Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

9 dómar fundust

Lagagrein: 4. mgr. 49. gr. laga nr. 93/1994 — Lyfjalög

Landsréttur birt 4. nóvember 2022

505/2021

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Atla Viðari Gunnarssyni (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var ákærður fyrir ýmis brot í 13 ákæruliðum. Við meðferð málsins í héraði féll ákæruvaldið frá 5 ákæruliðum. Með hinum áfrýjaða dómi var A sakfelldur fyrir þá ákæruliði sem eftir stóðu, að undanskildum ákærulið 11 sem hann var sýknaður af. Fyrir Landsrétti krafðist A sýknu af ákæruliðum 4, 10 og 12 en hann hafði játað brot samkvæmt ákæruliðum 1, 8, 9 og 13. Við úrlausn um ákærulið 4, sem sneri að meintum þjófnaði A úr verslun og umferðarlagabroti, kom fram í dómi Landsréttar að gögn um rannsókn lögreglu væru rýr og ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Var A því sýknaður af ákærulið 4. Samkvæmt ákærulið 10 var A gefinn að sök nytjastuldur með því að hafa heimildarlaust tekið tilgreinda bifreið og notað hana uns lögregla hafði afskipti af honum sofandi í bifreiðinni. Í dómi Landsréttar var rakið að ekki hefði verið sýnt fram á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæruliðnum væri lýst. Var A því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins að þessu leyti. Við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti var horft á myndupptöku af atburðum sem heyra undir ákærulið 12 og kannaðist A við sig á upptökunni. Með hliðsjón af því, vættum vitna og gögnum málsins að öðru leyti, var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu A samkvæmt ákærulið 12. Hinn áfrýjaði dómur var að öðru leyti staðfestur með vísan til forsendna um annað en ákvörðun refsingar, sviptingu ökuréttar og upptöku á tveimur farsímum og spjaldtölvu. Refsing A þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða brotaþola skaðabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. júní 2021

S-4465/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Atla Viðari Gunnarssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir m.a. líkamsárás, þjófnað og umferðarlagabrot. Var hann dæmdur í átta mánaða fangelsi, sviptur ökurétti og gert að sæta upptöku haldlagðra ávana- og fíkniefna o.fl.

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. júní 2021

S-3265/2020

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Ásmundur Jónsson saksóknarfulltrúi) gegn Hermanni Hjartarsyni Gustum (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði játaði sök og var dæmdur fyrir vörslu fíkniefna og vopnalagabrot.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. maí 2020

S-404/2020

Ákæruvaldið (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Sævari Má Bjarkasyni (Páll Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Önnur sakamál

Ákærði sakfelldur fyrir brot á almennum hegningarlögum, umferðarlögum, fíkniefnalögum og vopnalögum og dæmdur í 20 mánaða fangelsi, skilosrðbundið 3 ár. Var að mestu um hegningarauka að ræða. Fyrri dómur var tekinn upp og dæmdur með. Ákærði var jafnframt sviptur ökurétti ævilangt.