Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 47. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Landsréttur birt 20. febrúar 2025

306/2024

LANDSRÉTTUR og Dómur fimmtudaginn 20. febrúar 2025. og Mál nr. 306/2024: og Ómar Steinar Rafnsson og Vörður tryggingar hf. (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður), Guðni Tyrfingsson og Vörður tryggingar hf. (Marteinn Másson lögmaður) og þrotabú Helgu Daníelsdóttur (Bjarnfreður Ólafsson lögmaður) gegn Herdísi Dröfn Fjeldsted og Sævari Péturssyni (Bjarki Þór Sveinsson lögmaður)

H og S höfðuðu mál á hendur HD, Ó, G og V til heimtu skaðabóta vegna galla á fasteign sem þau keyptu af HD sem byggði hana. Ó var byggingarstjóri og G hönnuður en báðir voru þeir með starfsábyrgðartryggingu hjá V. Í héraði var að mestu leyti fallist á kröfur þeirra en G þó sýknaður og V sömuleiðis hvað hann varðaði. Af áfrýjun og gagnáfrýjun málsins leiddi að allar kröfur aðila voru til úrlausnar fyrir Landsrétti. Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu héraðsdóms að frágangur glugga og rennihurðar, svala, votsvæða í baðaðstöðu og peningaskáps hefði falið í sér galla samkvæmt 18. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup, sem HD bæri ábyrgð á. Ó var einnig talinn bera ábyrgð á frágangi glugga, rennihurðar og svala og G á frágangi svala en ábyrgð þeirra beggja grundvallaðist á þágildandi lögum nr. 73/1997. Ábyrgð HD, Ó og G á fyrrgreindum göllum var óskipt en V gert að greiða nánar tiltekna fjárhæð vegna starfsábyrgðartrygginga Ó og G. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms voru HD, Ó og G hins vegar sýknuð af kröfu er laut að einangrun í útkragaðri plötu.

Hæstiréttur birt 22. apríl 2015

578/2014

Þórðarsveigur 17-21 húsfélag (Kristján Stefánsson hrl) gegn Ríkarð Oddssyni og Vátryggingafélagi Íslands hf (Heiðar Örn Stefánsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli D á hendur S var vísað frá dómi. Deildu aðilar um fjárhæð endurgreiðslu S til D vegna bílskúrsréttar þess síðarnefnda. Í samningi aðila var kveðið á um að kæmi upp ágreiningur um fjárhæðina skyldu þrír „matsmenn“ ákvarða hana eftir ákvæðum samningsins og skyldi niðurstaða þeirra vera endanleg. Í dómi Hæstaréttar kom fram að í héraði hefði ekki verið gerð krafa um að framangreint ákvæði samningsins yrði ógilt eða því vikið til hliðar á grundvelli ógildingarreglna laga nr. 7/1936 og kæmist sú málsástæða því ekki að fyrir Hæstarétti. Þá var ekki talið að ákvæðið uppfyllti þær kröfur sem gerðar væru í 1. mgr. 3. gr. laga nr. 53/1989 um samningsbundna gerðardóma til að ákvæði laganna ættu við. Hins vegar var talið að umrædd tilhögun ætti sér næga stoð í 1. mgr. 24. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála þar sem mælt væri fyrir um heimild manna til að semja sig undan valdsviði almennra dómstóla. Með vísan til þess var niðurstaða hins kærða úrskurðar um frávísun málsins staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. apríl 2014

E-2702/2013

Þórðarsveigur 17-21, húsfélag (Páll Kristjánsson hdl) gegn Ríkarði Oddssyni og Vátryggingafélagi Íslands hf (Svanhvít Axelsdóttir hdl)

Fallist var á hluta af kröfu húsfélags um skaðabætur vegna annmkarka á hönnun. Öðrum hluta kröfunnar var vísað frá dómi en sýknað að öðru leyti.

Héraðsdómur Suðurlands birt 4. júní 2010

E-936/2009

málinu nr. E-936/2009, Guðný Elísabet Ísaksdóttir og Jón Vilberg Reynisson (Þórhallur Bergmann hdl) gegn Erni Úlfari Andréssyni (Páll Arnór Pálsson hrl), Þórhalla Einarssyni (Magnús Guðlaugsson hrl), Einari V. Tryggvasyni (Magnús H. Magnússon hdl) og Vátryggingarfélagi Íslands hf. (Heiðar Örn Stefánsson hdl)
Lykilorð: Fasteign. Galli. Matsgerð.

Talið var að fasteign í Hveragerði væri haldin margvíslegum göllum sem stöfuðu af ófullnægjandi rakavörn og loftun í skriðkjallara.

Héraðsdómur Suðurlands birt 4. júní 2010

E-935/2009

málinu nr. E-935/2009, Eyjólfur Kristinn Kolbeins og Elín Brynja Hilmarsdóttir (Þórhallur Bergmann hdl) gegn Þórtaki ehf. (Magnús Guðlaugsson hrl), Þórhalla Einarssyni og Einari V. Tryggvasyni (Magnús H. Magnússon hdl) og Vátryggingarfélagi Íslands hf. (Heiðar Örn Stefánsson hdl)
Lykilorð: Fasteign. Galli. Matsgerð.

Talið var að fasteign í Hveragerði væri haldin margvíslegum göllum sem stöfuðu af ófullnægjandi rakavörn og loftun í skriðkjallara.