Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
6 dómar fundust
Lagagrein: 32. gr. laga nr. 84/2007 — Lög um opinber innkaup
Ágreiningur um verksamning og byggingu íþróttahúss.
S ses. höfðaði mál gegn H og krafðist aðallega viðurkenningar á skaðabótaskyldu H vegna missis hagnaðar sem hlotist hafði af þeirri ákvörðun bæjarráðs H árið 2012 að falla frá forvali um hjúkrunarheimili á Völlum 7. Var S ses. annar af tveimur umsækjendum sem taldir voru uppfylla kröfur forvalsins en með úrskurði kærunefndar útboðsmála var sú ákvörðun H að telja hina umsóknina fullnægjandi felld úr gildi. Var því S ses. einn með gilda umsókn í forvalinu og í framhaldinu ákvað H að fella það niður. Í dómi Hæstaréttar var vísað til 4. mgr. 56. gr. þágildandi laga nr. 84/2007 um opinber innkaup en þar hafði komið fram að þátttakendur sem valdir væru til að leggja fram tilboð vegna lokaðs útboðs ættu ekki að vera færri en fimm og að fjöldi þátttakenda skyldi ætíð vera nægilegur til að tryggja raunverulega samkeppni. Kom fram að S ses. hefði staðið einn eftir að loknu forvali og augljóst að engin samkeppni yrði við útboðið. Með vísan til þess var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að sýkna H af aðalkröfu S ses. Þá var H einnig sýknaður af kröfum S ses. um útlagðan kostnað öðrum en málskostnaði fyrir kærunefnd útboðsmála.
Útboð. Frávísun að hluta. Sýkna.
Hafnað var kröfu stefnanda um að viðurkenndur yrði réttur hans til skaðabóta vegna missis hagnaðar vegna ákvörðunar bæjarráðs um að falla frá forvalsferli um hjúkrunarheimili. Einnig var hafnað kröfu stefnanda um bætur vegna kostnaðar sem hann hefði orðið fyrir.
S auglýsti útboð vegna aksturs almenningsvagna innan starfsvæðis síns og milli þess og höfuðborgarsvæðisins. B ehf. var meðal þeirra sem bauð í aksturinn og átti félagið lægsta tilboð í útboðinu sem fólst í boði í fyrsta og annan verkhluta þess sameiginlega, en að auki hafði B ehf. boðið í hvorn verkhluta fyrir sig. Aðilar málsins deildu annars vegar um það hvort hið sameiginlega tilboð B ehf. í fyrst og annan verkhluta hefði verið ógilt og hins vegar hvaða kosti S átti þegar fyrir lá að B ehf. hygðist ekki standa við lægsta tilboð sitt í útboðinu. Hæstiréttur taldi að B ehf. hefði hvorki sýnt fram á að lægsta tilboð hans í útboðinu hefði vegna misritunar eða annarra mistaka orðið annars efnis en til hefði verið ætlast þannig að óskuldbindandi væri fyrir félagið samkvæmt 1. mgr. 32. gr. laga nr. 7/1936 né að tilboðið hefði verið óeðlilega lágt í skilningi 73. gr. laga nr. 84/2007. Hefði lægsta tilboð B ehf. í útboðinu því verið gilt og skuldbindandi fyrir félagið. Með tilkynningu sem send var um að tilboðið væri endanlega samþykkt hefði komist á bindandi samningur milli aðila á grundvelli útboðsgagna og lægsta tilboðs B ehf. Þegar ljóst hefði verið að B ehf. hugðist ekki standa við tilboðið hefði S verið heimilt samkvæmt almennum reglum kröfuréttar um fyrirsjáanlegar vanefndir að lýsa þá þegar yfir riftun samningsins, enda hefði vanefnd B ehf. verið veruleg. Var því fallist á með héraðsdómi að hefði B ehf. beðið tjón í skiptum sínum við S vegna þessa yrðu ástæður þess að öllu leyti raktar til háttsemi hans sjálfs en ekki til S. Var S því sýknað af kröfu B ehf. um skaðabætur. Á hinn bóginn vísaði Hæstiréttur til þess að S hefði ekki verið rétt að ganga til samningskaupa við annan aðila án þess að fram færi almennt eða lokað útboð á Evrópska efnahagssvæðinu þar sem ekki hefði verið fullnægt skilyrðum c. liðar 33. gr. laga nr. 84/2007. Hefði S átt þess kost að láta fara fram hraðútboð á grundvelli 60. gr. laganna, enda hefði verið fullnægt því skilyrði að fyrir hendi hefðu verið aðstæður sem honum yrði ekki um kennt. Þótt val á þeirri leið hefði að líkindum leitt til þess að akstur samkvæmt nýju útboði hefði ekki getað hafist á þeim degi sem til stóð, og S því þurft að semja tímabundið við annan um þann akstur, væru líkur til að S hefði með þeim hætti getað takmarkað tjón sitt frekar en reyndin varð. Þar sem valin hefði verið leið sem ekki hefði verið fær samkvæmt lögum nr. 84/2007 yrði hann að taka afleiðingum þess og bera sjálfur það tjón sem af kynni að hafa hlotist. Var B ehf. því sýknað af kröfu S.
Útboð á almenningssamgöngum: Í aðalsök var deilt um gildi tilboðs og var stefndi, verkkaupi, sýknaður af skaðabótakröfu stefnanda, bjóðanda. Í gagnsök var stefndi, bjóðandi, sýknaður af skaðabótakörfu stefnanda, verkkaupa, innan samninga.