Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

10 dómar fundust

Lagagrein: 3. gr. laga nr. 81/2003 — Lög um fjarskipti

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. október 2024

E-1846/2021

Sýn hf (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) gegn Fjarskiptastofu (Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður), Símanum hf (Hallmundur Albertsson lögmaður), Mílu hf (Stefán A. Svensson lögmaður), Nova hf (Heimir Örn Herbertsson lögmaður), Ljósleiðaranum ehf (Hlynur Halldórsson lögmaður) og Fjarskiptastofa (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnenda um að fella úr gildi úrskurð úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála frá 6. nóvember 2020 í máli nr. 7/2019, sem felldi ákvörðun stefnanda, nú Fjarskiptastofu nr. 27/2019, úr gildi. Var fallist á málsástæður stefnenda, sem einnig voru studdar af tveimur stefndu í málinu, í þá veru að ekki hafi verið forsvaranlegt að fella téða ákvörðun Fjarskiptastofu úr gildi þar sem að annmarkar þeir sem úrskurðarnefndin leit til hvað varðar rannsókn málsins og rökstuðning hafi sýnilega ekki talist vera þess eðlis að hafa haft áhrif á niðurstöðu í téðri ákvörðun Fjarskiptastofu sem byggði á heildarmati auk þess sem ekki hafi sýnilega verið farið á svig við leiðbeiningarskyldu við málsmeðferð stofnunarinnar. Þá hafi Fjarskiptastofa lýst því yfir að fallið yrði frá stjórnvaldssekt á hendur stefnda Símanum í ljósi fyrri dómsúrlausnar sem hefði þýðingu hvað það varðaði.

Landsréttur birt 25. september 2020

284/2019

Síminn hf (Stefán A. Svensson lögmaður) gegn Póst- og fjarskiptastofnun (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður), Sýn hf. (Kristinn Hallgrímsson lögmaður, Dóra Sif Tynes lögmaður, 3. prófmál), Nova hf. (Heimir Örn Herbertsson lögmaður) og Sendafélaginu ehf. (Jóhanna Guðrún Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri) og Póst- og fjarskiptastofnun (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) gegn Símanum hf. (Stefán A. Svensson lögmaður)

Með ákvörðun P árið 2014 var fallist á beiðni SN og N um samnýtingu tiltekinna tíðniheimila sem þeim hefði verið úthlutað af P. SM höfðaði mál og krafðist aðallega viðurkenningar á því að ákvörðunin væri ógild, en til vara að hún yrði ógilt með dómi. Ekki var fallist á að P hefði bundið eigin ákvörðun skilyrðum og að fyrir vikið væri hún markleysa eða lögleysa. Var aðalkröfu SM um viðurkenningu á ógildi ákvörðunarinnar því hafnað. Varakröfu sína um ógildingu ákvörðunarinnar reisti SM aðallega á því að sú samnýting SN og N á tíðniheimildum fyrir tilstilli SF, félags í eigu SN og N, sem heimiluð var með hinni umþrættu ákvörðun bryti gegn banni 2. mgr. 7. gr. fjarskiptalaga nr. 81/2003 við framsali tíðniheimilda. Þá byggði SM einnig á því að ákvörðunin væri til þess fallin að raska samkeppni og að ekki hefði verið tekin sjálfstæð afstaða til samkeppnislegra áhrifa af samnýtingu tíðniheimilda. Í dómi Landsréttar kom fram að þrátt fyrir samstarf SN og N í gegnum SF væru SN og N áfram rétthafar viðkomandi tíðniheimilda og bæru þau réttindi og skyldur sem af því leiddi. SF sæi aðeins um starfrækslu þess tækjabúnaðar sem sendi út tíðniheimildir SN og N, en hefði ekki forræði á nýtingarrétti tíðniheimildanna. SN og N hefðu þannig ekki framselt tíðniheimildir sínar til SF. Þá var talið að þótt framsalsbann 2. mgr. 7. gr. laga nr. 81/2003 yrði skilið sem svo að rétthafi tíðniheimilda gæti ekki, upp á sitt eindæmi, heimilað öðrum að nýta tíðniheimildir sem honum hefði verið úthlutað háttaði svo til í málinu að hvorki SN né N hefðu heimilað hvor öðrum að nýta tíðniheimildir hins, heldur hefði P heimilað samnýtingu þeirra með ákvörðun sinni. Taldi Landsréttur það hafa verið í samræmi við skyldur P og innan valdheimilda stofnunarinnar að heimila samnýtinguna. Þar sem ekki lá annað fyrir en að samnýtingunni hefði verið hagað í samræmi við þá skilmála og skilyrði sem henni voru sett væri ekki unnt að líta svo á að SN eða N hefðu með samnýtingunni framselt hvor öðrum tíðniheimildir í bága við 2. mgr. 7. gr. laga nr. 81/2003. Þá var því hafnað að ekki hefði verið gætt að samkeppnisréttarlegum sjónarmiðum eða að ákvörðun P hefði brotið gegn ákvæðum stjórnsýslulaga. Voru stefndu því sýknaðir af kröfum SM.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. mars 2020

E-2398/2019

Míla ehf (Stefán A. Svensson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Gísli Örn Reynisson Schramm lögmaður)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótaskyldu stefnda vegna tjóns sem varð við jarðvinnu vátryggingartaka á ljósleiðara í eigu stefnanda. Á vegum stefnanda hafði staur sem sýndi legu ljósleiðarans verið færður til og veitti því rangar upplýsingar um legu hans. Viðurkenningu á bótaskyldu var hafnað og stefndi sýknaður af kröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. september 2014

E-4453/2014

Síminn hf (Friðrik Árni Friðriksson Hirst lögmaður) gegn Póst- og fjarskiptastofnun (Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður), Sýn hf. (Snorri Stefánsson lögmaður), Nova ehf. (Heimir Örn Herbertsson lögmaður) og og Sendafélaginu ehf. (Bergur Hauksson lögmaður)

Stefndu voru sýknaðir af dómkröfum stefnanda um ógildi eða ógildingu ákvörðunar stefnda Póst- og fjarskiptastofnunar þar sem ekki þótt sýnt fram á að umrædd ákvörðun væri haldin þeim annmörkum sem stefnandi hélt fram.