Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 43. gr. laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga
Úrskurður innanríkisráðuneytisins, sem staðfesti ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann, var felldur úr gildi vegna málsmeðferðar- og efnisannmarka.
T var sakfelldur fyrir brot gegn lögum um útlendinga nr. 96/2002, með því að hafa í byrjun september 2007 komið til landsins og dvalið hér á landi fram til 20. nóvember er lögreglan stöðvaði för hans, og með því brotið gegn ákvörðun Útlendingastofnunar 19. september 2006, sem staðfest var með úrskurði dóms- og kirkjumálaráðuneytis 16. apríl 2007, um brottvísun T af Íslandi og endurkomubann til landsins næstu 10 ár. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa haft í vörslum sínum 25,62 g af amfetamíni. Með broti sínu rauf T skilorð reynslulausnar sem honum hafði verið veitt 12. október 2006 í 2 ár á 419 dögum óafplánaðrar refsingar. Með vísan til 1. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsingar var refsing T gerð í einu lagi samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 77. gr. sömu laga. Var hún ákveðin fangelsi í 16 mánuði.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Tomas Arlauskas (
Björgvin Jónsson hrl)
Sakfelldur fyrir brot gegn útlendingalögum og lögum um ávana- og fíkniefni.