru leyti úr annmarka á ákvörðun Ú við úrskurð ráðuneytisins, en þá hafði borist svar frá Flóttamannastofnuninni. Í svarinu komi þó fram að ekki væri útilokað að veita nákvæmari upplýsingar ef fyrirspurnin væri nákvæmari. Yrði að líta svo á að þessar upplýsingar hafi verið aðgengilegar og því hafi þess ekki verið gætt að afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga svo sem skylt sé að gera samkvæmt 3. mgr. 50. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Hafi því verið brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Voru ákvörðun Ú, um að synja umsókn A um hæli, og úrskurður dóms- og kirkjumálaráðuneytisins sem staðfesti hana, felld úr gildi.